

Sprengjuleitarhundar eru sérlega eftirsóttir.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Sigríði Björk Guðjónsdóttur í embætti ríkislögreglustjóra.
Óskýr valdmörk í skipulagi lögreglu hafa valdið vaxandi togstreitu um yfirstjórnunarhlutverk ríkislögreglustjóra á undanförnum árum.
Ljóst er að hæfnisnefnd mun hafa úr nokkrum fjölda umsækjenda að velja þegar ráðist verður í það verkefni að velja nýjan ríkislögreglustjóra.
Páll Winkel, fangelsismálastjóri, hefur sótt um stöðu ríkislögreglustjóra.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hefur sótt um stöðu ríkislögreglustjóra.
Kjartan Þorkelsson tók við sem settur Ríkislögreglustjóri um áramót. Kjartan mætti sinn fyrsta dag til vinnu hjá embættinu í dag. Samhliða þessum breytingum tóku tímabundið til starfa nýr vararíkislögreglustjóri og yfirlögregluþjónn.
Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og áhrifamaður í Sjálfstæðisflokknum til lengri tíma, er á þeirri skoðun að Sjálfstæðisflokkurinn hafi komið illa fram við Harald Johannessen, son hans og ríkislögreglustjóra.
Sæl Áslaug Arna. Andartak jókst álit mitt á þér þegar fréttir bárust af því að Haraldur Johannessen hefðibeðist lausnar frá embætti.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og Helga Vala Helgadóttir formaður velferðarnefndar ræddu mál fráfarandi ríkislögreglustjóra í Víglínunni.
Kostnaður ríkisins vegna starfslokasamnings Haraldar Johannessens, fráfarandi ríkislögreglustjóra, er talinn verða 56,7 milljónir króna með launatengdum gjöldum.
Svar hefur borist frá Dómsmálaráðuneytinu.
Fjárlaganefnd Alþingis hefur óskað eftir svörum frá dómsmálaráðherra um starfslokasamning ríkislögreglustjóra. Nefndin vill meðal annars vita hvernig samningurinn sé fjármagnaður og hver heildarupphæðin sé
Óskað hefur verið eftir því að starfslokasamningur Haraldar Johannessen verði tekinn fyrir í fjárlaganefnd Alþingis. Ríkislögreglustjóri fær greiddar 47 milljónir króna eftir starflok.
Alvarlegar athugasemdir voru gerðar við starfslokasamning dómsmálaráðherra við ríkislögreglustjóra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.
Óboðlegt er að aðrar leikreglur gildi um embættismenn hjá ríkinu en annað vinnandi fólk að sögn formanns VR. Hann fordæmir háa starfslokagreiðslu til ríkislögreglustjóra.
Ríkislögreglustjóri verður í sérverkefnum í dómsmálaráðuneytinu í þrjá mánuði eftir að hann lætur af embætti um áramót
Haraldur Johannessen, fráfarandi ríkislögreglustjóri, verður á óskertum launum og starfskjörum sem hann hefur haft til 30. júní 2021. Í kjölfar þess verður hann á biðlaunum til loka sama árs.
Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri á Suðurlandi, hefur verið skipaður tímabundið í embætti ríkislögreglustjóra en Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, tilkynnti á blaðamannafundi í hádeginu að Haraldur Johannessen hefði sagt af sér.
Embættið verður auglýst til umsóknar eins fljótt og auðið er.
Áslaug Arna Sigurbjörnsson dómsmálaráðherra mun fjalla um málefni lögreglu á blaðamannafundi klukkan 13 í dag í Ráðherrabústaðnum. Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu í morgun kom ekkert nánar fram um efni fundarins.
Haraldur Johannessen hættir sem ríkislögreglustjóri um áramótin.
Áslaug Arna Sigurbjörnsson dómsmálaráðherra mun fjalla um málefni lögreglu á blaðamannafundi klukkan 13 í dag í Ráðherrabústaðnum.
Sameining embættis ríkislögreglustjóra, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum gæti haft áhrif á stöður þriggja lögreglustjóra. Lögreglustjórar allra umdæma funduðu með dómsmálaráðherra í dag vegna breytinga sem ráðherra hyggst gera á löggæslu.
Fyrirhugaðar skipulagsbreytingar innan lögreglunnar snúa að yfirmönnum og fela óhjákvæmilega í sér einhverjar hagræðingar. Þetta segir dómsmálaráðherra. Þess fyrir utan ættu almenn störf ekki að ekki að tapast.
Í skýringum dómsmálaráðuneytisins á hvers vegna ríkislögreglustjóri var ekki áminntur vegna samskipta við tvo fjölmiðlamenn kemur fram að hann hafi misskilið ákvæði laga sem hann vísaði til.
Áslaug tekur undir að fjölmiðlafárið sé að miklu leyti komið til vegna þess að Haraldur sjálfur fór í umrætt viðtal og segist hún hafa verið ósátt við framgöngu hans í viðtalinu.
Tólf yfir- og aðstoðaryfirlögregluþjónum hjá embætti ríkislögreglustjóra bjóðast nú betri launakjör en áður eftir að samkomulag þess efnis var gert í ágústmánuði.
Ráðuneytisstjóri dómsmálráðuneytisins mun í þessari viku funda með ríkislögreglustjóra og öllum lögreglustjórum landsins þar sem breytingar á löggæslu í landinu verða kynntar. Framtíð Embættis ríkislögreglustjóra liggur ekki fyrir.
Hreinn Loftsson, sem ráðinn var aðstoðarmaður dómsmálaráðherra í dag, er ekki lengur lögmaður annars blaðamannsins sem kvartaði undan framgöngu Haraldar Johannessen, ríkislögreglustjóra.