Eygló Ósk Íþróttamaður ársins 2015 Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2015 21:25 Eygló með verðlaunagripinn. vísir/daníel rúnarsson
Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona úr Ægi, hlaut í kvöld sæmdarheitið Íþróttamaður ársins þegar niðurstöður kosningar Samtaka íþróttafréttamanna voru tilkynntar við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu. Þetta er í 60. sinn sem Samtök íþróttafréttamanna kjósa Íþróttamann ársins. Eygló hlýtur þessa viðurkenningu í fyrsta sinn en hún er fimmta konan sem er valinn Íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttafréttamanna. Eygló, sem er tvítug, á frábært ár að baki í sundlauginni. Hún varð fyrst íslenskra íþróttamanna til að vinna sér inn þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Ríó á næsta ári og fyrsta sundkonan til að vinna verðlaun á stórmóti. Það gerði hún á Evrópumeistaramótinu í 25 m laug sem fór fram í Ísrael í desember er hún vann tvenn bronsverðlaun, í 100 og 200 metra baksundi. Eygló varð einnig fyrsta íslenska sundkonan, ásamt Hrafnhildi Lúthersdóttur, til að synda til úrslita á heimsmeistaramóti í 50 metra laug en það gerðu þær í Kazan í Rússlandi í ágúst. Eygló fjórbætti Norðurlandametið í 200 m baksundi á árinu og bætti einnig fjölda Íslandsmeta, auk þess sem hún vann til margra verðlauna á Íslandsmótum og Smáþjóðaleikum. Gylfi Þór Sigurðsson varð í öðru sæti í kjörinu en hann er lykilmaður í íslenska landsliðinu sem vann sér þátttökurétt á EM í Frakklandi á næsta ári. Gylfi var einnig í stóru hlutverki hjá velska liðinu Swansea sem náði besta árangri í sögu félagsins þegar það endaði tímabilið í ensku úrvalsdeildinni í vor í áttunda sæti. Hrafnhildur Lúthersdóttir varð í 3. sæti kjörinu en auk árangursins á HM í Kazan náði hún Ólympíulágmörkum í fjórum greinum á árinu og var, ásamt Eygló, valin í keppnislið Evrópu fyrir Duel in the Pool sundkeppnina undir lok ársins.
Fréttir ársins 2015 Íþróttamaður ársins Íþróttir Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Rory McIlroy: Hvað ætlið þið núna að tala um fyrir næsta Mastersmót? Golf „Aðeins léttari þegar það er saklaus sál heima sem þarf að sjá um“ Íslenski boltinn Saklaus en missti af Ólympíuleikunum eftir mistök félagsins Fótbolti Sjáðu allar tilfinningarnar hjá Rory þegar hann vann Masters mótið Golf Dæmd í bann fyrir að klípa í klof Fótbolti Eyþóra með gullna endurkomu: „Kennslustund í glæsileika“ Sport Stjórinn fór á barinn með stuðningsmönnunum eftir leik Enski boltinn Mörkin úr Bestu: Fram afgreiddi meistara Blika á ellefu mínútna kafla Íslenski boltinn Besta-spáin 2025: Stórir draumar í Laugardalnum Íslenski boltinn McIlroy vann Masters í bráðabana Golf Fleiri fréttir Lærðu að fagna eins og verðandi feður Fyrsti nýi meðlimurinn í 25 ár Besta-spáin 2025: Áframhaldandi hamingja í Víkinni „Aðeins léttari þegar það er saklaus sál heima sem þarf að sjá um“ Besta-spáin 2025: Stórir draumar í Laugardalnum Eyþóra með gullna endurkomu: „Kennslustund í glæsileika“ Fékk síðasta bikarinn á ferlinum mörgum mánuðum eftir að hann hætti Rory McIlroy: Hvað ætlið þið núna að tala um fyrir næsta Mastersmót? Saklaus en missti af Ólympíuleikunum eftir mistök félagsins Mörkin úr Bestu: Fram afgreiddi meistara Blika á ellefu mínútna kafla Stjórinn fór á barinn með stuðningsmönnunum eftir leik Dæmd í bann fyrir að klípa í klof Sjáðu allar tilfinningarnar hjá Rory þegar hann vann Masters mótið Fótboltamaður lést eftir samstuð inn á vellinum Dagskráin í dag: Reykjavíkurslagur, úrslitarimma, uppgjörsþættir og Karólína Lea McIlroy vann Masters í bráðabana „Við erum að reyna að skapa vonir og trú á þetta verkefni“ Ancelotti: Mbappé er ekki ofbeldisfullur en þetta var augljóst rautt spjald „Getum klárlega farið alla leið ef við viljum það“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 75-70 | Valur sendi Þórsara í sumarfrí Uppgjörið: Víkingur - KA 4-0 | Meiðslum hrjáðir Víkingar léku KA-menn grátt Uppgjörið: Fram - Breiðablik 4-2 | Skoruðu fjögur mörk á minna en tíu mínútum til að tryggja sigur „Einbeitum okkur að fimmtudeginum“ „Ég skil ekki hvernig við náum ekki að klára þetta“ Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 0-0 | Markalaust í nýliðaslagnum Hinrik skoraði sitt fyrsta mark í óvæntu bikartapi Slæmur dagur hjá Rauðu djöflunum á St. James Park Piastri hleypti engum fram úr og fagnaði fyrsta sigrinum Uppgjörið: Vestri - FH 1-0 | Daði Berg hetja Vestra Sjá meira