Fastir pennar
Kettinum stolið
Smári Jósepsson segir undarlega sögu sem hann hleraði á kaffihúsi
Í svörtum fötum
Þórarinn Þórarinsson kennir hippunum um hvernig hann klæðir sig.

Án gagnrýni væri ekkert frumvarp
Mál manna - Sigurjón M. Egilsson "Væru engir gagnrýnir fjölmiðlar þá væru heldur engin fjölmiðlafrumvörp, engir vitlausir lögfræðingar og enginn vissi um getuleysi þingmanna gagnvart foringjunum."

Vonir um niðurstöðu eftir helgi
"Getur verið að hringavitleysan haldi áfram í næstu viku með nýjum tilbrigðum? Enn ein "snjöll" lausn verði boðuð? "Fullkomin samstaða" eina ferðina enn? Og svo fari allt í sama farið? Við skulum ekki útiloka það, en þá er líka verið að ganga ansi nærri þolmörkum þjóðarinnar." </font /></b />

Kútkveðskapur Hannesar
Undarlegasta greinin í þessum bálki var þó tvímælalaust eftir Hannes Hólmstein Gissurarson. Á dögunum fékk hann gamla viðhafnarrammann utan um ritsmíð sem ekki varð betur séð en að fjallaði umfram allt um það hversu alþýðlegur, yfirvegaður og orðheppinn greinarhöfundur væri.

Hundadagauppreisnin
Það bendir því flest til þess að eina leið Halldórs í málinu sé að semja við Davíð Oddsson um að láta undan kröfum hundadagauppreisnarinnar og draga málið til baka og helst láta þjóðaratkvæðagreiðsluna fara fram.

Þriðja sinn á sama reit
<strong><em>Mín skoðun - Gunnar Smári Egilsson</em></strong> Davíð Oddsson virðist á góðri leið með að spengja eigin ríkisstjórn með fjölmiðlafrumvarpi sínu.

Til hvers eru stjórnmálaflokkar?
Hvers vegna nýta foringjarnir sér þá ekki lengur þau tækifæri sem flokkarnir veita til að ná beinu og milliliðalausu sambandi við flokksmenn sína? Af hverju eru þeir hættir að tala við grasrótina, hættir að hlusta, hættir að gefa hinum almennu flokksmönnum færi á að koma skoðun sinni á framfæri?
Er ein menning betri en önnur?
Poppmenning hefur aldrei notið virðingar hér á landi. Ef menn svamla í henni, hvort sem það er við gerð tónlistar eða kvikmyndagerðarlistar, þurfa þeir annað hvort að sætta sig við að synda á móti straumi eða brenna út sem þrælar ölmenningarinnar.
Má bjóða þér á hátíð?
Svanborg Sigmarsdóttir veltir fyrir sér hversu mikið er í boði í "sumargúrkunni".

Styrr um stjórnarskrá
Þess varð ekki vart, að lögfræðingar eða stjórnmálamenn drægju í efa rétt forseta Austurríkis til að synja ráðherraskipun staðfestingar, enda á forsetinn aðild að framkvæmdarvaldi skv. stjórnarskrá landsins líkt og hér heima, sbr. 15. gr. stjórnarskrár Íslands
Skandall í afmæli KB bankamanns
Þóra Karítas segir kjaftasögu úr þrítugsafmæli.
Dauðinn er leikur einn
Þórarinn Þórarinsson hefur komist að því að þeir sem aldrei deyja verða að vanda sig við að lifa.
Áminning í formi villimennsku
Freyr Bjarnason fór á ljósmyndasýningu og fékk blákaldan raunveruleikann beint í æð.

Veikgeðja konur
Allar rannsóknir og kannanir sem birtar eru sýna að jafnrétti ríkir ekki á launamarkaði á Íslandi. Karlarnir finna þó alltaf einhverjar skýringar.
Þetta var ótrúlega ótrúlegt!
Smári Jósepsson veltir því fyrir sér hvort íþróttaþulir séu fæddir snillingar.

Undirstaðan sé réttleg fundin
Undirstaða samfélagsins er stjórnarskráin. Hún er lagabókstafurinn sem önnur lög mega ekki stangast á við - þar enda lagaskýringarnar.

Kosningar eða afnám laga
Í stað þess að halda þessum skollaleik áfram á forsætisráðherra að gera annað tveggja, beita sér fyrir því að fjölmiðlalögin verði felld úr gildi án þess að ný verði sett að sinni eða sjá til þess að þjóðaratkvæðagreiðslan, sem fyrirhuguð var, verði haldin

Örflokkur stýrir minnihlutastjórn
<em><strong>Mín skoðun - Gunnar Smári Egilsson</strong></em> Þegar sáralítill stuðningur við Framsókn bætist ofan á lítið fylgi ríkisstjórnarinnar þarf Halldór Ásgrímsson að vera bæði óvenju klókur og óvenju snjall ef hann ætlar að sigla skútu sinni í höfn.

Landið og miðin
Sjálfstæðisflokkurinn hefur á sama tíma skorið upp herör gegn auðvaldinu. Viljið þið að Jón Ásgeir og Jóhannes í Bónus geti bara átt landið og miðin? er spurt með þjósti. Svarið er að ég hef engar áhyggjur af því. Það er þegar búið að ráðstafa hvorutveggja.
Popp og pólitík
Birgir Örn Steinarsson veltir því fyrir sér hvort popp og pólitík passi saman?

Pólitísk tilraunastarfsemi
Hafi fyrirhuguð tilraunastarfsemi stjórnarinnar með að setja þröskulda í þjóðaratkvæðagreiðslu skapað réttaróvissu og hugsanlega málsókn, eins og bæði Geir Haarde og Halldór Ásgrímsson hafa sagt, þá er réttaróvissan síst minni með þeirri leið sem þeir nú velja.
Fótbolti eða bíó
Svanborg Sigmarsdóttir veltir fyrir sér íþróttum sem skemmtun

Aðför gegn lýðræði
Það er hægðarleikur að bera kennsl á flekklausa lýðræðissinna á Íslandi. Þeir þurfa að standast bara eitt einfalt próf: ef þeir láta þjóðmál til sín taka á annað borð, þá þurfa þeir helzt að hafa lagzt gegn eða a.m.k. fundið að ranglátri kjördæmaskipan landsins frá fyrstu tíð
Apabúningur og fallhlífarstökk
Þóra Karítas gefur góð ráð við lífsleiða

Af landsfeðrum og götustrákum
„Ég trúi því ekki heldur að sómakærir þingmenn láti segja sér þannig fyrir verkum að forystumenn ríkisstjórnarflokkanna komist upp með slíkt háttalag. Ég trúi því ekki að menn ætli að vera landsfeður á sunnudegi og götustrákar á mánudegi.“
Lífið, sannleikurinn og fréttirnar
Þórarinn Þórarinsson hefur misst trúna á sannleikann og gefið sig skáldskapnum á vald.

Hinn ískyggilegi kosningaréttur
„Í rauninni hefur kosningakerfið um árabil verið svo flókið hér á landi að maður hefur eiginlega ekki hugmynd um hvað maður er að kjósa.“

Baráttan gegn veruleikanum
„Því miður fær maður á tilfinninguna að sumir ráðherrar og stjórnarþingmenn hafi bara ekki áhuga á öðru en að standa í orðaskaki og reiptogi við forsetann, fjölmiðlana og ákveðna kaupsýslumenn.“
Líf mitt í boxi
<strong><em>Kristján Hjálmarsson ætlar að umturna lífi sínu með boxum. </em></strong>