Danir klófestu fimmta sætið Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2015 17:46 Guðmundur Guðmundsson þjálfar danska liðið. Vísir/Eva Björk
Danmörk vann Króatíu, 28-24, í leik um fimmta sætið á HM í handbolta í Katar í dag. Danir leiddu allan tímann en Króatar gerðu harða atlögu að forystu þeirra á lokamínútum leiksins. Óljóst er hversu mikilvægt það var að landa fimmta sætinu þar sem Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur ekki enn gefið út hvort að sama fyrirkomulag verði á undankeppni ÓL 2016 og síðustu ár.Sjá einnig: Guðmundur: Vitum ekki hvað við erum að spila um Danmörk tapaði aðeins einum leik allt mótið en það var fyrir Spánverjum í 8-liða úrslitum keppninnar. Liðið gerði þó tvö jafntefli í riðlakeppninni. Eftir jafnar upphafsmínútur í dag tóku Danir yfirhöndina með því að skora fjögur mörk í röð og breyta stöðunni úr 4-4 í 8-4. Króatar virtust fremur áhugalausir um leikinn en staðan að loknum fyrri hálfleik var 15-11. En í síðari hálfleik leit út fyrir að Danir væru ekki með hugann við leikinn. Liðið tapaði óvenjumörgum boltum og Króatar voru búnir að minnka muninn í tvö mörk, 18-16, áður en langt var um liðið. Danir vöknuðu þá til lífsins áður en Króatar náðu enn og aftur að koma til baka. Þeir síðarnefndu fengu tækifæri til að minnka muninn í eitt mark þegar um tíu mínútur voru eftir en þá kom Niklas Landin í mark Dana og sá til að það kom aldrei til þess. Hann var frábær þessar síðustu tíu mínútur leiksins. Mikkel Hansen átti stórleik í sókninni og skoraði átta glæsileg mörk fyrir danska liðið. Mads Christiansen kom næstur með þrjú mörk.
HM 2015 í Katar Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Steinunn hætt í landsliðinu Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Sjá meira