Friðlýsing forsætisráðherra sögð markleysa Jakob Bjarnar skrifar 23. október 2015 11:24 Í stefndi að friðun hafnargarðsins kostaði milljarða-skaðabótamál á hendur ríkinu. En, sennilega sleppur það því bréfið barst of seint. visir/gva
Friðlýsing forsætisráðherra á gamla hafnargarðinn við Austurbakka í Reykjavík barst of seint og því hefur hún ekkert lagalegt gildi. Þetta segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Lögmaður framkvæmdaraðila tekur undir þetta mat og gerir ráð fyrir því að framkvæmdir hefjist á svæðinu í næstu viku.Deigur krókur á móti bragðiFrá því var greint í gærkvöldi að Sigrún Magnúsdóttir, settur forsætisráðherra, hafi friðað í heild sinni hafnargarð sem þverar lóðina að Austurbakka 2 í Reykjavík. Frá því hefur jafnframt verið greint að komi til friðunar muni lóðahafar höfða skaðabótamál á hendur ríkinu sem nemur 2,2 milljörðum króna.Í gærkvöldi bárust þær fréttir óvænt að Sigrún Magnúsdóttir væri settur forsætisráðherra og hún væri búin að friða hafnargarðinn.visir/stefánFriðun hafnargarðsins hefur verið sérstakt áhugamál Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra og taldi borgarlögmaður hann vanhæfan til að fjalla um málið. Sem krókur á móti bragði var Sigrún skipuð forsætisráðherra, en sú ráðstöfun virðist ekki ætla að duga, ef marka má orð borgarstjóra.Ráðuneytið einfaldlega of seint á ferð með bréfið„Þegar kom í ljós að þessi hafnargarður var ekki meira en hundrað ára heldur yngri, frá 1928, þá lagði minjastofnun til skyndifriðun og þá hefur viðkomandi ráðherra sex vikur til að segja af eða á. Og sá tími leið án þess að ráðherra tæki afstöðu til þess. Daginn eftir barst hins vegar bréf um að ráðuneytið hefði viljað friða garðinn en það var einfaldlega of seint,“ sagði Dagur í samtali við Höskuld Kára Schram fréttamann nú í morgun.Dagur segir að bréfið hafi borist of seint og það hafi þannig ekkert gildi.visir/arnþórÞannig að þessi yfirlýsing hefur ekkert gildi? „Okkur sýnist það svona í fljótu bragi, já,“ segir borgarstjóri.Friðunin markleysa að mati lögmannsHöskuldur ræddi jafnframt við Óskar Sigurðsson sem er lögmaður framkvæmdaaðila á svæðinu: Landsstólpar-þróunarfélag og innti þá eftir afstöðu nú þegar fyrir lægi að ráðherra vildi friða garðinn. „Afstaða minna umbjóðenda er sú að þessi ákvörðun kom á óvart. Og jafnframt liggur fyrir að þessi ákvörðun er ekki tekin í samræmi við fyrirmæli laga um menningarminjar, ekki innan þess frests er samkvæmt lögunum. Fresturinn er runninn út og ákvörðun sem ráðherra hefur tekið er í sjálfu sér markleysa.“Hinn umdeildi hafnargarður. Nú stefnir í að vilji Framsóknarmanna til að friða garðinn muni ekki ná fram að ganga.visir/gvaTjón hleypur þegar á hundruðum milljóna Óskar segist gera ráð fyrir að framkvæmdir haldi áfram næstu viku. Nú þegar hefur orðið verulegt tjón vegna tafa og hefur verið gerð grein fyrir því tjóni í bréfum til ráðuneytisins. „Tjónið er þegar orðið mjög mikið. Og lögin gera hreinlega ráð fyrir því að svona tjón skuli bætt og ef ekki næst samkomulag um bætur fer það eftir reglum um eignarnámsbætur. Og því verður væntanlega fylgt eftir.“ Lögmaðurinn segir að um verulegar fjárhæðir sé að ræða, sem hleypur á hundruðum milljóna og ef friðunin eigi að standa þá hlaupi skaðabótakrafa á mörgum milljörðum. Hann segir að komi til þess sé það ákvörðun ráðherra og ríkissjóður þannig skaðabótaskyldur.
Tengdar fréttir Ráðherra víki í friðlýsingardeilu "Að mati Reykjavíkurborgar verður að draga í efa stjórnsýslulegt hæfi forsætisráðherra til þess að taka afstöðu til erindis Minjastofnunar Íslands um tillögu að friðlýsingu hafnargarðsins,“ segir í umsögn Kristbjargar Stephensen borgarlögmanns vegna friðlýsingar á hafnargarði sem nýlega uppgötvaðist við Reykjavíkurhöfn. 20. október 2015 07:00 Spyr Sigmund Davíð hvort hann hafi komið að skyndifriðun hafnargarðsins Heiða Kristín Helgadóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, hefur lagt fram fyrirspurn til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um framkvæmd laga um verndarsvæði í byggð. 16. september 2015 14:10 Sigrún friðar hafnargarðinn Settur forsætisráðherra hefur fallist á tillögu Minjastofnunar um að friða í heild sinni hafnargarð sem þverar lóðina að Austurbakka 2 22. október 2015 18:26 Minjastofnun vill að hafnargarður verði friðlýstur Minjastofnun Íslands hefur lagt til við forsætisráðherra að hafnargarður á lóðinni Austurbakki 2 í Reykjavík verði friðlýstur. 25. september 2015 12:41 Mest lesið Deilt um „Pope Francis“ forsetans: „Óboðlegt og óskiljanlegt“ eða hneykslunargirni heilagra? Innlent Mjög gjarnan kölluð nasisti og fasisti Innlent Þrjátíu prestar krefjast dvalarleyfis fyrir Oscar Innlent „Til hamingju hálfvitar“ Innlent Drottningin lögð inn vegna veikinda Erlent Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Erlent Reyndu að fá Ingu á sitt band með fötu af „extra crispy“ kjúklingavængjum Innlent Stöðvaður á 116 kílómetra hraða Innlent Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Erlent Mótmæltu brottvísun Oscars við dómsmálaráðuneytið Innlent Fleiri fréttir Landris heldur áfram en dregið hefur úr hraðanum „Skrítið og óeðlilegt“ að Ísrael fái að vera með í Eurovision Barn á óskoðuðum bíl á 151 kílómeters hraða Gallar í nýbyggingum: Eigendur nýrra íbúða eigi ríkari rétt Ráðherra ræðir þátttöku Ísraels í Eurovision Vill að allir flokkar hafi hlutverk í borgarstjórn Mótmæltu brottvísun Oscars við dómsmálaráðuneytið Reyndu að fá Ingu á sitt band með fötu af „extra crispy“ kjúklingavængjum Mjög gjarnan kölluð nasisti og fasisti Stöðvaður á 116 kílómetra hraða Þrjátíu prestar krefjast dvalarleyfis fyrir Oscar Deilt um „Pope Francis“ forsetans: „Óboðlegt og óskiljanlegt“ eða hneykslunargirni heilagra? Hvalreki í Njarðvík við Borgarfjörð eystri Forsætisráðherra vill sjá nýtt fangelsi á Stóra Hrauni sem fyrst „Til hamingju hálfvitar“ Svikahrappur beið eftir flugferð framkvæmdastjórans Frans páfi, forsætisráðherra um fangelsismál og villtur páfagaukur Dæmi um að fyrirtæki tapi tugum milljóna í „forstjórasvindli“ Halla Tómasdóttir minnist „Pope Francis“ Lögmaður þurfi ekki að hafa áhyggjur af þekkingu ráðherra Andlát páfa og svikahrappar sem herja á fólk og fyrirtæki „Stjórnvöldum er að takast að loka Kvikmyndaskóla Íslands“ Vildu ekki til Íslands þegar loks bauðst að snúa heim Hátt í þrettán stiga hiti á sumardaginn fyrsta Gripu innbrotsþjófa glóðvolga Vanþekking ráðherra sé áhyggjuefni Margar fjölskyldur fastar í fátækt svo árum skiptir Ásthildur Lóa setur húsið umdeilda á sölu Gagnrýnir dómsmálaráðherra fyrir að fara með rangt mál um dvalarleyfi Trump-stjórnin virðist ekki hafa neitt plan Sjá meira
Ráðherra víki í friðlýsingardeilu "Að mati Reykjavíkurborgar verður að draga í efa stjórnsýslulegt hæfi forsætisráðherra til þess að taka afstöðu til erindis Minjastofnunar Íslands um tillögu að friðlýsingu hafnargarðsins,“ segir í umsögn Kristbjargar Stephensen borgarlögmanns vegna friðlýsingar á hafnargarði sem nýlega uppgötvaðist við Reykjavíkurhöfn. 20. október 2015 07:00
Spyr Sigmund Davíð hvort hann hafi komið að skyndifriðun hafnargarðsins Heiða Kristín Helgadóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, hefur lagt fram fyrirspurn til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um framkvæmd laga um verndarsvæði í byggð. 16. september 2015 14:10
Sigrún friðar hafnargarðinn Settur forsætisráðherra hefur fallist á tillögu Minjastofnunar um að friða í heild sinni hafnargarð sem þverar lóðina að Austurbakka 2 22. október 2015 18:26
Minjastofnun vill að hafnargarður verði friðlýstur Minjastofnun Íslands hefur lagt til við forsætisráðherra að hafnargarður á lóðinni Austurbakki 2 í Reykjavík verði friðlýstur. 25. september 2015 12:41
Deilt um „Pope Francis“ forsetans: „Óboðlegt og óskiljanlegt“ eða hneykslunargirni heilagra? Innlent
Deilt um „Pope Francis“ forsetans: „Óboðlegt og óskiljanlegt“ eða hneykslunargirni heilagra? Innlent