Arion banki
3 4 5 6 7 8 … 8 ›
Arion breytir vöxtum Arion banki hefur ákveðið að að lækka vexti á verðtryggðum íbúðalánum sem bera breytilega vexti frá og með deginum í dag um 0,15 prósent og verða því 2,79 prósent. Þetta á við um lán sem þegar hafa verið veitt og ný útlán. Viðskipti innlent 10.5.2023 09:50
Útlit fyrir bætta afkomu bankanna á grunni stóraukinna vaxtatekna Greinendur telja að rekstur Íslandsbanka muni batna verulega á milli ára á fyrsta ársfjórðunga og sama skapi er útlit fyrir að rekstur Arion banka muni ganga enn betur en fyrir ári. Vaxtatekjur Íslandsbanka hafa aukist mikið síðustu fjórðunga og spá greinendur að sá mikli vöxtur haldi áfram. Því er útlit fyrir að hagnaður stóru viðskiptabankanna tveggja sem skráðir eru í Kauphöll muni aukast á fyrsta ársfjórðungi og að arðsemi eiginfjár verði yfir markmiðum stjórnenda þeirra. Innherji 24.4.2023 16:56
Bankarnir „reiða sig“ helst til of mikið á evrópska skuldabréfafjárfesta Þegar kemur að fjármögnun á erlendum mörkuðum þá hafa íslensku bankarnir að undanförnu gert sér grein fyrir því að þeir eru að treysta of mikið á evrópska fjárfesta, að sögn bankastjóra Arion, sem telur að bankarnir hafi góða sögu að segja og mikilvægt sé reyna ná til breiðari hóps erlendra skuldabréfafjárfesta. Væntingar eru sömuleiðis um að lífeyrissjóðirnir fari að sýna meiri áhuga á að kaupa skuldabréf á bankanna. Innherji 24.4.2023 10:45
Hvetur hluthafa að tryggja að bankinn geti boðið „samkeppnishæf“ starfskjör Bankastjóri Landsbankans brýnir hluthafa, þar sem íslenska ríkið er fyrirferðarmest með 98 prósenta hlut, og bankaráð að „sjá til þess“ að bankinn sé samkeppnishæfur þegar kemur að kjörum starfsfólks. Forsvarsmenn Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) gagnrýndu hvernig staðið var að kjaraviðræðum við bankastarfsmenn fyrr í vetur á nýlega afstöðnum aðalfundum Íslandsbanka og Landsbankans og varaformaður samtakanna sagði mikilvægt að koma á fót kaupaukakerfi hjá Íslandsbanka. Innherji 15.4.2023 15:25
Engin viðlíka ákvæði um kveikjuviðburð í AT1-bréfum bankanna AT1-gerningar Arion banka og Íslandsbanka nytu ávallt forgangs fram yfir hlutafé ef á það myndi reyna en í skilmálum skuldabréfanna er ekki að finna sambærileg ákvæði í skilmálum sömu bréfa hjá Credit Suisse. Þetta kemur fram í svari frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands við fyrirspurn Innherja. Innherji 5.4.2023 11:02
Norski olíusjóðurinn seldi stóran hluta eigna sinna í íslenskum ríkisbréfum Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingasjóður í ríkiseigu í heiminum, seldi nærri helming allra skuldabréfa sem hann átti á íslenska ríkið á liðnu ári á sama tíma og hann jók talsvert við stöðu sína í skuldabréfum á bankanna hér á landi. Verðbréfaeign sjóðsins á Íslandi, sem nemur jafnvirði um 30 milljarðar króna, hélst nánast óbreytt á milli ára. Innherji 5.4.2023 07:01
Arion viðurkennir brot og greiðir tugi milljóna Arion banki hefur viðurkennt brot sín á banni við uppgreiðslugjöldum á lánum til lítilla fyrirtækja. Forsvarsmenn bankans sýndu ríkan samstarfsvilja á meðan rannsókn Samkeppniseftirlitsins á málinu stóð yfir og hafði það verulega þýðingu við mat á fjárhæð sekta. Viðskipti innlent 4.4.2023 16:52
Helga Lára og Hjalti Már ráðin til fyrirtækjaráðgjafar Arion Helga Lára Hauksdóttir og Hjalti Már Hauksson hafa verið ráðin til fyrirtækjaráðgjafar Arion banka. Viðskipti innlent 31.3.2023 13:14
Arion hækkar vextina Arion banki hefur hækkað inn- og útlánsvexti bankans í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands í síðustu viku. Viðskipti innlent 29.3.2023 09:40
Arion banki fyrstur til að hækka vexti Arion banki er fyrsti bankinn til að hækka vexti í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans um að hækka stýrivexti um heilt prósentustig. Hækkunin nær einungis til einnar tegundar lána en breytingar á öðrum vöxtum verða tilkynntar á næstu dögum. Viðskipti innlent 23.3.2023 17:49
Bankanum liggur á að „sýna fram á árangur“ fyrir næstu kjarasamninga Ákvörðun peningastefnunefndar um að hækka vexti um eina prósentu, umfram væntingar markaðsaðila, virðist hafa grundvallast á þeirri sýn nefndarinnar að það væri betra að „rífa plásturinn af“ með stóru skrefi áður en aðrir seðlabankar skipta hugsanlega um gír vegna óróa á erlendum mörkuðum, að sögn aðalhagfræðings Arion banka. Hún gagnrýnir seðlabankastjóra fyrir rýr svör um framvirka leiðsögn og segir sumpart misvísandi skilaboð hans og varaseðlabankastjóra mögulega til marks um „togstreitu“ innan peningastefnunefndar. Innherji 23.3.2023 11:29
Konráð til liðs við nýja greiningardeild Arion banka Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur og efnahagsráðgjafi Samtaka atvinnulífsins á meðan síðustu kjarasamningaviðræðum stóð, hefur gengið til liðs við Arion banka en í kjölfarið kemur bankinn á fót nýrri greiningardeild, Arion greiningu, undir sviðinu Mörkuðum. Klinkið 23.3.2023 09:31
Stjórnendur Arion segja „hamlandi starfsumhverfi“ kalla á meiri vaxtamun Æðstu stjórnendur Arion gagnrýndu „hamlandi starfsumhverfi“ hér á landi á aðalfundi bankans í gær, sem þýddi að vaxtamunur þyrfti að vera hærri en ella til að ná fram sambærilegri arðsemi og erlendir keppinautar þeirra, og kölluðu eftir því að stjórnvöld myndu „jafna leikinn.“ Íslenskir bankar greiddu í fyrra um 70 til 80 prósent meira í heildarskatta borið saman við aðra norræna banka, að sögn bankastjóra Arion. Innherji 16.3.2023 10:21
Sitja ekki á óinnleystu tapi vegna skuldabréfa sem hafa lækkað í verði Íslensku viðskiptabankarnir fjórir sitja ekki á neinu óinnleystu tapi í bókum sínum í tengslum við mörg hundruð milljarða króna eign þeirra í skuldabréfum en ólíkt því sem átti við um Silicon Valley Bank (SVB), sem varð gjaldþrota fyrir helgi, eru slík verðbréf metin á markaðsvirði í reikningum bankanna hér á landi. Margir evrópskir bankar beita hins vegar sömu aðferð og SVB þar sem skuldabréfasafn þeirra er metið á kostnaðarverði en meðal annars vegna sterkrar lausafjárstöðu er ólíklegt að bankarnir neyðist til að selja þau bréf með afföllum, samkvæmt nýrri greiningu Moody´s. Innherji 15.3.2023 07:01
Najkorzystniejsze opcje oszczędzania? Bez wątpienia wszyscy zgodzimy się, że oszczędzanie jest korzystne, ale czy jedna forma oszczędzania jest korzystniejsza od innej? Snædís Ögn Flosadóttir, dyrektor operacyjny Lífeyrisauka, przybliża i tłumaczy opcje dodatkowych oszczędności emerytalnych, które są rodzajem prywatnych oszczędności. Samstarf 11.3.2023 10:40
Hagstæðasti sparnaðurinn? Við getum eflaust öll verið sammála um að hagkvæmt sé að leggja fyrir en er eitt sparnaðarform hagstæðara en annað? Snædís Ögn Flosadóttir, rekstrarstjóri Lífeyrisauka, fræddi okkur um viðbótarlífeyrissparnað sem er ein tegund séreignarsparnaðar. Samstarf 11.3.2023 09:51
Bankastjóri Arion: Ættum að njóta sömu lánskjara og önnur norræn ríki Ísland ætti á komandi árum að geta séð fram á betri fjármögnunarkjör á erlendum lánamörkuðum samhliða væntingum um að hugverkaiðnaður verði brátt ein helsta útflutningsstoð hagkerfisins, að sögn bankastjóra Arion. Fyrirliggjandi þjóðhagsspár vanmeta áætlanir um vöxt útflutningstekna og því eru líkur á að „hagvaxtarhorfur séu allt aðrar og miklu betri“. Innherji 10.3.2023 10:22
Gildi sér engin rök fyrir nýjum reglum um tilnefningarnefndir Gildi lífeyrissjóður hallast að því að nýleg lagaákvæði, sem lögfesta setu stjórnarmanns í tilnefningarnefndum banka og fela nefndunum það hlutverk að leggja mat á störf framkvæmdastjóra, þarfnist endurskoðunar. Enginn haldgóður rökstuðningur sé fyrir þessum breytingum og reynslan sýni að almennt sé óheppilegt að stjórnarmenn sitji í tilnefningarnefndum. Innherji 8.3.2023 06:58
Markaðshlutdeild Varðar tvöfaldast á tíu árum og Sjóvá jók hlutdeild sína Markaðshlutdeild Varðar hefur vaxið hratt á síðustu árum á sama tíma og TM og VÍS hafa verið að gefa eftir. Forstjóri tryggingafélagsins segir enn tækifæri til vaxtar, einkum á fyrirtækjamarkaði, en ætla má að markaðsvirði Varðar hafi fjórfaldast frá kaupum Arion banka fyrir hartnær sex árum síðan. Innherji 3.3.2023 07:24
Ráðin forstöðumaður fjármála- og rekstrarsviðs Fossa Fossar fjárfestingarbanki hafa ráðið til sín Heiðrúnu Haraldsdóttur sem forstöðumann fjármála- og rekstrarsviðs. Viðskipti innlent 1.3.2023 08:47
Ný bílalán í methæðum árið 2022 og Arion sópaði til sín hlutdeild Ný bílalán banka til heimila námu ríflega 24 milljörðum króna á árinu 2022 og hafa aldrei verið meiri á einu ári. Ekki eru enn komin fram merki um að vaxtahækkanir síðustu missera hafi haft afgerandi áhrif á eftirspurn eftir bílalánum. Innherji 22.2.2023 14:51
Guðjón hættir hjá Arion banka Guðjón Kjartansson, sem hefur verið í fyrirtækjaráðgjöf Arion um nokkurt skeið, hefur sagt upp störfum hjá bankanum. Klinkið 20.2.2023 19:01
Lækkandi lausafjárhlutföll knúðu fram aukna samkeppni um innlán Samkeppni viðskiptabanka um innlán hefur aukist í takt við lækkandi lausafjárhlutföll bankanna og hefur þessi aukna samkeppni leitt til þess að vaxtamunur hefur minnkað nokkuð. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í verðmati greiningarfyrirtækisins Jakobsson Capital á Arion banka. Innherji 20.2.2023 11:58
Arion hækkar sömuleiðis vextina Arion banki hefur tilkynnt um hækkun inn- og útlánsvaxta í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans. Vaxtabreytingarnar taka gildi næstkomandi þriðjudag, 21. febrúar. Viðskipti innlent 17.2.2023 14:31
Innistæðueigendur leggja minnst 21 milljón af mörkum til ESG Innistæður á grænum innlánsreikningum Arion banka eru í miklum vexti. Samkvæmt nýbirtri sjálfbærniskýrslu bankans hefur safnast rúmlega 21 milljarður á grænu reikningana en til samanburðar stóðu grænu innlánin í 8 milljörðum króna í lok árs 2021. Klinkið 16.2.2023 11:32
Björn nýr framkvæmdastjóri hjá Arion banka Björn Björnsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka. Hann mun hefja störf þann 6. mars næstkomandi. Viðskipti innlent 15.2.2023 16:43
Siggeir og Albert frá Landsbankanum til Arion Siggeir Vilhjálmsson og Albert Guðmann Jónsson hafa hafið störf á viðskiptabankasviði Arion banka. Viðskipti innlent 10.2.2023 09:10
Aðalhagfræðingur Arion: Seðlabankastjóri tapaði miklum trúverðugleika Aðalhagfræðingur Arion banka segir að Peningastefnunefnd Seðlabankans – og ekki síst formaður hennar, seðlabankastjóri – hafi tapað miklum trúverðugleika „eftir síðustu fundi, boltasendingar og væntingastjórnun.“ Trúverðugleiki sé eitt það mikilvægasta sem Seðlabankinn hafi í baráttunni gegn verðbólgu og verðbólguvæntingum. Því miður hafi honum verið „sólundað að undanförnu.“ Að mati aðalhagfræðingsins hafi stýrivaxtahækkun gærdagsins verið of mikil og tónn Seðlabankans of harður. Innherji 9.2.2023 12:06
Arion hagnaðist um fimm milljarða Arion banki hagnaðist um rúma fimm milljarða króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Á sama tímabili árið 2021 var hagnaðurinn rúmir 6,5 milljarðar króna. Viðskipti innlent 8.2.2023 23:47
Stóru samlegðartækifærin á bankamarkaði liggja í gegnum Kviku Útlit er fyrir frekari samruna á fjármálamarkaði þar sem stjórnendur keppast við að leita leiða til hagræðingar á tímum hækkandi launakostnaðar og erfiðari markaðsaðstæðna. Sum af stærri fjármálafyrirtækjum landsins hafa að undanförnu mátað sig við hvort annað sem hefur nú leitt til þess stjórn að Íslandsbanka, sem fundar á morgun, mun væntanlega samþykkja ósk Kviku banka um að hefja samrunaviðræður milli félaganna. Óformlegt samtal um að sameina Kviku og Arion banka, sem margir höfðu spáð fyrir um, skiluðu ekki árangri en blessun frá Samkeppniseftirlitinu við slíkum bankasamruna gæti reynst þrautin þyngri. Innherji 8.2.2023 06:00