Masters var eina risamótið sem McIlroy átti eftir að vinna á sínum sigursæla ferli. Hann hafði oft áður náð langt og endað í öðru sæti síðustu tvö ár.
McIlroy var með tveggja högga forystu fyrir lokadaginn, missti hana strax frá sér á fyrstu holu til Brysons DeChambeau, en vann hana upp aftur á næstu holum.
McIlroy makes birdie on No. 9 to extend his lead. #themasters pic.twitter.com/EvytUu5Q2i
— The Masters (@TheMasters) April 13, 2025
McIlroy var síðan kominn með fjögurra högga forystu eftir fyrstu níu holurnar en spilaði næstu holur illa, vippaði boltanum meðal annars út í vatn úr auðveldu færi og missti forystuna frá sér.
DeChambeau hafði þá lent langt á eftir en Justin Rose kom sér upp að hlið McIlroy og jafnaði höggfjölda hans. Forystan skiptist svo formlega um hendur eftir þrettándu holu McIlroy og Rose leiddi með einu höggi.
Stressið steig Rose hins vegar til höfuðs, hann missti forystuna strax frá sér og þá voru þrír jafnir: McIlroy, Rose og Ludvig Aberg.
McIlroy átti síðan algjört draumahögg á fimmtándu holu og tók forystuna á ný, þó aðeins um eitt högg eftir að hafa klikkað á pútti fyrir erni.
Poised to make eagle. Rory McIlroy goes for glory on No. 15. #themasters pic.twitter.com/hAM0zxnkM7
— The Masters (@TheMasters) April 13, 2025
Justin Rose kláraði hringinn á undan McIlroy og setti hann undir gríðarlega pressu með því að jafna hann aftur í höggfjölda eftir frábært pútt á átjándu holu.
McIlroy þurfti því að lækka skorkort sitt um eitt högg síðustu tvær holurnar.
Sem virtist ætla að ganga eftir, stórkostlegt högg á sautjándu holu setti upp tækifæri fyrir fugl og meters púttið fór ofan í. En McIlroy átti síðan skelfilegt högg á átjandu holu sem endaði í sandgryfju og tókst ekki að klára holuna á pari til að tryggja sér sigur á mótinu.
That close to victory. #themasters pic.twitter.com/VFj0gHA7lc
— The Masters (@TheMasters) April 13, 2025
Haldið var því í bráðabana milli McIlroy og Rose. Leikið var átjándu holuna og þar gekk McIlroy betur í annarri tilraun. Hann fór holuna á fugli meðan Rose fór á pari.
Rory McIlroy stóð því uppi sem sigurvegari eftir stórkostlega dramatík á lokadeginum.
The cinema of the 73rd hole. #themasters pic.twitter.com/wJgncWWhOr
— The Masters (@TheMasters) April 13, 2025
Sweet, sweet victory. #themasters pic.twitter.com/4h1ODOodnt
— The Masters (@TheMasters) April 13, 2025