

Andlát átta ára stúlku í Bangladess hefur vakið mikla reiði en barnið lést eftir að hafa orðið fyrir nauðgun á heimili eldri systur sinnar. Efnt hefur verið til mótmæla og aðgerða krafist í kynferðisbrotamálum.
Yfirvöld í bænum Monfalcone á Ítalíu, skammt frá landamærum Slóveníu, hafa bannað krikket og iðkendur þurfa því að leita utan bæjarmarkanna til að æfa sig og spila.
Forseti Bangladess sleit þingi í dag eftir að Sheikh Hasina, forsætisráðherra, flúði land í skugga harðra mótmæla gegn stjórn hennar. Jafnframt tilkynnti forsetinn að erkiandstæðingur Hasina hefði verið frelsaður úr stofufangelsi.
Sheikh Hasina, forsætisráðherra Bangladess, hefur sagt af sér embætti og yfirgefið landið. Yfirmaður hermála þar í landi staðfestir að hann muni taka við stjórn landsins og mynda bráðabirgðaríkisstjórn. Blóðug mótmæli hafa geysað síðan snemma í síðasta mánuði og hafa fleiri en 280 manns látið lífið.
Minnst níutíu mótmælendur voru drepnir í Bangladess í gær, í blóðugum mótmælum sem ekki sér fyrir endann á. Meira en 280 manns hafa nú látið lífið síðan mótmælin brutust út í júlí.
Hæstiréttur Bangladess hefur úrskurðað ákvörðun um að þriðjungur opinberra starfa sé frátekinn fyrir afkomendur uppgjafarhermanna og annarra afmarkaðra hópa ógilda. Mikil mótmælaalda hefur riðið yfir Bangladess nýverið og talið að minnst hundrað manns hafi látið lífið í blóðugum átökum við lögreglu.
Embættismenn og sjómenn frá Indónesíu björguðu í mars 75 manns frá fiskiskipi sem hafði hvolft undan ströndum ríkisins. Aðrir 67 farþegar og þar á meðal 28 börn, dóu þegar skipið hvolfdi en um borð voru Róhingjar á flótta frá Mjanmar.
Staðfest er að sex manns hafi farist þegar fellibylurinn Mocha gekk á land í Búrma (Mjanmar) en óttast er að mannskaðinn reynist mun meiri þegar uppi verður staðið. Svo virðist sem að nágrannaríkið Bangladess hafi farið betur út úr bylnum en útlit var fyrir á tímabili.
Fellibylurinn Mocha stefnir nú á strendur Bangladess og Búrma með sjávarflóðum á svæðum þar sem um tvær milljónir manna búa. Hundruð þúsundir manna hafa verið flutt af svæðinu fyrir komu bylsins.
Yfirvöld í Bangladess rannsaka nú eldsupptök í flóttamannabúðum Rohingja en eldurinn breyddist stjórnlaust um byggðina og nú eru um 12 þúsund flóttamenn án húsaskjóls.
Margar tískufataverslanir hafa greitt verksmiðjum í Bangladesh minna fyrir vörur en sem svarar framleiðslukostnaðinum. Sérfræðingur segir þetta koma niður á starfsmönnum verksmiðjanna.
Systkin frá Bangladess, sem misstu móður sína sviplega í sumar, eru harmi slegin vegna yfirvofandi brottvísunar. Þau segja það óyfirstíganlega tilhugsun að geta ekki vitjað leiðis móður þeirra, sem jörðuð er í Reykjavík. Lögmaður systkinanna segir óásættanlegt að vísa þeim úr landi nú.
Allir átta meðlimir áhafnar úkraínskrar Antonov An-12 fraktflugvélar sem hrapaði í Grikklandi í gær létust.
Að minnsta kosti 59 hafa farist í miklum flóðum og eldingaveðri sem gengið hefur yfir Indland og Bangladess síðustu daga.
Milljónir manna eru heimilislaus og 18 látnir eftir gríðarmikil flóð í Bangladess og norðausturhluta Indlands. Herir beggja landa hafa verið kallaðir út til að hjálpa fólki sem er strandað vegna flóðanna. Búist er við því að rigningin haldi áfram út helgina.
Minnst 49 eru látnir og hundruðir eru slasaðir eftir mikla sprengingu og eldsvoða á gámasvæði í Bangladess. Talið er að fjöldi látinna muni aukast á næstu sólarhringum.
Minnst 34 eru látin og hundruð til viðbótar eru alvarlega særð eftir mikla sprengingu og eld sem kviknaði á gámasvæði nálægt borginni Chittagong í Bangladess.
Mikill eldsvoði varð í Cox‘s Bazar flóttamannabúðunum í Bangladess síðastliðinn sunnudag. Búðirnar eru heimili þúsunda Rohingja sem flúið hafa ofsóknir og fjöldamorð í nágrannaríkinu Mjanmar.
Sex meðlimir íslamsks vígahóps voru dæmdir til dauða í Bangladess í morgun fyrir að hafa myrt tvo hinsegin aðgerðasinna fyrir fimm árum síðan.
Eldur kviknaði í matvælaverksmiðju í Bangladess í gær. Talið er að hluti fórnarlambanna hafi verið læstur inni í verksmiðjunni.
Karlmaður sem talinn er hafa drepið 70 tígrisdýr, sem eru í útrýmingarhættu, í Bangladess hefur verið handtekinn eftir 20 ára leit að honum.
Björgunarfólk hefur fundið að minnsta kosti fimmtán lík í brunarústum flóttamannabúða róhingja í sunnanverðu Bangladess. Þúsundir tjalda brunnu í eldsvoða sem kviknaði í búðunum í gær og fleiri en fjögur hundruð manns er enn saknað.
Þúsundir róhingja eiga nú engan stað til að halla höfði sínu vegna mikil eldsvoða sem blossaði upp í flóttamannabúðum þeirraí sunnanverðu Bangladess í dag. Hundruð tjalda hafa orðið eldinum að bráð og er óttast að fólk hafi farist.
Tveir hermenn, sem gerðust liðhlaupar frá her Mjanmar eða Búrma, hafa játað á myndbandsupptöku að yfirmenn þeirra hafi skipað þeim að fremja stríðsglæpi gegn Róhingjum.
Sextán manns hið minnsta eru látnir og rúmlega tuttugu slösuðust eftir að gassprenging varð við mosku í Dhaka, höfuðborg Bangladess.
Hið minnsta 32 eru látnir og fleiri er saknað eftir að ferja sökk í ána Buriganga við bangladessku höfuðborgina Dakka í dag.
Indverska borgin Kolkata er illa leikin eftir að fellibylurinn Amphan gekk þar yfir. Alls hafa 84 látist í Indland og Bangladess af völdum byljarins.
Fellibylurinn Amphan gekk á land á Indlandi og í Bangladess í dag. Bylurinn olli miklum flóðum og aurskriðum en þetta er öflugasti stormurinn sem herjar á svæðið í rúma tvo áratugi.
Úrhellisrigning og hvassviðri eru undanfari fellibylsins Amphan á austanverðu Indlandi og Bangladess. Fellibylurinn er sagður sá öflugasti á þessum slóðum í tvo áratugi og hefur milljónum manna verið gert að hafa sig á brot frá leið hans.
Indverjar og Bangladessar búa sig undir komu fellibylsins Amphan sem nálgast nú landi.