Amnesty ætla að berjast fyrir afnámi nýrra hryðjuverkalaga 29. september 2006 19:19
Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti umdeilt frumvarp um meðferð grunaðra hryðjuverkamanna í gær, og felldi breytingatillögu þess efnis að allir þeir sem eru í haldi geti farið með mál sitt fyrir dómstóla. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa þegar tilkynnt að þau muni berjast fyrir afnámi laganna, sem þau telja gefa grænt ljós á pyntingar og önnur mannréttindabrot. Sérstakar hernefndir munu rétta yfir grunuðum hryðjuverkamönnum. Repúblikanar segja lögin nauðsynleg svo hryðjuverkamenn fái frekar makleg málagjöld og einnig svo starfsmenn leyniþjónustunnar CIA verði ekki kærðir fyrir stríðsglæpi fyrir að yfirheyra hina grunuðu. Repúblikaninn Arlen Specter lagði fram breytingatillögu við frumvarpið, þar sem hann telur það grundvallarréttindi allra að geta skotið máli sínu til almennra dómstóla. Tillagan var felld. George Bush, Bandaríkjaforseti var mjög ánægður með að frumvarpið væri í þann mund að komast í gegnum öldungadeildina, en fulltrúadeildin hafði þegar samþykkt það. Mannréttindasamtök hafa hins vegar lýst áhyggjum sínum af því að Genfarsáttmálinn verði ekki virtur og ómögulegt verði að fylgjast með því hvernig farið er með fanga sem falla undir þessi lög. Það taka andstæðingar frumvarpsins undir.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafa vísað hundrað leigubílstjórum á brott frá flugstöðinni vegna brota á reglum Innlent „Það er leitt að sjá á eftir góðu baráttufólki“ Innlent Rannsóknaraðgerð lokið en málið enn til rannsóknar Innlent Þrír menn til rannsóknar vegna tveggja hópnauðgana Innlent „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Eva Georgs ráðin dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV Innlent Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi Innlent Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Innlent Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Innlent Tíufréttir heyra sögunni til Innlent Fleiri fréttir Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Sjá meira