HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Handknattleikssamband Íslands hefur ráðið Roland Val Eradeze sem markmannsþjálfara A-landsliðs karla. Hann var í teymi Íslands á HM en hefur nú verið formlega ráðinn. HSÍ greindi frá þessu í dag, mánudag. Handbolti 12.5.2025 18:00
Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Það verður dregið í riðla fyrir EM 2026 í vikunni og nú er ljóst að strákarnir okkar verða í öðrum styrkleikaflokki. Handbolti 12.5.2025 15:45
Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik Það er ekki aðeins íslenska handboltasambandið sem er að skipta um formann sambandsins eftir langa veru í embættinu. Handbolti 12.5.2025 11:30
Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Aldís Ásta Heimisdóttir og félagar hennar í Skara héldu sigurgöngu sinni áfram í úrslitakeppninni og eru komnar í 2-0 í úrslitaeinvíginu á móti Savehöf. Handbolti 9. maí 2025 18:48
Alfreð reiður út í leikmenn sína Þýskir miðlar segja frá því að Alfreð Gíslason, þjálfari þýska landsliðsins í handbolta, hafi verið allt annað en sáttur við suma af leikmönnum sínum eftir 32-32 jafnteflið við Sviss í fyrrakvöld. Handbolti 9. maí 2025 08:31
Frá Eyjum til Ísraels Handboltamarkvörðurinn Pavel Miskevich sem varið hefur mark ÍBV síðustu ár hefur ákveðið að yfirgefa Vestmannaeyjar og halda til Ísraels. Handbolti 8. maí 2025 14:31
Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Einn markahæsti leikmaður Olís-deildar karla í handbolta í vetur, Jón Ómar Gíslason, er genginn í raðir Hauka frá Gróttu. Handbolti 8. maí 2025 10:55
Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Króatinn Ivan Horvat, leikmaður Alpla Hard í Austurríki, hefur verið dæmdur í fordæmalaust bann vegna grófs brots sem átti sér stað í leik við Bregenz á dögunum. Bannið er til 26 mánaða. Handbolti 8. maí 2025 10:31
Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Króatíska karlalandsliðið í handbolta hélt sigurgöngu sinni áfram í undankeppni EM í handbolta í kvöld. Handbolti 7. maí 2025 19:50
Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Ísland lagði Bosníu ytra í undankeppni EM 2026 nú í kvöld. Svo fór að lokum að Ísland vann afar sannfærandi níu marka sigur. Lokatölur 34-25 fyrir Ísland. Íslenska liðið tryggði sig á EM í fjórum leikjum en hefur nú unnið alla fimm leiki sína í undankeppninni. Handbolti 7. maí 2025 19:40
Efla eftirlit með áfengissölu á íþróttaleikjum Misbrestur er á að leyfi íþróttafélaga til aðhvað selja áfengi á kappleikjum sínum séu í lagi og dæmi eru um að lögregla hafi verið kölluð til vegna átaka. Lögreglan ætlar að efla eftirlit með áfengissölu á íþróttaviðburðum. Innlent 7. maí 2025 19:09
Alfreð kom Þjóðverjum á EM Þýska karlalandsliðið í handbolta tryggði sér í kvöld sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins á næsta ári en liðinu nægði jafntefli á útivelli á móti Sviss. Handbolti 7. maí 2025 18:49
Önnur landsliðskona leysir Þóreyju Rósu af hólmi Framarar voru ekki lengi að tilkynna um arftaka Þóreyjar Rósu Stefánsdóttur, í stöðu hægri hornamanns, eftir að Þórey spilaði sinn síðasta handboltaleik á mánudaginn. Handbolti 7. maí 2025 13:18
Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Ráðning Handknattleikssambands Íslands á Þóri Hergeirssyni í stöðu ráðgjafa í afreksmálum hefur vakið athygli í handboltaheiminum og er víða fjallað um hana, sérstaklega á Norðurlöndum. Handbolti 7. maí 2025 10:31
Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta landsleiknum Landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson hefur valið þá sextán leikmenn sem mæta Bosníu ytra í kvöld, klukkan 18 að íslenskum tíma, í næstsíðasta leik Íslands í undankeppni EM. Handbolti 7. maí 2025 10:15
„Þessi vegferð hefur verið draumi líkust“ „Ég mun aldrei sjá eftir þessari ákvörðun," segir Sólveig Lára Kjærnested sem hefur, eftir stöðug framfaraskref síðustu þrjú ár með kvennalið ÍR í handbolta, sagt starfi sínu lausu. Óvíst er hvort framhald verði á þjálfaraferli hennar. Handbolti 7. maí 2025 08:00
Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Kvennalið Hauka í handboltanum er byrjað að styrkja sig fyrir næstu leiktíð þótt liðið sé enn í miðri úrslitakeppni þar sem liðið mætir Val í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Handbolti 6. maí 2025 19:15
Aldís Ásta frábær í fyrsta úrslitaleiknum um titilinn Aldís Ásta Heimisdóttir og félagar hennar í Skara byrjuðu úrslitaeinvígið um sænska meistaratitilinn vel í kvöld. Akureyrarmærin átti líka mjög góðan leik en stuttu fyrir leik var það tilkynnt að hún verður í eitt tímabil í viðbót hjá Skara. Handbolti 6. maí 2025 18:43
Haukakonur í lokaúrslitin á móti Val Haukar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Olís deild kvenna í handbolta. Handbolti 5. maí 2025 21:09
Bjarki kallaður inn í landsliðið Bjarki Már Elísson hefur verið kallaður inn í landsliðið fyrir síðustu tvo leikina í undankeppni EM í handbolta. Handbolti 5. maí 2025 11:47
Sólveig Lára hætt með ÍR Sólveig Lára Kjærnested er hætt sem þjálfari kvennaliðs ÍR í handbolta eftir frábæran árangur á síðustu þremur árum. Handbolti 5. maí 2025 10:02
Gríðarlega spenna á toppnum en stórleikur Viggós dugði ekki til Melsungen vann Rhein-Neckar Löwen, 25-22, í þýsku úrvalsdeildinni í dag og fór tímabundið á topp hennar. Handbolti 4. maí 2025 16:20
„Borgar þrjátíu en færð hundrað prósent“ HSÍ tilkynnti í gær um ráðningu Þóris Hergeirssonar til sambandsins sem ráðgjafa í afreksmálum. Hann verður í 30 prósent starfi en kveðst munu beita sér 100 prósent. Þá er hann stoltur af því að geta skilað af sér til íslensks handbolta. Handbolti 4. maí 2025 08:02
Kolstad rétti úr kútnum og komst í úrslit Norsku meistararnir í Kolstad komust í úrslitaeinvígið þriðja árið í röð eftir að hafa snúið gengi sínu við í undanúrslitaeinvíginu gegn Nærbø. Handbolti 3. maí 2025 18:16