Saltdreifaramálið

Kannabissérfræðingurinn kom að ræktun á öðrum sveitabæ
Geir Elí Bjarnason hefur verið dæmdur til 27 mánaða fangelsisvistar fyrir fíkniefnabrot með því að framleiða kannabisefni. Um er að ræða tvö mál, annars vegar kannabisræktun á sveitabænum Hjallanesi, sem er miðlægur í Saltdreifaramálinu svokallaða, og hins vegar kannabisræktun á öðrum sveitabæ. Fimm aðrir hafa hlotið dóm í síðara málinu.

Fengu ábendingu um Guðlaug, Halldór og Svedda Tönn
Lögreglu grunar að Guðlaugur Agnar Guðmundsson, Halldór Margeir Ólafsson og Sverrir Þór Gunnarsson séu lykilmenn í stóra kókaínmálinu sem nú er til aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Enginn þeirra hefur þó verið ákærður í málinu.

Þungir dómar í Saltdreifaramálinu staðfestir
Hæstiréttur hefur staðfest átta og tíu ára fangelsisdóma yfir tveimur mönnum í saltdreifaramálinu svokallaða.

Saltdreifaramálið fer fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur samþykkt málskotsbeiðni tveggja manna sem hlutu þunga fangelsisdóma í Saltdreifaramálinu svokallaða.

Dómar í saltdreifaramálinu mildaðir um tvö ár
Dómar þeirra Halldórs Margeirs Ólafssonar og Ólafs Ágústs Hraundal fyrir hlut þeirra í saltdreifaramálinu svokallaða voru mildaðir um tvö ár í Landsrétti í dag. Í héraði voru þeir dæmdir til þyngstu mögulegu refsingar, tólf ára fangelsisvistar. Aðrir dómar í málinu voru einnig mildaðir um tvö ár og einn var skilorðsbundinn.

Krefst þyngingar á þyngstu fíkniefnadómum sögunnar
Saksóknari krefst þess að dómar yfir sakborningum í saltdreifaramálinu svokallaða verði þyngdir. Tveir sakborningar hlutu tólf ára fangelsisdóm í málinu sem eru þyngstu dómar sem fallið hafa í í fíkniefnamáli hér á landi.

Dómar í saltdreifaramálinu þyngstu dómar sem fallið hafa í fíkniefnamáli
Þyngstu dómar sem fallið hafa í fíkniefnamáli hér á landi féllu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Það voru tveir sakborningar í Saltdreifaramálinu svokallaða sem hlutu dómana, sem hljóða upp á tólf ára fangelsi. Þrír aðrir voru dæmdir í fangelsi og verjendur hafa þegar ákveðið að áfrýja dómnum.

Þungir dómar í saltdreifaramáli
Sakborningar í Saltdreifaramálinu svokallaða fengu þyngstu mögulegu refsingu í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar dómur í málinu var kveðinn upp í dag. Tveir hlutu tólf ára fangelsi sem er þyngsti dómur sem fallið hefur í fíkniefnamáli hér á landi. Refsiramminn var því verið fullnýttur.

Fara fram á hámarksfangelsisdóm í saltdreifaramálinu
Ákæruvaldið fer fram á hámarksfangelsisdóm yfir þeim sem ákærðir eru fyrir innflutning á fíkniefnum í saltdreifara og umfangsmikla kannabisræktum. Farið er fram á tveggja ára fangelsi á einn mann sem sá um fræðilega hlið ræktunarinnar.

Notuðu hestamennsku sem yfirvarp fyrir kannabisræktun
Fjórir karlmenn eru ákærðir fyrir mjög umfangsmikla kannabisræktun á bóndabæ á Suðurlandi. Samkvæmt vitnisburði lögreglunnar átti húsráðandi, sem ekkert vit hafði á kannabisræktun, samskipti við annan höfuðpaur ræktunarinnar með hestamennskudulmáli.

Lögreglumenn lýstu lygilegum rannsóknaraðferðum
Lögreglumenn lýstu því fyrir dómi í gær hvernig þeir notuðu gögn frá Europol til að tengja tvo íslenska menn við huldumenn á netinu sem skipulögðu einn umfangsmesta fíkniefnainnflutning Íslandssögunnar.

Neita að hafa átt dulkóðuð samskipti í saltdreifaramálinu
Aðalmeðferð í saltdreifaramálinu svokallaða hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Um er að ræða eitt stærsta mál sinnar tegundar hér á landi og er talið tengjast gríðarstóru peningaþvættismáli, sem er nú til rannsóknar.

Neituðu og játuðu sök á víxl í risavöxnu dópmáli
Sakborningar í þremur risavöxnum dópmálum, sem eru ákærðir fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi, neituðu og játuðu sök á víxl þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Fimm eru ákærðir í málinu en tveir sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið.

Vildu ekki sprengja upp risavaxið dópmál heldur fylgdust þolinmóð með
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur fimm íslenskum karlmönnum, fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi. Um er að ræða nokkur mál, sem lögregla segir sum með þeim stærstu sinnar tegundar hér á landi. Meðal þess sem greinir í ákæru er innflutningur á tugum lítra af amfetamínbasa, sem faldir voru í saltdreifara sem kom til landsins með Norrænu.

Vill vægari kröfur um gæsluvarðhald
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu kallar eftir auknum heimildum lögreglu til að takast á við skipulagða brotastarfsemi, líkt og þá sem greint var frá í dag en lögregla lagði nýlega hald á mesta magn fíkniefna sem hún hefur gert á Íslandi í einu og sama máli.

Eitt mesta magn fíkniefna sem lögregla hafi lagt hald á
Lögreglan hefur lagt hald á gríðarlegt magn fíkniefna og handtekið tíu manns í tengslum við tvær umfangsmiklar rannsóknir á skipulagðri brotastarfsemi.

Svona var blaðamannafundur lögreglu vegna tveggja umfangsmikilla rannsókna
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu boðaði til blaðamannafundar í dag klukkan 14. Fjallað var um aðgerðir lögreglu vegna skipulagðrar brotastarfsemi hér á landi og greint frá tveimur umfangsmiklum rannsóknum lögreglu í málaflokknum.

Höfuðpaurinn úr Stóra fíkniefnamálinu meðal sakborninga
Höfuðpaurinn úr Stóra fíkniefnamálinu frá því um aldamót situr nú í gæsluvarðhaldi, grunaður um umfangsmikil fíkniefnabrot sem lögreglan hefur rannsakað síðustu mánuði.

Fimm í gæsluvarðhald í aðgerðum gegn skipulagðri glæpastarfsemi
Fimm sitja í gæsluvarðhaldi eftir aðgerðir lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn skipulagðri brotastarfsemi, sem ráðist var í fyrir helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglubílar skemmdir eftir eftirför
Skemmdir urðu á sérsveitarbíl og lögreglubíl eftir eftirför við ökumann pallbíls sem lauk við brúna yfir Reykjanesbraut við Stekkjarbakka í morgun. Eftirför hófst eftir að ökumaður pallbílsins virti ekki stöðvunarskyldu og er hann grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna.