
Íslenskt bíóvor
Bíóþjóðin hefur þó ekki kippt sér mikið upp við það. Aðalmálið virðist vera að fara í bíó og drepa um það bil tvo klukkutíma í senn. Hvað það er sem er horft á er aukaatriði.
Kvikmyndahúsunum hefur verið legið á hálsi að bjóða nær einungis upp á engilsaxneskt afþreyingarefni og það eru ekki mörg ár síðan það var hending að evrópskar, að maður tali ekki um asískar myndir, rötuðu á almennar sýningar í bíóum í Reykjavík.
Bíóin ein og sér geta ekki borið alla ábyrgðina enda ekki ríkisstyrkt menningarfyrirtæki. Þau þurfa að standa undir sér og leggja því áherslu á það sem fjöldinn vill sjá. Árni Samúelsson gerði einu sinni virðingarverða tilraun til þess að búa til artí bíóstemningu í miðborg Reykjavíkur þegar hann breytti Nýja bíó í svokallað mánudagsbíóhús með áherslu á listrænar myndir. Betty Blue og Blue Velvet gengu ágætlega en síðan rann tilraunin út í sandinn. Fólkið lét einfaldlega ekki sjá sig.
Síðan þá hefur margt breyst og áhugi á jaðarmyndum, litlum sjálfstæðum myndum og myndum úr öllum heimshornum hefur snaraukist. Vel heppnaðar kvikmyndahátíðir, breskir bíódagar, franskir bíódagar, "indí" hátíð, Nordisk Panorama og fleiri bíóveislur hafa sýnt myndir fyrir fullu húsi og vakið meiri athygli og selt fleiri miða en björtustu áætlanir gerðu ráð fyrir. Það er því ljóst að íslenskir bíógestir vilja meiri fjölbreytni og þó að kvikmyndahátíðir séu vissulega góðra gjalda verðar ætti þessi fjölþjóðlega stemning á markaðnum að sýna að "öðruvísi myndir" ættu að geta gengið í almennum sýningum.
Kvikmyndahátíðin Iceland International Film Festival 2005 sem hefst þann 7. apríl er ein sú glæsilegasta og safaríkasta sem haldin hefur verið á Íslandi árum saman en á dagskrá hennar eru myndir á borð við La Mala Education, nýjasta mynd spænska leikstjórans Pedro Almódovar, Ett hål i mitt hjärta eftir sænska snillinginn Lukas Moodysson, Downfall þar sem Bruno Ganz fer á kostum í hlutverki Adolfs Hitler, Maria Full of Grace, Hotel Rwanda, Vera Drake, Kinsey, 9 Songs, House of Flying Daggers og The Woodsman. Allar þessar myndir hafa vakið mikla athygli og aðdáendur Almódovars hafa beðið myndar hans með óþreyju frá því í fyrra. Sumar þessara mynda kepptu um Óskarsverðlaunin en samt berast þær Íslendingum ekki fyrr en verðlaunaathöfnin er löngu liðin og til þess þarf kvikmyndahátíð.
Moodysson hefur verið að gera allt vitlaust með Ett hål i mitt hjärta, stórmerkilegri en jafnframt átakanlega erfiðri mynd. Sömu sögu er að segja af Michael Winterbottom, sem gengur með 9 Songs lengra í kynlífssenum en "alvöru leikstjórar" hafa áður gert.
Þær myndir sem hér eru nefndar hafa allar vakið ýmist hrifningu, sterk viðbrögð eða deilur og það er illt að þurfa að bíða eftir þeim lengur en nauðsynlegt er. Þetta eru vissulega fullsæmdar skrautfjaðrir fyrir hvaða kvikmyndahátíð sem er en það er eitthvað að ef þær geta ekki spjarað sig á almennum sýningum á Íslandi. Þá væri fólki nær að leggja meira púður í baráttuna fyrir bættri bíómenningu frekar en að rembast við að bæta vínmenningu. Það verkefni er vita vonlaust.
Það er gósentíð fram undan hjá íslenskum bíófíklum en um helgina verður langþráð mynd um ævi Peter Sellers, The Life and Death of Peter Sellers með Geoffrey Rush í aðalhutverki, og í lok næstu viku skellur stóra kvikmyndahátíðin á með slíkum kræsingum að það verður full vinna að sjá allt sem er í boði. Úrvalið þarna sýnir og sannar að kvikmyndahátíðir munu alltaf vera okkur Íslendingum nauðsynlegar þó að rjómanum af þeim verði fleytt yfir á almennar sýningar til að stytta biðina eftir myndum sem eru funheitar í umræðunni úti um allan heim.
Skoðun

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi?
Sævar Þór Jónsson skrifar

Horfumst í augu
Kristín Thoroddsen skrifar

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar