Sjálfhjálparhvötin sterkust 19. janúar 2007 19:00 Pumpkin var ánægður að komast til síns heima. MYND/AP
Engin hvöt er sterkari í dýrum jarðarinnar en að reyna að halda sér á lífi hvað sem það kostar. Þrjú nýleg dæmi af jafnmörgum ferfætlingum sýna okkur það.Fresskötturinn Pumpkin er óðum að hressast eftir þrjár vikur án matar og vatns í farangursrými flugvéla. Eigendur hans sendu hann til Lundúna frá München í Þýskalandi og þaðan átti hann að fara í tengiflug til Washington. Einhvers staðar á leiðinni týndist kisi hins vegar og fannst ekki aftur fyrr en á miðvikudaginn. Þá var hann í Denver í Colorado, glorhungraður en malandi glaður. Fjarskyldur ættingi hans á Indlandi, stór en horaður hlébarði, var ekki eins heppinn. Þorpsbúar í Kasmír-héraði eltu hann uppi í vikunni og drápu svo á hrottafenginn hátt. Dýrið hafði bitið tvo drengi í þorpinu og því hlaut það þessi örlög. Í gær slapp hins vegar þessi hreindýrskálfur ótrúlega vel þegar hann festi afturlappirnar í vök á ísilögðu vatni í Oklahoma í Bandaríkjunum. Eftir mikið erfiði náði hann að krafla sig upp úr vökinni og skipti svo engum togum að vindurinn feykti honum upp á land. Með fast land undir fótum var hann fljótur að hlaupa inn í skóginn sinn.
Erlent Fréttir Mest lesið „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Innlent Neitar að hafa orðið föður sínum að bana Innlent Tíufréttir heyra sögunni til Innlent Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Innlent Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Erlent Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Innlent Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Innlent Óljóst hvað Gad Saad er sakaður um í mótmælapóstum Innlent Línan umdeilda fær enn eitt græna ljósið Innlent Fleiri fréttir Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Sjá meira