Adrián hetjan þegar Liverpool vann Ofurbikarinn í fjórða sinn | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. ágúst 2019 21:45 Adrián var hetjan í fyrsta leik sínum fyrir Liverpool. vísir/getty Liverpool vann Ofurbikar Evrópu eftir sigur á Chelsea í vítaspyrnukeppni á Vodafone Park í Istanbúl í kvöld. Liverpool vann vítakeppnina, 5-4. Adrián, sem lék sinn fyrsta leik í byrjunarliði Liverpool í kvöld, varði síðustu spyrnu Chelsea frá Tammy Abraham. Adrián samdi við Liverpool mánudaginn 5. ágúst og fékk svo óvænt tækifæri eftir að Alisson meiddist gegn Norwich City á föstudaginn. Spánverjinn var svo hetja Liverpool í kvöld. Olivier Giroud kom Chelsea yfir á 36. mínútu eftir sendingu frá Christian Pulisic. Bandaríkjamaðurinn var í fyrsta sinn í byrjunarliði Chelsea í kvöld. Evrópudeildarmeistararnir voru sterkari aðilinn seinni hluta fyrri hálfleiks og höfðu ógnað áður en Giroud skoraði. Roberto Firmino kom inn á sem varamaður í hálfleik og lét strax til sín taka. Á 48. mínútu var hann á undan Kepa Arrizabalaga í boltann sem barst til Sadio Mané skoraði og jafnaði fyrir Evrópumeistarana. Kepa bjargaði meistaralega á 75. mínútu þegar hann varði skot Virgils van Dijk í slána. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki í venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja. Á 95. mínútu skoraði Mané sitt annað mark með skoti í slá og inn. Aftur átti Firmino stoðsendinguna. Fjórum mínútum síðar dæmdi Stephané Frappart, sem er fyrsta konan sem dæmir úrslitaleik í Evrópukeppni karla, vítaspyrnu eftir að Adrián felldi Abraham. Jorginho tók spyrnuna og skoraði af öryggi. Chelsea var nær því að skora það sem eftir lifði framlengingarinnar en fleiri urðu mörkin ekki. Því réðust úrslitin í vítakeppni. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Leikmenn liðanna skoruðu úr fyrstu níu spyrnunum í vítakeppninni. Abraham tók svo síðustu spyrnu Chelsea en Adrián sá við honum og varði. Liverpool fagnaði því sigri í Ofurbikarnum í fjórða sinn. Aðeins Barcelona og AC Milan (5) hafa unnið þennan titil oftar en Liverpool. Fylgst var með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi. Hana má sjá hér fyrir neðan.
Bretland England Evrópudeild UEFA Meistaradeild Evrópu Ofurbikar UEFA Mest lesið „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Fram einum sigri frá úrslitum Handbolti „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti Selfoss jafnaði metin Handbolti „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ Körfubolti Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Körfubolti „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” Íslenski boltinn Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Fjöldi stuðningsmanna Man. United fór of snemma af vellinum í gærkvöldi Arne Slot: Samningarnir við Van Dijk og Salah sýna okkar metnað Ætlar að nota krakka í síðustu leikjum Man. United í ensku deildinni Van Dijk fær 68 milljónir á viku Hálf úrvalsdeildin á eftir Delap Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Van Dijk skrifaði undir nýjan samning við Liverpool Newcastle upp í þriðja sætið Sjá meira