Dýrkeypt að bíða lengur 16. nóvember 2006 06:15 Kofi Annan Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir Kyoto-samkomulagið ganga alltof skammt.fréttablaðið/ap „
Enginn getur sagt að við höfum ekki efni á að gera ekki neitt," sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, í ræðu sinni á loftslagsráðstefnunni í Kenía í gær. Hann sagði greinilegt að það muni kosta miklu minna að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda núna „heldur að fást við afleiðingarnar síðar." Hann kvartaði einnig yfir „skelfilegum skorti á forystu" þegar kemur að því að ákveða næstu skref í því að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. „Nú ættum við að fara að sýna meira pólitískt hugrekki" sagði hann við ráðstefnugestina í Naíróbí, en þar í salnum sátu fulltrúar frá þeim 180 ríkjum sem eru aðilar að loftslagssamningi Sameinuðu þjóðanna frá 1992. Fulltrúi Íslands á ráðstefnunni er Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra. Tveggja vikna ársfundi fulltrúanna lýkur á föstudag, en á fundinum liggur fyrir það verkefni að samþykkja nánari útfærslur Kyoto-bókunarinnar, en samkvæmt henni ber 35 iðnríkjum skylda til þess að draga úr, fyrir árið 2012, útblæstri gróðurhúsalofttegunda um 5 prósent frá því sem var árið 1990. Ekki er þó reiknað með að afgerandi ákvarðanir verði teknar á þessum fundi. Í Naíróbí virðast margir vera þeirrar skoðunar að bíða þurfi þess að kjörtímabil George W. Bush Bandaríkjaforseta renni út áður en raunverulegar samningaviðræður geti hafist, en þangað til eru rúmlega tvö ár.
Erlent Mest lesið „Málinu verður ekki lokað fyrr en einhver axlar raunverulega ábyrgð“ Innlent Virginia Giuffre er látin Erlent Þarf lítið til svo hægt yrði að hækka hámarkshraða í 120 Innlent Rukkaði konuna fyrir heimferðina eftir að hafa nauðgað henni Innlent Hittust í fyrsta sinn eftir að upp úr sauð Erlent Myndir: Ráðamenn heims fylgja Frans páfa til hinstu hvílu Erlent „Ég hef aldrei séð þetta svona svakalegt“ Innlent Sex ára gamalt hús í viðgerð: Ekki við flötu þökin að sakast Innlent Bein útsending: Útför Frans Páfa Erlent Eitt glæsilegasta hrossaræktarbú landsins til sölu Innlent Fleiri fréttir Segir Pútin ekki vilja enda stríðið Hittust í fyrsta sinn eftir að upp úr sauð Myndir: Ráðamenn heims fylgja Frans páfa til hinstu hvílu Virginia Giuffre er látin Bein útsending: Útför Frans Páfa Bandaríkin vilja láta meira undan Rússum en Evrópa Hátt settur herforingi fórst í bílsprengju nærri Moskvu Mislingar á mörkum þess að verða landlægir í Bandaríkjunum aftur Þrír látnir og tugir særðir Byrjaður að selja varning merktan „Trump 2028“ Tugir þúsunda kveðja páfann fyrir útförina Með nettengingu í trássi við öryggisreglur til að komast inn á Signal Neituðu sök en viðurkenna nú að hafa drepið hjálparstarfsmann Árásarmaðurinn sagður aðhyllast hugmyndir Hitler Dæmdur kardínáli segist mega kjósa næsta páfa „Vladímír, HÆTTU!“ Nemandi látinn eftir árás í frönskum skóla Hitnar í kolunum hjá Indlandi og Pakistan Sífellt fleiri Palestínumenn mótmæla stjórn Hamas Níu látnir eftir eldflaugaárás á Kænugarð Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Sjá meira