Ísland fékk ekki enskan greiða | Markalaust gegn Slóvakíu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. júní 2016 20:45 Jamie Vardy á fleygiferð með boltann. Visir/Getty
England endaði í öðru sæti B-riðils á EM í Frakklandi eftir markalaust jafntefli gegn Slóvakíu í kvöld. Wales vann öruggan sigur á Rússlandi í hinum leik riðilsins og komst á toppinn. England mun því mæta liðinu sem endar í öðru sæti í F-riðli, riðli Íslands, í 16-liða úrslitum keppninnar. Ísland er sem stendur í öðru sæti F-riðils og spilar gegn Austurríki á miðvikudag. Englendingar stjórnuðu leiknum gegn Slóvakíu í kvöld frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Þeir fengu mun fleiri opin færi í fyrri hálfleik og voru klaufar að fara ekki inn til búningsklefa með forystu. Jamie Vardy komst í gott færi eftir að hafa sloppið einn í gegn og Jordan Henderson átti einnig hættulegt skotfæri í fyrri hálfleik en Matus Kozacik varði vel í bæði skiptin. Englendingar voru þar að auki nálægt því að búa til hættuleg færi en síðasta sendingin sveik þá oft. Roy Hodgson gerði sex breytingar á byrjunarliði Englands frá síðasta leik og kom fyrirliðinn Wayne Rooney inn á sem varamaður snemma í síðari hálfleik. Dele Alli og Harry Kane komu einnig inn á en eftir því sem leið á leikinn varð varnarmúr Slóvakíu þykkari og þykkari. Englendingum gekk afar illa að koma boltanum inn í teig og skapa hættuleg færi. Varnarmenn Slóvakíu hentu sér ítrekað fyrir tilraunir Englendinga og reyndi lítið á Kozacik í marki Slóvakíu í síðari hálfleiknum. Besta færið fékk Alli en skot hans var varið á línu. Enskir áhorfendur voru magnaðir á Stade Geoffroy Guichard í kvöld og hvöttu sína menn óspart áfram, sérstaklega undir lok leiksins. En þrátt fyrir þennan góða stuðning náðu ensku leikmennirnir ekki að finna þann kraft sem þurfti til að brjóta vörn Slóvakíu á bak aftur. Slóvakía endar því með fjögur stig í riðlinum en hefði liðið tapað hefði legið ljóst fyrir að Ísland myndi duga jafntefli til að komast áfram í 16-liða úrslitin úr F-riðli. Enda fögnuðu Slóvakar vel og innilega í leikslok.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ Fótbolti Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi Sport Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Íslenski boltinn Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Saka ekki alvarlega meiddur Enski boltinn Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Fótbolti Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Sjá meira