Eyjagrýla FH-inga lifir góðu lífi í Heimaey Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2020 17:15 FH-ingar hafa farið í sjö fýluferðir í röð út í Eyjar. Vísir/Bára
ÍBV tekur á móti FH í kvöld í átta liða úrslitum Coca Cola bikars karla í handbolta en í boði er sæti í bikarúrslitahátíðinni í Laugardalshöll. Eyjamenn eru búnir að vinna báða leiki liðanna í Olís deildinni í vetur og hafa haft mikið tak á FH-ingum úti í Eyjum undanfarin ár. FH-ingar þurfa að losa takið Eyjagrýlunnar ætli þeir sér að verja bikarmeistaratitilinn sem þeir unnu í fyrra. ÍBV vann bikarinn árið 2018 og þetta eru því bikarmeistarar síðustu tveggja ára. En aftur af vandræðum FH-inga á Heimaey. FH hefur nú tapað sjö síðustu leikjum sínum úti í Vestmannaeyjum eða öllum leikjum sínum síðan að þeir unnu eins marks sigur 25. nóvember 2016. Síðan eru liðnir 38 mánuðir eða nákvæmlega 1168 dagar. Í þessum sigri FH-liðsins í Eyjum fyrir þremur árum og rúmum tveimur mánuðum þá var Óðinn Þór Ríkharðsson markahæstur hjá liðinu með sex mörk en hann spilar nú sem atvinnumaður í Danmörku. Báðir deildarleiki liðanna í vetur hafa verið æsispennandi og unnist á einu marki. Dagur Arnarsson skoraði sigurmark ÍBV í síðasta leik í desember í Kaplakrika en Hákon Daði Styrmisson skoraði sigurmarkið í leik liðanna í Eyjum í september. Fannar Þór Friðgeirsson átti stoðsendinguna í báðum mörkunum. Hákon Daði Styrmisson er með 18 mörk í þessum tveimur leikjum á móti FH en hann þekkir vel til Hafnarfjarðar eftir að hafa spilað með Haukum í nokkur ár. Petar Jokanovic hefur líka verið FH-ingum erfiður í ÍBV markinu í þessum leikjum. Hann varði 19 skot í fyrri leiknum (48%) og 15 skot í þeim síðari.Síðustu leikir ÍBV og FH í Vestmannaeyjum: 23. september 2019 - Deild - ÍBV vann 1 marks sigur (23-22) 22. apríl 2019 - Úrslitakeppni - ÍBV vann 8 marka sigur (36-28) 24. mars 2019 - Deild - ÍBV vann 2 marka sigur (31-29) 17. maí 2018 - Úrslitakeppni - ÍBV vann 7 marka sigur (29-22) 12. maí 2018 - Úrslitakeppni - ÍBV vann 6 marka sigur (32-26) 26. febrúar 2018 - Deild - ÍBV vann 8 marka sigur (37-29) 9. mars 2017 - Deild - ÍBV vann 9 marka sigur (30-21) 25. nóvember 2016 - Deild - FH vann 1 marks sigur (24-23)
Olís-deild karla Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Steinunn hætt í landsliðinu Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Sjá meira