Hringamyndun: Vandinn og lausnin
Viðskiptasamsteypur eru tæki sem fjársterkir aðilar nota til þess að margfalda það fjármagn sem þeir ráða yfir í þeim tilgangi að auka völd sín og/eða hagnast á kostnað smærri hluthafa. Einfalt dæmi getur varpað ljósi á það hvernig þetta er gert. Segjum að eignarhaldsfélag í eigu fjársterkrar fjölskyldu eigi 51% í fyrirtæki A sem á 51% í fyrirtæki B. Þá á fjölskyldan ekki nema rúm 25% í fyrirtæki B en fer þó með öll völd í því fyrirtæki. Ef fyrirtæki B á svo 51% í fyrirtæki C á fjölskyldan ekki nema rúm 12,5% í því fyrirtæki en fer samt sem áður með öll völd í því líka. Með því að mynda slíkar samsteypur getur fjölskyldan því ráðið yfir fjölda fyrirtækja sem hún á ekki nema lítinn hlut í.
Fjölskyldan hefur því langtum meiri völd í viðskiptalífinu en ætla mætti ef einungis er tekið mið af eignum hennar. Þessi völd getur fjölskyldan notað til þess að auka hag sinn með ýmsum hætti. Það er til dæmis augljóst að fjölskyldan hefur mun meiri hag af því að fyrirtæki A gangi vel en að fyrirtæki C gangi vel (þar sem hún á meira í fyrirtæki A en fyrirtæki C). Hún getur því beitt völdum sínum í fyrirtæki C til þess að auka hagnað fyrirtækis A. Slíkt er hagstætt fyrir fjölskylduna þótt þessar aðgerðir minnki hagnað fyrirtækis C svo fremi sem þær minnka hann ekki meira en um fjórar krónur fyrir hverja eina krónu sem hagnaður fyrirtækis A eykst.
Þessi hvati fjölskyldunnar til þess að misnota fyrirtæki C í þeim tilgangi að auka hagnað fyrirtækis A skaðar vitaskuld hagsmuni annarra hluthafa í fyrirtæki C. Segjum til dæmis að fjórir lífeyrissjóðir eigi 10% hver í fyrirtæki C. Þá er fjölskyldan í raun að níðast á lífeyrissjóðunum með aðgerðum sínum. Oft er talað um ókostina sem fylgja því að fé sé án hirðis. Viðskiptasamsteypur skapa hins vegar þveröfugt vandamál, þ.e. hirði sem er að gæta fjár annarra og ber ekki hag eigenda þess fyrir brjósti.
Auk ofangreindra vandamála draga viðskiptasamsteypur úr samkeppni, þær hafa neikvæð áhrif á seljanleika hlutabréfa, þær draga úr áhuga smærri hluthafa á því að eiga hlutabréf og hækka þannig fjármögnunarkostnað nýrra fyrirtækja.
Lausnin á vandanum sem viðskiptasamsteypur skapa er einföld. Ef skattur yrði lagður á arðgreiðslur milli fyrirtækja myndi hvatinn til þess að mynda viðskiptasamsteypur hverfa eins og dögg fyrir sólu. Ástæða þess er að slíkur skattur gerir það kostnaðarsamt fyrir fjölskylduna að flytja arð upp fyrirtækjakeðjuna (eða um fyrirtækjanetið ef því er að skipta).
Þessi leið hefur verið farin í Bandaríkjunum og hefur reynst vel. Bandaríkin eru eina landið í heiminum þar sem viðskiptasamsteypur þekkjast ekki. Víðast hvar annars staðar ráða þær lögum og lofum. Raunar hefur hún reynst það vel að Bush Bandarikjaforseti hætti við að afnema slíkan skatt á síðasta ári eftir að efnahagsráðgjöfum hans hafði verið bent á hversu mikilvægur hann væri í því að koma í veg fyrir myndun viðskiptasamsteypa. Í stað þess að beita sér fyrir afnámi allra skatta á arðgreiðslur lagði hann einungis til að skattar á arðgreiðslur til einstaklinga yrðu felldir niður.
Skattur á arðgreiðslur milli fyrirtækja hefur nokkra mikilvæga kosti fram yfir aðrar leiðir til þess að berjast gegn hringamyndun. Í fyrsta lagi bitnar slíkur skattur jafnt á öllum viðskiptasamsteypum. Hann er ekki háður huglægu mati Samkeppnisstofnunar, lögreglunnar eða framkvæmdavaldsins almennt. Í öðru lagi hefur hann þann kost að viðskiptasamsteypurnar leysast upp af sjálfu sér í stað þess að Samkeppnisstofnun og lögreglan þurfi að standa í stöðugum rannsóknum og málaferlum til þess að leysa þær upp með valdi.
Mikilvægasti kostur þessarar leiðar er hins vegar að hann íþyngir á engan hátt fyrirtækjum sem einungis stunda rekstur í því augnamiði að hámarka hagnað sinn. Hann íþyngir eingöngu fyrirtækjum sem til hliðar við sinn eiginlega rekstur standa í því að byggja upp viðskiptasamsteypur.
Ég má til að taka undir það mat ritstjóra Morgunblaðsins að löggjöf um hringamyndun muni leiða til mikilla deilna í þjóðfélaginu, a.m.k. ef löggjöfin er þess eðlis að líklegt verði að hún nái markmiðum sínum. Fjársterkir aðilar sem sitja í hásætum íslenskra viðskiptablokka eiga mikilla hagsmuna að gæta að slík lög nái ekki fram að ganga. Þeir munu eflaust beita sér af hörku gegn þeim.
Skoðun

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar