
Sigur fyrir Ólaf Ragnar
Næstu daga mun baráttan um forsetakosninganar halda áfram. Nú verður barist um túlkun á niðurstöðum þeirra. Ólafur Ragnar Grímsson mun halda því fram að hann hafi ekki aðeins sigrað í kosningunum heldur einnig lagt forystu Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðið, sem er ekki lengur hægt að kalla annað en málgagn forystu flokksins. Morgunblaðið og harðasti kjarninn í kringum forystu Sjálfstæðisflokksins munu telja sig hafa laskað Ólaf Ragnar svo með auðum atkvæðum að hann hafi á einhvern hátt takmarkaðra umboð frá kjósendum en forsetar hingað til. Næstu daga mun verða deilt um þessar mismunandi túlkanir. Niðurstöður kosninga eru sjaldnast mjög skýrar og það á einnig við um þessar. Baráttan um túlkun þeirra getur því fært báðum nokkurn sigur -- eða í það minnsta varnarsigur. En það er ljóst að hvorugur tapaði.
Það er nokkuð afrek að fá frá fimmtungi að fjórðungi þeirra sem mæta á kjörstað til að skila auðu. Það eru sterk mótmæli. Það er hins vegar erfitt að meta styrk þeirra sökum þess hversu öflugir aðilar stóðu að þeim og beittu sér í kosningabaráttunni. Það voru álíka margir sem skiluðu auðu í forsetakosningunum og skrifuðu undir hvatningu til Ólafs Ragnars að staðfesta ekki fjölmiðlalögin. Svipaður fjöldi hefur áður hvatt forseta til að staðfesta ekki lög um virkjanir og samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Mun fleiri skrifuðu þó undir stuðning við varnarsamninginn í herferð Varins lands fyrir þrjátíu árum. Auðu seðlarnir nú skipa sér samt sem áður í flokk með sterkustu mótmælum sögunnar.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur hins vegar verið gríðarsterkt afl í íslenskum stjórnmálum marga undanfarna áratugi og það er óvanalegt að hann beiti sér í mótmælaaðgerðum. Það er því ef til vill hægt að ætla honum meiri árangur í slíkum aðgerðum en til dæmis Vinstrihreyfingunni -- grænu framboði. Styrkur Sjálfstæðisflokksins og það afl sem Morgunblaðið lagði í kosningabaráttuna gerir það að verkum að þótt veikari öfl gætu vel við unað er fjöldi auðra seðla ekki sigur fyrir flokkinn eða blaðið. En þeir eru nægjanlega margir til að forða tapi.
Hvað forysta flokksins hins vegar ætlaði sér með þessum leiðangri sínum er enn óskýrt. Það mátti öllum vera ljóst að þótt flokknum tækist að skaða stöðu forsetans myndi yfirlýst andstaða flokks og blaðs færa Ólafi Ragnari persónulegan sigur.
Ólafur Ragnar situr vissulega uppi með mun verri kosningu en Vigdís Finnbogadóttir fékk árið 1988. Þetta eru einu forsetakosningarnar þar sem sitjandi forseti hefur fengið mótframboð og því einu kosningarnar sem eðlilegt er að bera þessar saman við. Mótframbjóðendur Ólafs Ragnars voru tveir og fengu aðeins meira en tvöfalt fylgi eina mótframbjóðanda Vigdísar. Mismunurinn liggur í auðum seðlum. Árið 1988 voru þeir rúm 2 prósent en nú bætast við meira en 20 prósent til viðbótar.
Þrátt fyrir að kannanir hafi sýnt að Ólafi Ragnari hafi gengið vel að afla sér fylgis þrátt fyrir pólitíska fortíð sína gerir enginn ráð fyrir að hann verði nokkru sinni jafningi Vigdísar að vinsældum. Hann mátti því búast við fleiri auðum seðlum en Vigdís fékk þótt ekki hefði komið til andstaða Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðsins. Og þegar þessar kosningar eru bornar saman er munurinn ekki mikill í ljósi þess hversu öfluga andstæðinga Ólafur Ragnar var að glíma við.
Við getum spurt okkur hvort við hefðum talið það sigur eða tap fyrir Ólaf Ragnar Grímsson fyrir nokkrum misserum síðan að fá þrisvar sinnum meira fylgi en sá kostur sem forysta Sjálfstæðisflokksins og Morgunblaðið börðust fyrir. Þótt það séu ekki góð tíðindi fyrir forseta að hátt í fimmtungur kjósenda skili auðu í mótmælaskyni eru niðurstöður þessara kosninga hins vegar nokkur sigur fyrir Ólaf Ragnar.
Baldur Ágústsson má síðan vera stoltur af því að fá um þriðjungs fylgi á við Pétur Thorsteinsson 1980 og helminginn af fylgi Alberts Guðmundssonar i sömu kosningum.
Skoðun

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar

Á að láta trúð ráða ferðinni?
Ingólfur Steinsson skrifar

Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs
Ásdís Kristjánsdóttir skrifar

Ofþétting byggðar í Breiðholti?
Þorvaldur Daníelsson skrifar

Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð?
Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar

Hugsanaskekkja forsætiráðherra í Evrópumálum – Þetta eru tvö skref!
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Opið bréf til ráðherranna Hönnu Katrínar og Ingu Sæland - blóðmeramálið
Árni Stefán Árnason skrifar