Veður

Hvöss norðanátt víða á landinu
Framan af degi er hvöss norðanátt nokkuð víða á landinu og skafrenningur, auk þess að það snjóar norðan- og austanlands. Það lægir smám saman í dag.

Appelsínugul viðvörun á Vestfjörðum og Snæfellsnesi
Veðurofsinn er ekki alveg yfirgenginn, þá sérstaklega ekki fyrir íbúa Snæfellsness, Vestfjarða og Norðurlands en stormur mun ríða yfir svæðin í dag.

Veðurvaktin: Viðvaranir enn í gildi og miklar samgöngutruflanir
Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi víða um land vegna lægðarinnar sem nú liggur yfir landinu. Þegar fram líður á morgun breytast viðvaranirnar margar hverjar í gular áður en þær falla úr gildi um miðjan dag í dag.

Appelsínugul viðvörun allsstaðar á landinu í kvöld
Verulega slæmu veðri er spáð á landinu öllu í kvöld og í nótt. Gul veðurviðvörun tekur vildi víða um land um miðjan daginn í dag en verður svo að appelsínugulri viðvörun þegar líður á kvöldið.

Febrúar mun kaldari en undanfarin ár
Fyrstu fimmtán dagar febrúarmánaðar hafa verið mun kaldari en sömu dagar síðustu ára. Meðalhiti í Reykjavík var 1.-15. febrúar 2,1 stiga frost sem er 2,5 gráðum undir meðal lagi áranna 1991 til 2020 og 3,3 gráðum kaldara en meðallag síðustu tíu ára.

Vindur róast en reikna má með slyddu eða snjókomu
Nú er vindur að róast á Suður- og Vesturlandi, þar má þó búast við slyddu eða snjókomu fram eftir morgni. Eftir hádegi er útlit fyrir stöku él á þessum slóðum.

Gott vetrarveður um land allt í dag
Útlit er fyrir að hið prýðilegasta vetrarveður verði á landinu í dag: hægur vindur, bjart og kalt.

Mikill kuldi á landinu öllu í dag
Í dag er spáð norðaustan 8-15 m/s en jafnvel hvassara í vindstrengjum með suðausturströnd landsins.

Léttir til eftir hádegi með vaxandi norðanátt
Dagurinn byrjar með hægri breytilegri átt og stöku éljum vestanlands. Það léttir til eftir hádegi með vaxandi norðaustanátt, fimm til tíu metrar á sekúndu í kvöld en tíu til fimmtán metrar syðst og um norðanvert landið.

Allt að tuttugu stiga frost inn til landsins
Veðurstofan spáir suðvestlægum áttum í dag með stöku éljum vestanlands en bjart að mestu fyrir austan.

Norðanátt með éljum norðantil en þurrt fyrir sunnan
Veðurstofan spáir norðlægri átt í dag, tíu til átján metrum á sekúndu, með éljum fyrir norðan en þurrt að kalla um sunnanvert landið.

Þetta er lægðin sem hefur verið að hrella landsmenn
Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, náði þessari mynd af lægðinni sem leikið hefur landsmenn grátt undanfarna daga.

Lægðin heldur áfram að stjórna veðrinu í dag og á morgun
Lægðin sem hefur stjórnað veðrinu hjá okkur síðustu daga heldur því áfram í dag og á morgun. Á vef Veðurstofunnar segir að lægðin fari nú að flytja sig um set og verði skammt suðvestur af Reykjanesi í kvöld og haldi síðan för sinni áfram til austurs fyrir sunnan land og grynnist smám saman.

Minnkandi norðvestanátt á landinu
Minnkandi norðvestanátt verður á landinu í dag, en hvassir vindstrengir suðaustantil fram eftir degi.

Víða talsvert frost í nótt en dregur úr því með morgninum
Veðurstofan spáir norðan og norðvestan kalda eða strekkingi í dag og snjókomu eða él, en úrkomulitlu veðri sunnanlands. Það hefur víða verið talsvert frost í nótt en það dregur úr því með morgninum og verður frost á bilinu eitt til níu stig eftir hádegi.

Suðvestanátt, frost og víða él
Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði suðvestanátt í dag, þrír til tíu metrar á sekúndu, og víða él en úrkomulítið norðaustantil. Frost verður á bilinu núll til tíu stig yfir daginn.

Frost á öllu landinu og sums staðar lúmsk og hættuleg hálka
Frost er nú á öllu landinu, og á þeim slóðum þar sem hlánaði í gær gæti lúmsk hálka verið hættuleg fram að hádegi, til að mynda á suðvesturhorninu landsins.

Allkröpp lægð nálgast landið
Allkröpp lægð nálgast nú landið, en gengur þá í suðaustanstrekking með snjókomu sunnan- og vestanlands undir hádegi, en síðar einnig í öðrum landshlutum.

Rask á innanlandsflugi vegna hvassviðris og éljagangs
Veturinn hefur látið rækilega til sín taka á norðurhveli jarðar um helgina, með tilheyrandi óþægindum. Búast má við talsverðum samgöngutruflunum vegna veðurofsa á landinu í dag en gular veðurviðvaranir eru í gildi á öllu vestanverðu landinu. Veðurfræðingur varar fólk við því að stunda útivist vegna hvassviðris og éljagangs.

Gul veðurviðvörun á vestanverðu landinu í dag
Gul veðurviðvörun er á öllu vestanverðu landinu í dag. Viðvörunin tekur víðast hvar gildi um klukkan tíu í dag og verður í gildi fram undir kvöld.

Von á norðanáhlaupi og gular viðvaranir taka gildi í kvöld
Skammt vestan við Vestfirði er nú 984 millibara lægð sem veldur því að á landinu er suðvestan átta til fimmtán metrar á sekúndu og víða él. Þegar líður á daginn mun lægðin fara austur með norðurströndinni og því er von á skammvinnu norðanáhlaupi síðdegis og í kvöld. Gular viðvaranir taka gildi víða á landinu í síðar í dag.

Hlýrra loft á leiðinni svo úrkoma breytist í slyddu og rigningu
Veðurstofan spáir suðvestan fimm til tíu metrum á sekúndu, éljum og hita í kringum frostmark í dag. Lengst af verður þó bjart, þurrt og frost núll til sex stig norðan- og austanlands.

Rólegt veður eftir illviðri gærdagsins
Eftir illviðri gærdagsins er útlit fyrir rólegt veður í dag. Reikna má við hægum vindi víðast hvar og úrkomulítið, en dálítilli snjókomu við suður- og vesturströndina.

Kröpp lægð nálgast landið og appelsínugular viðvaranir
Kröpp lægð er nú skammt vestur af landinu og hún fer austnorðaustur yfir land í dag. Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði því vaxandi suðvestanátt fyrri part dags og rigning eða skúrir, en þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti verður á bilinu núll til sex stig.

Leiðindaveður víða um land í nótt og á morgun
Appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Norð-Vesturhluta landsins sem gilda til klukkan 18 á morgun. Þá eru gular viðvaranir í gildi víða um land.

Hiti komst í sautján stig á Austfjörðum í nótt
Nóttin var hlý á landinu og komst hitinn þannig í sautján stig á Austfjörðum. Í dag er hins vegar spáð hvassri suðvestanátt með éljum og kólnandi veðri, en stormi eða roki í kvöld og rigningu eða snjókomu um tíma.

Stíf suðlæg átt og stormur á norðanverðu landinu í kvöld
Veðurstofan gerir ráð fyrir stífri suðlægri átt í dag og hvassviðri eða stormi á norðanverðu landinu seint í kvöld.

Bjart veður og kalt en hvessir annað kvöld
Veðurstofan spáir vestlægri eða breytilegri átt í dag, golu eða kalda. Bjart veður og kalt, en sunnan kaldi og dálítil él vestast í kvöld.

Suðvestanátt og kólnandi veður
Spáð er vestan eða suðvestan átt í dag, víða átta til fímmtán metrum á sekúndu, en þó hvassari á stöku stað, einkum á Norðurlandi og með suðausturströndinni.

Hlý en hvöss suðvestanátt og vætusamt vestantil
Veðurstofan gerir ráð fyrir fremur hlýrri en hvassri suðvestanátt í dag. Vætusamt verður á vesturhelmingi landsins, en lengst af þurrt eystra.