Hiti gæti náð átján stigum fyrir norðan og austan Líkt og síðustu daga verður sunnan gola eða kaldi, en strekkings vindur við suðvestur- og vesturströndina. Veður 7.4.2025 07:15
Allt að 18 stiga hiti á morgun en súld og léttskýjað í dag Í dag má búast við sunnan og suðaustan fimm til 13 metrum á sekúndu. Léttskýjað verður á Norðaustur- og Austurlandi, en súld eða dálítil rigning öðru hverju sunnan- og vestanlands. Hiti verður á bilinu fjögur til 14 stig, en að 18 stigum á morgun, hlýjast verður fyrir norðan. Veður 6.4.2025 07:30
Allt að 14 stiga hiti á Austurlandi í dag Hiti verður á bilinu fimm til 14 stig í dag og hlýjast verður á Austurlandi. Víðáttumikil hæð austur af landinu beinir til okkar mildri suðlægri átt samkvæmt hugleiðingum Veðurfræðings. Víða verður því kaldi eða strekkingur sunnan- og vestantil á landinu og súld eða dálítil rigning með köflum, en hægari vindur og léttskýjað um landið norðaustanvert. Veður 5.4.2025 07:43
Hlýnandi veður Í dag gengur í austan og suðaustan 13-20 m/s með snjókomu eða slyddu eftir hádegi og síðar rigningu. Veðurfræðingur spáir rólegri byrjun á deginum, breytilegri átt og frosti um mest allt land. Hlýna tekur í veðri þegar líður á daginn. Veður 30.3.2025 07:45
Veðurviðvaranir um helgina Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir um helgina á Suður- og Vesturlandi. Veður 29.3.2025 13:48
Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Deildarmyrkvi á sólu verður í dag. Hann verður vel sjáanlegur á Vesturlandi þar sem bjartviðri er spáð meðan hann gengur yfir. Veður 29.3.2025 08:41
Snjókoma sunnantil eftir hádegi Veðurstofan spáir norðaustlægri átt í dag, þrír til tíu metrar á sekúndu, og áfram lítilsháttar éljum fyrir norðan. Spár gera ráð fyrir að smálægð komi inn fyrir Suðurland með snjókomu á þeim slóðum eftir hádegi. Veður 28.3.2025 07:08
Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustlæga eða austlæga átt í dag, víða kalda, en allhvasst norðvestantil. Þá er útlit fyrir dálitla snjókomu eða él fyrir norðan, en sunnan heiða verða stöku skúrir eða slydduél. Veður 27.3.2025 07:11
Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Skammt suðvestur af Reykjanesi er lægð nú á hreyfingu norðaustur yfir landið og fylgir henni öflugt úrkomusvæði og rignir því víða á landinu en snjóar sums staðar fyrir norðan. Veður 26.3.2025 07:22
Suðvestanátt með skúrum víða um land Yfir landinu er nú dálítill hæðarhryggur, en minnkandi smálægð á Grænlandshafi, sem valda suðvestanátt með skúrum víða um land í dag, éljum til fjalla, en þurrviðri á Norður- og Austurlandi. Veður 25.3.2025 07:03
Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Úrkomusvæði gengur norðaustur yfir landið í dag og fylgir því austan- og suðaustanátt, vindur yfirleitt á bilinu fimm til fimmtán metrar á sekúndu. Hvassast verður við suðvesturströndina. Veður 24.3.2025 07:10
Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Dálítil lægð gengur austur yfir landið fyrri part dags, segir í textaspá Veðurstofunnar. Þar segir að þar af leiðandi verði áttin breytileg, fremur hægur vindur og rigning, slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum. Veður 23.3.2025 07:58
Með rólegasta móti Það er útlit fyrir að veður verði með rólegasta móti á landinu í dag, segir í textaspá Veðurstofunnar. Búist er við hægum vindi og einhverjum éljum á sveimi. Hiti verði 0 til 7 stig yfir daginn, en í kringum frostmark á Norðaustur- og Austurlandi. Veður 22.3.2025 08:33
Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Veðurstofan gerir ráð fyrir suðlægri átt, golu eða kalda víðast hvar á landinu. Spáð er skúrum eða slydduéljum um landið sunnan- og vestanvert, en bjart með köflum norðaustan- og austanlands. Veður 21.3.2025 07:08
Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Veðurstofan gerir ráð fyrir rigningu fram eftir degi um landið sunnan- og vestanvert í dag og að í kvöld fari úrkoman í skúrir en síðar slydduél. Veður 20.3.2025 07:05
Dálítil væta og bætir í vind Útlit er fyrir fremur hæga suðlæga átt í dag með dalítilli vætu á víð og dreif, en þurru veðri austanlands. Veður 19.3.2025 07:08
Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Útlit er fyrir fremur hæga suðlæga eða breytilega átt i dag þar sem búast má við vætu af og til allvíða um land. Hvergi er þó gert ráð fyrir mikilli úrkomu. Veður 18.3.2025 07:10
Mild sunnanátt og dálítil væta Hæð yfir Skotlandi dælir mildri sunnanátt til landsins í dag, með strekkings vindi norðvestantil en heldur hægari annars staðar. Veður 17.3.2025 07:08
Væta af og til Í dag verður suðvestan fimm til tíu suðvestanátt, en tíu til fimmtán á norðanverðu landinu. Skýjað að mestu og dálítil væta af og til. Yfirleitt bjart verður um landið austanvert. Hiti þrjú til átta stig. Veður 14.3.2025 07:49
Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Ólíklegt er að íbúar á höfuðborgarsvæðinu og vestari hluta landsins muni geta séð tunglmyrkvann sem á sér stað snemma í fyrramálið. Almyrkvinn verður í hámarki klukkan 6:59 í fyrramálið en sést ekki í heild sinni frá Íslandi þar sem tunglið sest áður en honum lýkur. Veður 13.3.2025 22:02
Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Veðurstofan gerir ráð fyrir norðlægri átt í dag, fimm til tíu metrum á sekúndu, og éljum á norðaustanverðu landinu. Bjart verður að mestu sunnanlands. Veður 13.3.2025 07:10
Hiti að tíu stigum en víða næturfrost Skammt suðvestur af landinu er nú kyrrstæð hæð sem beinir fremur hægum vestlægum áttum að landinu. Vestanáttinni fylgja lágský, sem leggjast yfir, einkum um landið vestanvert, með þokumóðu eða súld við sjávarsíðuna. Veður 12.3.2025 07:08
Vestlæg átt leikur um landið Skammt suðvestur af landinu er nú kyrrstæð hæð sem stýrir veðrinu á landinu á næstunni. Vestlæg átt leikur því um landið og má sums staðar reikna með strekkings vindi norðantil. Hins vegar verður mun hægari vindur syðra. Veður 11.3.2025 07:10
Víða allhvass vindur norðantil síðdegis Skammt suðvestur af landinu er nú háþrýstisvæði en norðan af landinu er smálægð sem nálgast og veldur vaxandi vestanátt á norðanverðu landinu. Veður 10.3.2025 07:13