Erlent
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 334 ›
Aldrei jafn margar drónaárásir Umfangsmiklar árásir voru gerðar í Úkraínu og Rússlandi síðastliðna nótt. Aldrei hafa jafn margir drónar verið sendir af stað í einu. Erlent 10.11.2024 22:21
Trump vann öll sveifluríkin Donald Trump, nýkjörinn verðandi Bandaríkjaforseti, hafði betur gegn demókratanum Kamölu Harris, varaforseta Bandaríkjanna, í öllum sjö sveifluríkjunum. Búið er að telja nógu mörg atkvæði í síðasta ríkinu, Arizona, til að telja öruggt að Trump fari þar með sigur. Erlent 10.11.2024 09:44
Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Fjármálaráðherrar Danmerkur og Grænlands hafa kynnt samkomulag þess efnis að danska ríkið ábyrgist 95 prósent af lánsfjármögnun tveggja nýrra vatnsaflsvirkjana á Grænlandi upp á sextíu milljarða íslenskra króna. Samkomulagið um lánsábyrgð Dana greiðir leiðina að mestu virkjanaframkvæmdum í sögu þessa næsta nágrannalands Íslendinga. Erlent 10.11.2024 07:37
Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna Óeirðir brutust út þegar mótmæli voru haldin í Valensía-héraði á Spáni í kvöld. Þar kölluðu mótmælendur eftir afsögn leiðtoga héraðsins, sem mótmælendur segja að hafi brugðist í viðbragði stjórnvalda við flóðunum sem urðu rúmlega 200 manns að bana. Erlent 9.11.2024 23:41
„Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Demókratar eru þegar farnir að undirbúa næstu lotu þingkosninga í Bandaríkjunum, eftir tvö ár, en útlit er fyrir að Repúblikanar verði í meirihluta í báðum þingdeildum þangað til. Erlent 9.11.2024 14:21
Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Íranskur karlmaður hefur ákærður fyrir tengsl hans við meint ráðabrugg um að ráða Donald Trump, nýkjörinn forseta Bandaríkjanna, af dögum. Hann segir íranska byltingarvörðinn hafa verið að baki ráðabrugginu. Erlent 9.11.2024 10:10
Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Karlmaður á níræðisaldri var handtekinn í bænum Owatonna í Minnesota á fimmtudag, grunaður um að hafa orðið 25 ára konu að bana fyrir fimmtíu árum síðan. Erlent 9.11.2024 10:05
Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Fulltrúar allra flokka á Lögþingi Færeyja undirrituðu í dag sameiginlegan sáttmála um Suðureyjargöng með tilheyrandi vegtengingum. Samtímis var kynnt lagafrumvarp, sem allir flokkarnir sex standa á bak við, um stofnun sérstaks félags, P/F Suðuroyartunnilin, um gerð og rekstur ganganna. Þar er gert ráð fyrir ríflegum stofnframlögum úr landssjóði Færeyja upp á samtals fjóra milljarða íslenskra króna næstu tvö ár. Erlent 8.11.2024 21:49
Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Gamaldags fjarlægðarvitar hafa verið teknir aftur í notkun á flugvöllum í austanverðu Finnlandi vegna viðvarandi truflana á gervihnattastaðsetningarkerfum. Dæmi eru um að flugvélar hafi ekki getað lent vegna truflananna. Erlent 8.11.2024 11:39
Pútín óskar Trump til hamingju Vladímír Pútín Rússlandsforseti hefur óskað Donald Trump til hamingju með sigurinn í forsetakosningunum vestra á dögunum. Erlent 8.11.2024 08:44
Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Framkvæmdastjóri skipulags COP29, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fer fram í Aserbaídsjan í næstu viku, er sagður hafa reynt að nýta sér stöðu sína til að koma á samningi um kaup á jarðefnaeldsneyti. Erlent 8.11.2024 08:06
Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Fimm hafa verið fluttir á sjúkrahús og á sjöunda tug manna hafa verið handteknir eftir að óeirðarseggir réðust á stuðningsmenn ísraelska fótboltaliðsins Maccabi Tel Avív í Amsterdam í Hollandi í gærkvöldi. Erlent 8.11.2024 07:55
Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Donald Trump, nýkjörinn verðandi forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í kvöld að hann væri búinn að velja sér starfsmannastjóra fyrir komandi forsetatíð sína. Hún heitir Susie Wiles og verður fyrsta konan til að gegna embættinu síðan það var fyrst stofnað fyrir nærri því áttatíu árum síðan. Erlent 7.11.2024 23:15
Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Enn er óljóst með hvor flokkurinn, Repúblikanar eða Demókratar, muni vera með meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Mikil spenna ríkir í síðustu kjördæmunum þar sem úrslit liggja ekki fyrir en gífurlega mikið er í húfi. Erlent 7.11.2024 23:01
Þrír handteknir vegna dauða Liam Payne Þrír hafa verið handteknir í Argentínu og standa frammi fyrir ákærum vegna dauða Liam Payne, tónlistarmanns og fyrrverandi meðlims í One Direction. Payne lést í Buenos Aires í síðasta mánuði þegar hann féll fram af svölum á þriðju hæð. Erlent 7.11.2024 22:35
Vilja banna 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla Stjórnvöld í Ástralíu ætla að kynna lagasetningu sem miðar að því að banna börnum undir 16 ára aldri að nota samfélagsmiðla. Á vef BBC segir að lagasetningin eigi að vera leiðandi fyrir allan heiminn. Haft er eftir forsætisráðherra Ástralíu, Anthony Albanese, að leggja eigi frumvarpið fram á þinginu í næstu viku. Erlent 7.11.2024 21:03
Fundu ellefu lík í yfirgefnum pallbíll Lögregluþjónar í Guerrero-fylki í Mexíkó fundu í gær ellefu lík sem skilin höfðu verið eftir í pallbíl við hraðbraut í gegnum Chilpancingo, höfuðborg fylkisins. Tvö börn eru meðal hinna látnu en talið er að fólkið hafi verið myrt. Erlent 7.11.2024 20:21
Ávarp Bidens: „Þú getur ekki elskað nágranna þinn bara þegar þið eruð sammála“ „Í rúm tvö hundruð ár hafa Bandaríkin staðið í mikilfenglegustu stjálfstjórnartilraun í alheimssögunni. Það er ekki ýkja það er staðreynd. Þar kýs fólk og velur sér sína eigin leiðtoga á friðsamlegan hátt. Í lýðræði nær vilji fólksins alltaf fram,“ sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði þjóð sína í dag. Erlent 7.11.2024 17:22
Vill taka vantraustið fyrir strax Formaður Kristilegra demókrata í Þýskalandi vill að vantraustillaga á hendur ríkisstjórn landsins verði tekin fyrir strax, en Þýskalandskannslari hefur talað fyrir því að tillagan verði tekin fyrir á næsta ári. Erlent 7.11.2024 11:37
Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders segir enga furðu að verkalýðsstéttin hafi snúið baki við Demókrataflokknum í nýafstöðnum forseta- og þingkosningum í Bandaríkjunum. Slíkt gerist þegar flokkurinn snúi baki við verkalýðsstéttinni. Erlent 7.11.2024 08:48
Ríkissjórn Scholz er sprungin Ríkissjórn Olaf Scholz Þýskalandskanslara er sprungin eftir að einn þriggja stjórnarflokkanna ákvað að segja skilið við ríkisstjórnina. Það gerðist í kjölfar þess að Scholz ákvað að reka fjármálaráðherrann Christian Lindner, leiðtoga Frjálslynda lýðræðisflokksins, sem átti aðild að stjórninni. Erlent 6.11.2024 22:58
Óskaði Trump til hamingju og ítrekaði friðsamleg valdaskipti Kamala Harris játaði ósigur í forsetakosningum Bandaríkjunum og þakkaði stuðningsfólki sínu í ávarpi í kvöld. Hún hringdi í Donald Trump næsta Bandaríkjaforseta og tjáði honum að hún muni sjá til þess að valdaskiptin verði friðsamleg. Erlent 6.11.2024 22:29
Ríkisstjórn Scholz á barmi þess að springa Ríkisstjórn Olaf Scholz kanslara Þýskalands stendur mjög tæpt eftir að Scholz rak fjármálaráðherra ríkisstjórnarinnar í kvöld. Hann hefur tilkynnt að atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu á fari fram á þingi í janúar. Erlent 6.11.2024 21:38
Harris búin að hringja í Trump og undirbýr ávarp Kamala Harris forsetaframbjóðandi demókrata, sem laut í lægra haldi gegn Donald Trump frambjóðanda repúblikana, er búin að ræða við þann síðarnefnda og játa ósigur. Hún sleppti því að ávarpa stuðningsmenn sína í nótt en hyggst gera það síðar í kvöld. Erlent 6.11.2024 19:11
Óttast verulegt bakslag á mörgum vígstöðvum Prófessor við viðskiptafræðisdeild Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra er hugsi eftir að ljóst er að Donald Trump verður forseti Bandaríkjanna næstu fjögur árin. Bakslag í hnattrænni hlýnun, tangarhald kristinna hægri manna á Hæstarétt og uppgangur Rússlands á kostnað Úkraínu er meðal þess sem tínt er til. Erlent 6.11.2024 10:44
Baráttan um Bandaríkin: Donald Trump verður forseti, og hvað svo? Donald Trump verður næsti forseti Bandaríkjanna eftir kosninganótt sem reyndist alls ekki jafnspennandi og reiknað var með. Við förum yfir stöðuna í Baráttunni um Bandaríkin á Vísi í beinni útsendingu klukkan 11 og spáum í komandi forsetatíð Trumps, sem gæti orðið enn stormasamari en sú síðasta. Erlent 6.11.2024 09:37
Þjóðarleiðtogar kasta kveðju á Trump Þjóðarleiðtogar heimsins og aðrir leiðtogar eru byrjaðir að kasta kveðjum á Donald Trump og hrósa honum fyrir væntanlegan sigur hans í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Þeirra á meðal eru Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, og Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands. Erlent 6.11.2024 08:46
Trump lýsir yfir sigri: Guð hafi bjargað honum svo hann gæti bjargað Ameríku „Það er mikill heiður að hafa verið kjörinn 47. og 45. forseti Bandaríkjanna,“ sagði Donald Trump þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína í Flórída, en þar lýsti hann yfir sigri í forsetakosningunum í Bandaríkjunum. Erlent 6.11.2024 08:17
Andstæðingar þungunarrofs unnu í Flórída Samhliða forsetakosningum í Bandaríkjunum í gær voru atkvæði greidd um rétt kvenna til þungunarrofs í nokkrum ríkjum. Íbúar Flórída urðu fyrstir til þess að fella tillögu um stjórnarskrárbreytingu sem festir réttinn í sessi. Erlent 6.11.2024 08:07
Donald Trump forseti á nýjan leik Donald Trump verður að öllum líkindum aftur forseti Bandaríkjanna. Fjölmiðlar vestanhafs hafa lýst yfir sigri hans í sveifluríkinu Pennsylvaníu og þar með í forsetakosningunum öllum. Án sigurs í Pennsylvaínu á Kamala Harris ekki leið til að tryggja sér þá 270 kjörmenn sem þarf til að vinna í kosningunum. Erlent 6.11.2024 07:17