

Dagurinn verður rólegur og þú færð næði til að hugsa um næstu daga. Hugaðu að peningamálum.
Vonbrigði þróast yfir í ánægju þegar þú færð fréttir frá vini eða ættingja. Samband þitt við ákveðinn einstakling fer batnandi.
Samband þitt við ákveðna manneskju er ekki sem best um þessar mundir. Ef þú ert í vafa um hvað skal gera skaltu bíða og sjá hvað verður.
Þú ert í góðu jafnvægi í dag og lætur það ekki angra þig þó að aðrir séu eitthvað uppstökkir. Þér hættir hins vegar til að vera einum of kærulaus.
Þú ert óvenjulega vel vakandi og einbeittur í samskiptum og þetta gæti nýst þér vel í fjármálum. Hugaðu að sambandi þínu við fjarlæga vini og ættingja.
Þú verður líklega heppinn í fjármálum næstu daga. Þú ert mun bjartsýnni en þú hefur verið undanfarið og finnst gaman að vera til.
Þú verður að vera þolinmóður en þó ákveðinn við fólk sem þú ert að bíða eftir. Þú lendir í sérstakri aðstöðu í vinnunni.
Þér gengur vel að fá fólk á þitt band en vertu samt ekki of aðgangsharður. Hugmyndir þínar falla í góðan jarðveg.
Þú ert ef til vill haldinn dálítilli ævintarýraþrá í dag og það kann að koma fram í vinnu þinni. Ekki skipuleggja daginn í smáatriðum fyrir fram.
Sýndu tillitssemi í vinnunni ef þú vilt fá samþykki fólks fyrir því sem þú ert að gera. Fjölskyldulífið gengur óvenjulega vel þessa dagana.
Einhver biður þig um að lána sér fjármuni. Það kann að vera allt í lagi ef vel er gengið frá málunum. Fjárhagur þinn fer batnandi.
Þér gæti hætt til að láta aðra ráðskast of mikið með þig og hafa áhrif á skoðanir þínar.
Vinir þínir hafa mikil áhrif á þig þessa dagana. Ef þú ert óákveðinn með hvað þú vilt er alltaf gott að hlusta á heilræði góðra vina en mundu að á endanum verður þú að gera upp við sjálfan þig hvert þú vilt stefna.
Þú átt auðvelt með að umgangast annað fólk og það virkar hvetjandi á þig og eykur sjálfstraust þitt. Kvöldið verður skemmtilegt.
Tilfinningamálin verða í brennidepli í dag og þú eyðir talsverðum tíma í að ræða persónuleg mál. Gættu þess að það komi ekki niður á vinnu þinni.
Þessi dagur hentar vel til að greiða úr deilumálum og leiðrétta misskilning sem gæti hafa komið upp.
Þér hættir til að vera heldur einstrengingslegur og ósveigjanlegur. Það er nauðsynlegt í samskiptum að geta gefið eftir.
Þú ert þolinmóður að eðlisfari og það reynir alveg sérstaklega á þann eiginleika þinn um þessar mundir þar sem þú umgengst einkar seinlátt fólk.
Varastu spurningar sem koma upp um þig og auðvelda öðrum að sigra þig í samkeppni. Fólkið í kringum þig er kannski ekki sérlega vinsamlegt í dag.
Rómantíkin kemur við sögu í dag og þú átt mjög ánægjulegan dag með ástvini. Vinir þínir eru þér ofarlega í huga í kvöld.
Þú kynnist einhverju nýju sem vekur áhuga þinn. Hugsaðu þig vel um áður en þú tekur mikilvægar ákvarðanir. Þú ættir að skella þér út á lífið í kvöld.
Skemmtanir verða þér ofarlega í huga og þú tekur þátt í að skipuleggja einhverja samkomu eða atburð í félagslífinu.
Morgunninn verður annasamur og þú hefur meira að gera en þú óskar eftir. Einhver leitar til þín eftir ráðum.
Reyndu að gera vini þínum, sem á eitthvað bágt, greiða. Hann mun launa þér það margfalt til baka þó að síðar verði.
Vertu varkár í viðskiptum og forðastu að lofa upp í ermina á þér. Það er mikilvægt að vera stundvís.
Þú gætir fengið óvæntar fréttir af einhverjum sem þú þekkir. Þetta er góður tími fyrir hvers konar viðskipti.
Frumkvæðið er hjá öðrum í dag en þú leggur sitthvað til málanna og það verður hlustað á þig.
Fólkið í kringum þig þreytir þig í dag og þú vilt eiga einhvern tíma í ró og næði. Það er þó ekki víst að þér takist það þar sem þú hefur margt á þinni könnu.
Einhvað sem þú gerir, að þér finnist á hefðbundinn hátt leiðir af sér að þú kemst í sambönd sem þig óraði ekki fyrir. Ekki lána peninga.
Þú átt ánægjulegan dag. Rómantíkin gerir vart við sig og þú ert í góðu jafnvægi þessa dagana.