Golf

Rory McIlroy vildi ekki tala við DeChambeau

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rory McIlroy og Bryson DeChambeau voru saman í lokahollinu á Mastersmótinu en töluðu ekkert saman á öllum hringnum.
Rory McIlroy og Bryson DeChambeau voru saman í lokahollinu á Mastersmótinu en töluðu ekkert saman á öllum hringnum. getty/Richard Heathcote

Rory McIlroy og Bryson DeChambeau voru saman í síðasta hollinu á Mastersmótinu í golfi á lokadeginum en annar þeirra sá til þess að samskiptin þeirra á milli voru engin.

DeChambeau náði forskotinu af McIlroy eftir fyrstu tvær holurnar á sunnudaginn en gaf svo eftir á meðan McIlroy fór alla leið og tryggði sér sinn fyrsta græna jakka.

DeChambeau átti ekki góðan dag og endaði í fimmta sæti fjórum höggum á eftir McIlroy.

Eftir mótið var DeChambeau spurður út í samskiptin við McIlroy á lokahringnum. Þá kom í ljós að McIlroy lokaði á öll samskipti milli þeirra. Hvernig var McIlroy á lokahringnum var spurningin sem DeChambeau fékk.

„Ekki hugmynd. Hann talaði ekki eitt orð við mig allan daginn,“ sagði Bryson DeChambeau.

„Hann var líklega bara svona einbeittur ef ég á að giska. Það er samt ekki fyrir mig,“ sagði DeChambeau.

DeChambeau byrjaði lokadaginn mjög vel eins og áður kom fram en fékk skolla á bæði þriðju og fjórðu. Hann fékk síðan skramba á elleftu, skolla á tólftu og fékk enn einn skollann á sautjándu.

DeChambeau lék lokahringinn á 75 höggum eða þremur höggum yfir par.

DeChambeau viðurkenndi að hafa fundið til með McIlroy þegar hann setti kúluna í vatnið á þrettándu.

„Ég vildi gráta fyrir hans hönd. Sem atvinnumaður þá lá beint fyrir að slá hann inn á miðja flöt og ég trúi því ekki að hann hafi reynt þetta. Það voru tímar þar sem hann hafði fulla stjórn en á öðrum spurði maður sig hvað væri eiginlega í gangi hjá honum,“ sagði DeChambeau.

Rory McIlroy tókst síðan að tryggja sér sigurinn í umspilinu þökk sé frábæru innáhöggi á átjándu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×