
Hvalfjarðargöng

Eigendum gert að fjarlægja skilti við Hvalfjarðargöng
Eigendum auglýsingaskiltis, sem hefur staðið í aldarfjórðung við norðurenda Hvalfjarðarganga, hefur verið gert að fjarlægja það. Skiltið hefur verið þrætuepli í Hvalfjarðarsveit um árabil.

Fylgdarakstur í Hvalfjarðargöngum vegna þrifa
Vegna þrifa verður fylgdarakstur í Hvalfjarðargöngum aðfaranætur 9. og 10. janúar frá miðnætti til sex um morguns.

Biluð rúta stoppaði umferð í göngunum
Löng bílaröð myndaðist við Hvalfjarðargöngin á tíunda tímanum í morgun vegna bilaðrar rútu inni í göngunum. Opnað var fyrir umferð upp úr klukkan hálf ellefu.

Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús
Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir harðan árekstur í Hvalfjarðargöngunum í dag. Bílarnir óku úr gagnstæðri átt og skullu saman. Bílarnir eru sennilega ónýtir.

Hvalfjarðargöngin opnuð á ný
Búið er að loka Hvalfjarðargöngunum vegna áreksturs. Sérfræðingur í samskiptum hjá Vegagerðinni segir að útlit sé fyrir að göngin verði lokuð í einhvern tíma og beinir fólki um Hvalfjarðarveginn.

Miklar tafir vegna slyss norðan Hvalfjarðargangna
Umferðarslys varð við Geldingaá á Vesturlandsvegi og búast má við umferðartöf.

Fjórir fluttir á slysadeild eftir árekstur í Hvalfjarðargöngum
Tveggja bíla árekstur varð í Hvalfjarðargöngum um klukkan eitt. Fjórir slösuðust og voru fluttir á slysadeild í Reykjavík, en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er enginn þeirra alvarlega slasaður.

Hvalfjarðargöngum aftur lokað
Búið er að loka Hvalfjarðargöngunum á nýjan leik, að þessu sinni vegna umferðaróhapps.

Hjólreiðamaður lokaði göngunum
Lokað var fyrir umferð um Hvalfjarðargöngin rétt eftir hádegi í dag, þegar í ljós kom að hjólreiðamaður væri í göngunum.

Fluttur á sjúkrahús eftir árekstur nærri Hvalfjarðargöngum
Einn var fluttur til skoðunar á sjúkrahúsi á Akranesi eftir árekstur tveggja fólksbíla á gatnamótum Vesturlandsvegar og Hvalfjarðarvegar nú síðdegis. Fimm manns voru í bílunum sem eru sagðir mikið skemmdir.

Biluð rúta í Hvalfjarðargöngum og lokað næstu tvær nætur
Biluð rúta olli því að loka þurfti Hvalfjarðargöngum um sexleytið í kvöld. Hvalfjarðargöngin verða einnig lokuð vegna vinnu frá miðnætti í kvöld þangað til 6:30 í fyrramálið. Göngin verða einnig lokuð á sama tíma aðfararnótt fimmtudags 6. júní. Hjáleið er um Hvalfjarðarveg (47).

Göngin lokuð á miðvikudagskvöld
Göngin um Hvalfjörð verða lokuð miðvikudaginn 15. maí frá klukkan 21til 23 vegna umfangsmikillar brunaæfingar á vegum Vegagerðarinnar, Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

Taka upp meðalhraðaeftirlit í Hvalfjarðargöngum
Á fimmtudag verður tekið í notkun meðalhraðaeftirlit í Hvalfjarðargöngunum. Hámarkshraði í Hvalfjarðargöngunum er 70 kílómetrar á klukkustund. Samskonar meðalhraðaeftirlit er að finna í göngum á milli Neskaupstaðar og Eskifjarðar og í Dýrafjarðargöngum.

Eldur í bíl og Hvalfjarðargöng lokuð
Umferðaróhapp varð í Hvalfjarðargöngum á fjórða tímanum í dag. Samkvæmt upplýsingum frá sjónarvotti beinir lögregla umferð í Hvalfjörðinn.

Bilaður bíll og umferð hleypt í gegn til skiptis
Hvalfjarðargöngin voru lokuð í tvo og hálfan tíma í morgun vegna bilaðs bíls. Umferð er nú hleypt í gegnum göngin til skiptis.

Þriggja bíla árekstur og Hvalfjarðargöng lokuð um tíma
Hvalfjarðargöng voru lokuð um óákveðinn tíma en þriggja bíla árekstur varð í göngunum. Þau hafa nú opnað aftur.

Hæg umferð í Hvalfjarðargöngum reynir á þolinmæði ökumanna
Mikil umferð hefur legið í gegnum Hvalfjarðargöngin á síðustu klukkustundum og náði löng bílaröð um tíma frá göngunum að Grundartanga.

Óvissa um næstu jarðgöng og hvernig þau verða fjármögnuð
Innviðaráðherra vill ekkert segja um það hvenær hægt verður að bjóða út næstu jarðgöng á Íslandi né hvort hann leggi til í nýrri samgönguáætlun að Fjarðarheiðargöng verði næst í röðinni. Óvissa ríkir um fjármögnun.

„Þá verður allt vitlaust á Akranesi“
Forseti bæjarstjórnar Akraness segir að það verði allt vitlaust í bænum, nái hugmyndir innviðaráðherra um gjaldtöku í jarðgöngum fram að ganga. Það gildi allt annað um Hvalfjarðargöngin en önnur göng, enda sé löngu búið að borga göngin upp.

Gjaldtaka hrein og bein svik við íbúa Akraness
Bæjarstjórn Akraness mótmælir þeim fyrirætlunum innviðaráðherra að hefja gjaldtöku í Hvalfjarðargöngunum til að fjármagna ný Fjarðarheiðargöng. Þá gerir bæjarstjórnin alvarlega athugasemd við að árskort í strætó hafi hækkað um tæplega hundrað þúsund krónur án samráðs við bæjarfélagið.

Hvalfjarðargöngunum lokað vegna bilaðs bíls
Lokað var fyrir umferð beggja megin við Hvalfjarðargöngin fyrr í kvöld. Er göngin voru opnuð á ný var um tíma var einungis hægt að keyra í átt að Akranesi en nú er einnig búið að opna fyrir umferð til Reykjavíkur.

Ökumaðurinn lést í slysinu við Hvalfjarðargöng
Karlmaður lést í bílslysi sem varð fyrir utan Hvalfjarðargöng um hálf átta í gærkvöldi. Að sögn vitna keyrði maðurinn á ofsahraða út af vegi og kastaðist úr bílnum.

Alvarlegt umferðarslys við Hvalfjarðargöng
Ökumaður sem sagður er hafa verið á flótta undan lögreglu lenti í alvarlegum árekstri við Hvalfjarðargöng um klukkan hálf átta í gærkvöldi. Sjónarvottur segir ökumanninn hafa kastast tíu metra frá slysstað í kjölfar árekstursins en bíllinn á að hafa flogið upp í loftið við höggið.

Hvalfjarðargöng með helming allrar umferðar um jarðgöng
Hvalfjarðargöng yrðu megingjaldstofn boðaðra jarðgangatolla stjórnvalda enda er umferð um þau álíka mikil og í öllum öðrum göngum hérlendis til samans. Sérfróðir menn áætla að gjaldið þyrfti að vera um helmingur af því meðalgjaldi sem var í Hvalfjarðargöngum.

Ráðherra boðar gjaldtöku í öllum jarðgöngum landsins
Gjaldtaka verður tekin upp í öllum jarðgöngum landsins á næsta eða þarnæsta ári. Innviðaráðherra boðar frumvarp um málið en tekjunum er ætlað að standa undir kostnaði við Fjarðarheiðargöng sem og önnur jarðgöng í framtíðinni.

Ný jarðgangagjöld áformuð til að greiða Fjarðarheiðargöng
Ríkið áformar að mæta ríflega helmingi 45 milljarða króna kostnaðar vegna Fjarðarheiðarganga með nýrri gjaldtöku af umferð um önnur jarðgöng í landinu. Samgöngufélagið segir að þetta gangi tæpast upp og að óforsvaranlegt sé að ráðast í útboð nema fyrir liggi með ótvíræðum hætti hvernig staðið verði að gjaldtökunni.

Hvalfjarðargöngin opnuð aftur eftir slys
Hvalfjarðargöngunum var lokað á sjönda tímanum í dag vegna slyss sem varð þar. Göngin voru þó opnuð aftur upp úr klukkan sjö.

Hvalfjarðargöngum lokað tvisvar með stuttu millibili vegna umferðaróhappa
Hvalfjarðargöngum var lokað tvisvar síðdegis með stuttu millibili vegna umferðaróhappa. Í fyrra skiptið voru þau lokuð í yfir klukkustund en í það seinna í 40 mínútur. Ökumenn fóru út úr bílum sínum til að kaupa ís af ísbílnum sem sat einnig fastur.

Hvalfjarðargöngin eru að loka klukkan tíu og við verðum að drífa okkur heim
Jón Þór Hauksson, þjalfari ÍA, var gríðarlega svekktur í leikslok eftir að KR hafði jafnað metin 3-3 í uppbótartíma í leik liðanna í kvöld. ÍA komst tvisvar yfir í leiknum en fóru ekki heim með nema eitt stig.

Hvalfjarðargöng lokuð eftir umferðaróhapp
Hvalfjarðargöngin eru nú lokuð vegna umferðaróhapps. Ekki er vitað hversu lengi göngin verða lokuð.