
Handbolti

Valur framlengir við Snorra Stein og Ágúst
Valsmenn eru greinilega ánægðir með störf þjálfara meistaraflokka félagsins í handbolta.

Viktor Gísli varði flest víti á EM: Vargas náði bara að jafna hann
Gonzalo Pérez de Vargas markvörður Evrópumeistara Spánar tókst ekki að komast upp fyrir Viktor Gísla Hallgrímsson í leikjunum um verðlaun á Evrópumótinu í handbolta sem lauk um helgina. Íslandi átti því markvörðinn sem varði flest víti á Evrópumótinu í ár.

Spánverjar Evrópumeistarar 2020
Spánverjar eru Evrópumeistarar í handbolta eftir tveggja marka sigur á Króötum í frábærum úrslitaleik. Lokatölur í Tele2 höllinni í Stokkhólmi 22-20 Spánverjum í vil. Annað skiptið í röð sem Spánverjar landa Evrópumeistaratitlinum.

Duvnjak valinn bestur á EM 2020
Búið er að velja besta leikmann EM 2020 í handbolta og úrvalslið mótsins.

Norðmenn brjálaðir | Átti sigurmark Króatíu að standa?
Zeljo Musa skoraði sigurmark Króatíu í tvíframlengdum undanúrslitaleik liðsins gegn Noregi í gær þegar aðeins fimm sekúndur voru eftir á klukkunni. Norðmenn eru brjálaðir þar sem þeir segja að markið hafi verið ólöglegt. Leiknum lauk með eins marks sigri Króatíu, 29-28.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 35-22| Stjarnan átti engan séns í meistarana
Valskonur lentu ekki í neinum vandræðum með laskað lið Stjörnunnar á Hlíðarenda í kvöld

Basti: Þessi hópur þarf að girða upp um sig
Sebastian Alexandersson sagði eftir leik að Valur væri þremur ef ekki fjórum númerum of stórar fyrir Stjörnunna eins og staðan er í dag. Hann segir að liðið þurfi að rífa sig í gang fyrir komandi verkefni

Norðmenn tryggðu sér bronsið með öruggum sigri á Slóvenum | Þýskaland náði 5. sætinu
Bronsið á Evrópumótinu í handbolta er Norðmanna að þessu sinni eftir átta marka sigur á Slóvenum í dag, lokatölur 28-20. Fyrr í dag tryggðu Þjóðverjar sér svo 5. sætið með sigri á Portúgal. Fréttin hefur verið uppfærð.

ÍBV vann Þór/KA örugglega á heimavelli
ÍBV vann öruggan 11 marka sigur á Þór/KA í Olís deild kvenna í dag, lokatölur 26-15. Sigurinn þýðir að ÍBV er komið upp að hlið Þór/KA í Olís deildinni.

Sjöundi sigur Fram með tíu mörkum eða meira í vetur
Fram vann sinn níunda leik í röð þegar HK kom í heimsókn í Safamýrina.

Rut og stöllur hennar unnu norsku meistarana
Team Esbjerg vann fyrsta leik sinn á árinu 2020 í Meistaradeild Evrópu í handbolta.

Hituðu upp á „fan zone“ fyrir undanúrslitaleikinn: „Þetta er til skammar“
Undirbúningur Spánverja og Slóvena fyrir undanúrslitaleik liðanna var óhefðbundinn.

Spánverjar í úrslit á þriðja Evrópumótinu í röð
Spánn var lengst af með yfirhöndina gegn Slóvenía og vann tveggja marka sigur, 34-32.

Króatar í úrslit eftir tvíframlengdan spennutrylli
Undanúrslitaleikur Króatíu og Noregs á EM 2020 verður lengi í minnum hafður.

Byggðu stúkuna úr vinnupöllum og spila úrslitaleikina á EM í handbolta í fótboltahöll
Svíar ætla sér að setja nýtt áhorfendamet í úrslitaleik Evrópumótsins í handbolta á sunnudaginn og ger það með því að setja handboltavöllinn inn í fótboltaleikvang og byggja heila stúku úr vinnupöllum.

Töpuðu handboltaleik 55-1
Bólivía á enn margt ólært í handboltafræðunum ef marka má úrslit liðsins í Suður-Ameríkukeppninni.

Þjálfarar grófasta og prúðasta liðs EM í handbolta eru íslenskir
Ísland átti þrjá þjálfara á Evrópumótinu í handbolta í ár og tveir þeirra voru með lið sín á sitthvorum endanum þegar kom að prúðmennsku samkvæmt útreikningum evrópska handboltasambandsins.

Allir leikmenn á EM í handbolta þurftu að spila í sérstökum „brjóstahaldara“
Það var boðið upp á nýjung í upplýsingagjöf frá Evrópumóti karla í handbolta í ár og fyrir vikið gátu áhugasamir fengið nýja tölfræði um frammistöðu leikmanna.

Ólafur Stefánsson um íslenska handboltalandsliðið: Mér finnst að við séum komnir eiginlega með allt
Ólafur Stefánsson hefur mikla trú á bjartri framtíð íslenska handboltalandsliðsins þrátt fyrir að liðið hafi gefið mikið eftir í seinni hluta Evrópumótsins í handbolta.

Haukar sáu til þess að Afturelding er enn án stiga
Haukar lönduðu sínum fimmta sigri í Olís deild kvenna í kvöld er liðið heimsótti Aftureldingu að Varmá í Mosfellsbæ í 13. umferð deildarinnar. Eftir að staðan var jöfn 11-11 í hálfleik þá unnu Haukar fjögurra marka sigur, lokatölur 25-21.

Gísli Þorgeir skrifar undir hjá Magdeburg
Gísli Þorgeir Kristjánsson verður áfram í þýsku bundesligunni þótt að Kiel hafi sagt upp samningi hans. SC Magdeburg tilkynnti um komu hans í dag.

Kristján Andrésson með bestan árangur íslenskra þjálfara á fjórða stórmótinu í röð
Kristján Andrésson endaði landsliðsþjálfaraferil sinn með sigri á Íslandi í lokaleik milliriðils EM í handbolta í gær. Með sigrinum tryggðu Svíar sér sjöunda sætið á Evrópumótinu.

Alexander besti maður íslenska liðsins á EM
Hinn 39 ára gamli Alexander Petersson var besti maður íslenska karlalandsliðsins á Evrópumótinu í handbolta samkvæmt einkunnagjöf Íþróttadeildar Vísis og Stöðvar tvö Sport.

Bikarmeistararnir fara til Eyja
Dregið var í 8-liða úrslit Coca Cola bikars karla og kvenna í handbolta í dag.

Aron skoraði tíu mörk í fyrsta leik á EM en aðeins þrettán eftir það
Eftir frábæra byrjun á Evrópumótinu 2020 gaf Aron Pálmarsson hressilega eftir.

Markatala Íslands er -33 í lokaleikjum síðustu sex stórmóta
Íslenska handboltalandsliðið endaði Evrópumótið í gærkvöldi með því að steinliggja á móti Svíum og þetta mót var því endasleppt hjá íslenska liðinu eins og öll stórmót liðsins undanfarin ár.

Kristján: Ég er mjög ánægður með þessi þrjú ár
Kristján Andrésson þjálfari Svía var að vonum sáttur eftir sigurinn á íslenska liðinu í kvöld. Þetta var hans síðasti leikur sem þjálfari sænska landsliðsins.

Einkunnir strákanna okkar á móti Svíþjóð: Kári bestur í lokaleiknum
Íslenska handboltalandsliðið tapaði illa í lokaleik sínum í milliriðli á Evrópumeistaramótinu í Svíþjóð, Noregi og Austurríki. Íslenska liðið komst lítið áleiðis gegn Svíum og var í miklum vandræðum allan tímann. Munurinn á endanum var sjö mörk en sigur Svía var aldrei í hættu.

Uppgjör Henrys: Draumabyrjun en martraðarendir
Strákarnir okkar hafa lokið keppni á EM. Þeir töpuðu lokaleik sínum í kvöld, 32-25, gegn Svíum. Það vantaði allt malt í okkar menn sem sáu aldrei til sólar í leiknum.

Guðjón Valur: Meðan ég spila handbolta er ég til þjónustu reiðubúinn
Landsliðsfyrirliðinn fór sparlega í yfirlýsingarnar eftir leikinn gegn Svíþjóð.