Tekur ekki afstöðu gegn mynd af Múhameð spámanni 12. október 2006 15:20 Frá mótmælum við danska sendiráðið í Teheran í gærkvöld gegn myndbandi ungliða danska Þjóðarflokksins. MYND/AP
Danska ríkisstjórnin hyggst ekki lýsa andstöðu sinni við teikningu sem birt var á heimasíðu Danska þjóðarflokksins og sýnir Múhameð spámann sem barnaníðing. Stjórnarandstaðan vill að ríkisstjórnin fordæmi teikningarnar og óttast að önnur mótmælaalda gegn Danmörku rísi í Miðausturlöndum, en eins og kunnugt er var teikningum af Múhameð spámanni sem birtust í Jótlandspóstinum í fyrra mótmælt kröftuglega víða í hinum íslamska heimi. Myndin sem birt var á heimasíðu Þjóðarflokksins í vikunni birtist fyrst í málgagni þess í vor og bætist við myndband sem danskir fjölmiðlar greindu frá í vikunni þar sem ungliðar í Þjóðarflokknum kepptust við að smána Múhameð spámann með teikningum. Ráðist var gegn sendiráði Dana í Teheran í Íran í gær vegna fregna af myndbandinu. Per Stig Mölller, utanríkisráðherra Danmerkur, segir ríkisstjórnina ekki ætla að tjá sig um myndina á heimasíðu Þjóðarflokksins og segir stjórnina þegar hafa lýst því yfir að hún standi fyrir virðingu milli trúarbragða og virðingu fyrir trúarskoðunum fólks.
Erlent Fréttir Mest lesið Leigubílstjóri og vinur hans dæmdir fyrir nauðgun Innlent Hafa vísað hundrað leigubílstjórum á brott frá flugstöðinni vegna brota á reglum Innlent „Það er leitt að sjá á eftir góðu baráttufólki“ Innlent Rannsóknaraðgerð lokið en málið enn til rannsóknar Innlent Þrír menn til rannsóknar vegna tveggja hópnauðgana Innlent „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Kastaði eggjum í bíl Innlent Þurrt og léttskýjað á sumardaginn fyrsta Innlent Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi Innlent Eva Georgs ráðin dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV Innlent Fleiri fréttir Níu látnir eftir eldflaugaárás á Kænugarð Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Sjá meira