Ekkert hnjask og ekkert vesen Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. júní 2016 06:00 Landsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson og íslensku stelpurnar eru klár í leikinn mikilvæga á móti Skotlandí í undankeppni EM 2017. mynd/Hilmar Þór
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta fær sitt erfiðasta verkefni í undankeppni EM 2017 þegar það mætir Skotlandi í Falkirk í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18:00 að íslenskum tíma. Liðin berjast um efsta sætið í riðli 1 en yfirlýst markmið íslenska liðsins er að vinna hann. Bæði Skotland og Ísland eru með fullt hús stiga í riðlinum; Skotar eftir fimm leiki og Íslendingar eftir fjóra. Landsliðsþjálfarinn Freyr Alexandersson segir að æfingar síðustu daga hafi gengið vel og allir leikmenn íslenska liðsins séu klárir í bátana fyrir leikinn í kvöld.Höfum farið yfir marga hluti „Við erum mjög ánægðir með æfingarnar, ekkert hnjask, ekkert vesen og taktísk innleiðing hefur gengið mjög vel. Við höfum náð að fara yfir marga hluti og það gengur vel að koma skilaboðunum til skila,“ sagði Freyr í samtali við Fréttablaðið í gær. En hvað ætlar hann að leggja áherslu á í leiknum í kvöld? „Við munum halda áfram með það sem við höfum unnið í síðastliðið eitt og hálft ár. Við ætlum að loka á þeirra styrkleika. Vinstri vængurinn hjá þeim er mjög sterkur og við reynum að beina þeim frá honum eins og við getum. Hvað sóknina varðar höfum við lagt mesta áherslu á að halda ágætis hraða í leiknum og sækja í svæðin sem eru veik hjá þeim,“ sagði landsliðsþjálfarinn.Spila góðan fótbolta Skoska liðið er sterkt og hefur skorað hvorki fleiri né færri en 27 mörk í leikjunum fimm í undankeppninni. Það gera 5,4 mörk að meðaltali í leik sem er það mesta í undankeppninni. Aðalstjarna Skota er hin 25 ára gamla Kim Little, sóknarsinnaður miðjumaður sem hefur verið afar drjúg í undankeppninni. Little, sem var á dögunum valinn besti leikmaður heims af lesendum BBC, hefur skorað fimm mörk og gefið sjö stoðsendingar. Framherjinn Jane Ross er hins vegar markahæst í skoska liðinu í undankeppninni með átta mörk. „Þær spila góðan fótbolta,“ sagði Freyr um skoska liðið sem er í 21. sæti á heimslista FIFA, einu sæti neðar en Ísland. „Þegar þær geta blandað saman hápressu og lágpressu þegar þær verjast, eru ákveðnar og með líkamlega sterka leikmenn. Þær eru reynslumiklar og klókar og hafa leikmenn sem geta gert mikið úr litlu í sókninni.“ Skotland er sterkasta liðið sem Ísland mætir í undankeppninni en íslensku stelpurnar hafa unnið sína fjóra leiki með markatölunni 17-0. Freyr hefur ekki áhyggjur af því að íslenska liðið eigi í vandræðum með aðlagast sterkari mótherjum.Skemmtilegt verkefni „Ég held það verði ekkert vandamál fyrir okkur. Við spiluðum fjóra æfingaleiki á Algarve-mótinu í mars og þekkjum hvernig það er að spila á móti andstæðingum sem eru af svipuðum styrkleika og við,“ sagði Freyr en íslenska liðið endaði í 3. sæti á Algarve-mótinu. Síðan þá hefur Ísland spilað einn landsleik, gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni EM. Hann vannst örugglega með fimm mörkum gegn engu. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði þrennu í leiknum en hún er markahæst í íslenska liðinu í undankeppninni með sex mörk. „Ég er miklu frekar spenntur því þetta er virkilega skemmtilegt verkefni að takast á við,“ sagði um leikinn í kvöld. „Leikmennirnir hlakka til að máta sig á móti þessu liði á þeirra heimavelli,“ bætti þjálfarinn við að lokum.
Fótbolti Mest lesið „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ Fótbolti Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Íslenski boltinn Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Enski boltinn Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Fótbolti Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Fótbolti Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Evrópumeistararnir fóru hamförum Fótbolti Fleiri fréttir „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Sjá meira