Kaup á lettneskum banka gagnrýnd 2. nóvember 2006 14:42
Í nýjustu grein Ekstra Bladet um íslenskt viðskiptalíf er ýjað að því að lettneski bankinn Lateko hafi beitt danska bankamenn blekkingum til að fá sambankalán. Bankinn er í eigu Íslendinga. Fyrr á þessu ári keypti Straumborg, félag í eigu Jóns Helga Guðmundssonar, kenndum við BYKO, ásamt öðrum lettneskan bankann Lateko Bank. Í greininni lýsir Ekstra Bladet hvernig bankinn á að hafa nokkru árum áður tekið þátt í að aðstoða skjólstæðing sinn, rússnesku olíufélagi, við að skjóta umtalsverðum fjármunum undan skatti. Eigandi olíufélagsins er svo sagður eiga í dómsmáli í Bandaríkjunum vegna viðskipta skúffufyrirtækis síns en til þess eiga miklir fjármunir að hafa runnið um bankareikning hjá Lateko. Um síðarnefnda málið segir blaðið Íslendingana að hafa þagað þegar þeir fengu danska bankann Morsö Bank til að taka þátt í veitingu sambankaláns til Lateko á sínum tíma og er nafn Kaupþings banka í Lúxemborg sérstaklega nefnt í því sambandi. Ekstra Bladet fullyrðir að bankastjóri Morsö Bank hafi sagt í samtali við blaðamann að ef hann hefði haft þessar upplýsingar undir höndum á sínum tíma hefði hann lagst gegn því að Morsö Bank veitti lánið. Blaðið hefur eftir Jóni Helga í sömu grein að hann hafi vitað af vafasömum starfsháttum Lateko og að starfsmenn Morsö hafi verið látnir vita af þeim.
Fréttir Innlent Mest lesið Skiljanlegt að málið veki upp miklar og erfiðar tilfinningar Innlent Munu tryggja aðgengi að kaffistofunni sem er nú bænahús Innlent Hart tekist á um umdeildar auglýsingar SFS Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið sem hann seldi Innlent Fjöldi herskipa við Reykjavíkurhöfn Innlent Hátt settur herforingi fórst í bílsprengju nærri Moskvu Erlent Rifta samningum vegna gríðarlegrar fækkunar hælisleitenda Innlent Undarlegt að „stórhættulegir menn“ gangi lausir Innlent Með nettengingu í trássi við öryggisreglur til að komast inn á Signal Erlent Byrjaður að selja varning merktan „Trump 2028“ Erlent Fleiri fréttir Bandaríkin vilja láta meira undan Rússum en Evrópa Hátt settur herforingi fórst í bílsprengju nærri Moskvu Mislingar á mörkum þess að verða landlægir í Bandaríkjunum aftur Þrír látnir og tugir særðir Byrjaður að selja varning merktan „Trump 2028“ Tugir þúsunda kveðja páfann fyrir útförina Með nettengingu í trássi við öryggisreglur til að komast inn á Signal Neituðu sök en viðurkenna nú að hafa drepið hjálparstarfsmann Árásarmaðurinn sagður aðhyllast hugmyndir Hitler Dæmdur kardínáli segist mega kjósa næsta páfa „Vladímír, HÆTTU!“ Nemandi látinn eftir árás í frönskum skóla Hitnar í kolunum hjá Indlandi og Pakistan Sífellt fleiri Palestínumenn mótmæla stjórn Hamas Níu látnir eftir eldflaugaárás á Kænugarð Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Sjá meira