Færeyjar
1 2 3 4 5 6 7 … 10 ›
Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Frumvarp þess efnis að heimila ætti þungunarrof fram að 12. viku var fellt á færeyska þinginu á miðvikudaginn. Málið féll á jöfnu, en atkvæðagreiðslan fór 15 -15. Á þinginu sitja 33. Erlent 18.5.2024 10:52
Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Ummæli borgarstjóra Þórshafnar, Heðins Mortensen, um að hann vildi bjóða Atlantshafsbandalaginu að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum, komu sem sprengja inn í færeysk stjórnmál. Bæði lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen, og utanríkisráðherrann Høgni Hoydal, hafa brugðist hart við og sagt þessa hugmynd ekki koma til greina. Erlent 17.5.2024 11:03
Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Borgarstjóri Þórshafnar vill bjóða NATO að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Færeyjum. Hann segir núverandi flugvöll of lítinn til að geta þjónað Færeyingum til framtíðar. Erlent 14.5.2024 22:22
Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Færeyingar stefna að því að hætta raforkuframleiðslu með dísilolíu fyrir árið 2030. Samtímis vinna þeir að því að skipta út olíukyndingu íbúðarhúsa fyrir varmadælur og hyggjast þrefalda fjölda vindmylla, úr þrjátíu í níutíu. Erlent 13.5.2024 20:02
Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Færeyskir bændur efndu til mótmælaaksturs á traktorum til Þórshafnar þegar mælt var fyrir frumvarpi landsstjórnarinnar um að leggja háan aðgangseyri á erlenda ferðamenn. Bændur og landeigendur telja frumvarpið ganga gegn stjórnarskrárvörðum rétti þeirra til að stýra sjálfir aðgengi að eigin landi. Erlent 9.5.2024 21:51
Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Smíði nýrrar þjóðarhallar Færeyinga skotgengur og er stefnt að því að fyrstu kappleikirnir verði spilaðir í febrúar á næsta ári. Borgarstjóri Þórshafnar býður Íslendingum að nýta færeysku höllina undir landsleiki Íslands. Innlent 8.5.2024 22:33
Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Færeyjar eru á barmi þess að komast á HM í handbolta í fyrsta sinn eftir stórsigur á Norður-Makedóníu, 34-27, í fyrri leik liðanna í umspili í kvöld. Færeyingar standa því afar vel að vígi fyrir seinni leikinn á laugardaginn. Handbolti 8.5.2024 22:32
Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Helstu ferðamannastaðir Færeyja voru lokaðir í þrjá daga í síðustu viku vegna viðhalds. Eitthundrað sjálfboðaliðar frá tugum landa unnu á meðan við að lagfæra göngustíga, girðingar og þess háttar, verkefni sem sexþúsund manns úr öllum heimshornum sóttu um að fá að taka þátt í. Erlent 6.5.2024 23:09
Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku. Innlent 1.5.2024 23:00
Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Flugvöllurinn í Vogum í Færeyjum, eini flugvöllur eyjanna, verður færður upp um einn öryggisflokk. Það þýðir að Boeing 757-fraktþota FarCargo, dótturfélags Bakkafrosts, fær loksins varanlegt leyfi til að lenda í sinni eigin heimahöfn. Erlent 29.4.2024 23:37
Vill að Færeyjar fái nýjan flugvöll Bæjarstjóri Þórshafnar í Færeyjum, Heðin Mortensen, vill hefja undirbúning að gerð nýs alþjóðaflugvallar í Færeyjum. Ummælin féllu í viðtali við Kringvarpið í vikunni í framhaldi af vandræðum sem fraktflugfélagið FarCargo glímir við að nýta Vogaflugvöll til fiskflutninga með Eysturoy, Boeing 757-þotu félagsins. Erlent 29.3.2024 08:48
Færeyska 757-þotan fær aðra ferð á Vogaflugvöll Boeing 757-flutningaþota færeyska félagsins FarCargo hefur fengið undanþágu frá dönskum samgönguyfirvöldum til að lenda í Færeyjum í dag. Áform um reglulega fiskflutninga eru í uppnámi þar sem reglugerð fyrir Vogaflugvöll, eina flugvöll Færeyinga, takmarkar vænghaf þeirra flugvéla sem mega nota völlinn við allt að 36 metra en 757-þotan er með 41 metra breitt vænghaf. Viðskipti erlent 14.3.2024 11:30
Boeing 757-þotan fær ekki að lenda í Færeyjum Áform færeyska fiskeldisfyrirtækisins Bakkafrosts um reglubundið flug með ferskan lax frá Færeyjum eru í uppnámi þar sem Boeing 757-fraktflutningaþota dótturfélagsins FarCargo fær ekki að lenda á flugvellinum í Vogum. Ástæðan er sú að 41 metra vænghaf hennar telst of breitt fyrir þennan eina flugvöll Færeyinga sem skilgreindur er fyrir allt að 36 metra vænghaf flugvéla. Viðskipti erlent 10.3.2024 10:40
Færeyingar fagna fiskflutningaþotu Boeing 757-fraktflutningaþota færeyska flugfélagsins FarCargo fékk hátíðlegar móttökur á Voga-flugvelli þegar hún lenti í fyrsta sinn í Færeyjum síðdegis í gær. Helstu ráðamenn eyjanna voru meðal gesta í móttökuathöfn, þeirra á meðal Aksel V. Johannessen, lögmaður Færeyja, og Høgni Hoydal utanríkis- og atvinnumálaráðherra, og fékk þotan heiðursbunu frá flugvallarslökkviliðinu þegar hún ók í hlað. Viðskipti erlent 6.3.2024 12:42
Færeyingar fá núna raforku með virkjun sjávarstrauma Færeyingar eru byrjaðir að virkja sjávarföllin í samstarfi við sænskt þróunarfélag. Túrbína upp á 1,2 megavött er þegar komin í sjó og þykir reynslan það góð að farið er að undirbúa 200 megavatta raforkuframleiðslu úr sjávarstraumum við Færeyjar. Erlent 26.2.2024 21:00
Tóku þátt í leit að tveimur skipverjum en án árangurs Að morgni þriðjudagsins 7. febrúar síðastliðnum fékk færeyska línuskipið Kambur á sig brotsjó suður af Suðurey í Færeyjum og lagðist á hliðina. Á skipinu var 16 manna áhöfn, 14 komust upp á skipið þar sem það flaut á hliðinni og var þeim bjargað um borð í þyrlu. Tveggja var hins vegar saknað. Innlent 21.2.2024 16:21
Færeyingar söfnuðu tíu milljónum fyrir Grindvíkinga Nú hefur yfir 33 milljónum króna verið úthlutað til Grindvíkinga úr neyðarsöfnun Rauða krossins. Alls hafa yfir 45 milljónir safnast og úthlutun er enn í fullum gangi. Af þeim 45 milljónum sem söfnuðust komu tíu þeirra frá Færeyjum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum. Innlent 16.2.2024 14:54
Leitin hefur ekki borið árangur Leit að tveimur sjómönnum sem saknað er eftir að línuskipið Kambur sökk suður af Færeyjum í gær hefur ekki skilað árangri í dag. Leitað hefur verið úr lofti og á sjó en einn neyðarsendir úr skipinu hefur fundist. Erlent 7.2.2024 17:00
Leit haldið áfram við Færeyjar í dag Leit að tveimur sjómönnum sem saknað er eftir að línuskipið Kambur sökk suður af Suðurey í Færeyjum í gær verður haldið áfram í dag. Sextán manns voru um borð í skipinu þegar það fékk á sig brotsjó í gærmorgun og mikil slagsíða kom á það. Erlent 7.2.2024 10:22
Tveggja saknað eftir að færeyskt línuskip sökk Tveggja manna er saknað eftir að færeyska línuskipið Kambur fékk á sig brot í morgun. Mikil slagsíða kom á skipið og sendi áhöfn þess út neyðarkall um klukkan sjö í morgun. Erlent 6.2.2024 12:27
Færeyingar vonast eftir hlutdeild í olíuvinnslu Færeyingar sjá tækifæri til að fá hlutdeild í gríðarmiklum umsvifum sem fylgja munu fyrirhugaðri olíu- og gasvinnslu á breska Rosebank-svæðinu. Svæðið er um 130 kílómetra norðvestur af Hjaltlandseyjum en aðeins fimmtán kílómetra austan við lögsögumörk Færeyja. Mun styttra er á svæðið frá Færeyjum heldur en frá Aberdeen, helstu olíuþjónustumiðstöð Bretlandseyja. Viðskipti erlent 28.1.2024 07:07
Færeyingar gefa Grindvíkingum tíu milljónir Færeyski Rauði krossinn hefur undanfarna viku staðið fyrir fjársöfnun til að styðja við Grindvíkinga vegna hamfaranna. Rauði krossinn tilkynnti í dag að hann muni gefa 250 þúsund danskar krónur. Innlent 26.1.2024 21:41
Færeyingar safna fyrir Grindvíkinga Rauði krossinn í Færeyjum hefur hafið söfnun fyrir þá sem hafa orðið fyrir áhrifum af eldgosinu í Grindavík. Upplýsingafulltrúi Rauða krossins á Íslandi segir þau hafa haft samband og viljað aðstoða. Söfnun íslenska Rauða krossins gengur mjög vel. Innlent 17.1.2024 10:26
Færeyingar eiga tvo markahæstu leikmenn EM Færeyska handboltalandsliðið er á heimleið frá Evrópumótinu í handbolta í Þýskalandi eftir tap fyrir Póllandi í gær. Handbolti 16.1.2024 14:31
Færeyskir nemendur sagðir beita kennara ofbeldi Meðlimur í kennarasambandi Færeyja hefur kvatt kollega sína til þess að vera duglegri að tilkynna ofbeldi sem þeir verða fyrir af hendi nemenda sinna. Hann segir hafa borið á því að nemendur beiti kennara sína ofbeldi í auknum mæli. Þeir kasti bókum og pennum í kennara, sem segi tímaspursmál hvenær þeir verða barðir og þaðan af verra. Erlent 13.1.2024 08:23
Boðar róttækar breytingar á lögum um þungunarrof í Færeyjum Jafnréttisráðherra Færeyja hefur lagt fram frumvarp sem heimilar þungunarrof til og með tólftu viku meðgöngu. Um er að ræða stóra breytingu en hingað til hefur þungunarrof verið svo gott sem ólöglegt í Færeyjum. Erlent 9.1.2024 18:04
Færeyingar fagna fjórðu neðansjávargöngunum Færeyingar fögnuðu í dag enn einni samgöngubyltingunni, Sandeyjargöngum, ellefu kílómetra löngum neðansjávargöngum milli Straumeyjar og Sandeyjar. Erlent 21.12.2023 22:55
Þjálfari Júlíusar sakfelldur Mikkjal Thomassen, þjálfari norska knattspyrnufélagsins Fredrikstad, hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi af dómstóli í Færeyjum í kjölfar hótunar sem hann beindi að knattspyrnumanni í Færeyjum í fyrra. Fótbolti 23.11.2023 17:00
Ný gullskynslóð Færeyinga á fjölum Laugardalshallarinnar í kvöld Ísland mætir Færeyjum í vináttulandsleik í Laugardalshöllinni í kvöld en bæði lið eru að undirbúa sig fyrir EM í handbolta í Þýskalandi í janúar. Handbolti 3.11.2023 12:01
Grænlendingar skipta um tímabelti Ríkisstjórnin á Grænlandi tilkynnti fyrir helgi að frá og með laugardeginum síðastliðnum tilheyrir Grænland nýju tímabelti. Erlent 30.10.2023 10:24