Arabaríkin bjóða Ísrael stjórnmálasamband 29. mars 2007 16:41 Sem fyrr er deilt um Jerúsalem.
Öll Arabaríkin samþykktu í dag að taka upp stjórnmálasamband og eðlileg samskipti við Ísrael, að uppfylltum vissum skilyrðum. Þau eru meðal annars að Ísrael hverfi aftur til landamæranna eins og þau voru fyrir sex daga stríðið árið 1967. Að stofnað verði sjálfstætt ríki Palestínumanna, og að fundinn verði réttlát lausn á málum þeirra araba sem flýðu heimili sín í hinum fjölmörgu stríðum sem Arabar og Gyðingar hafa háð. Einnig er þess krafist að Austur-Jerúsalem verði höfuðborg hins nýja ríkis Palestínumanna. Þessi tillaga er í meginatriðum eins og tillaga sem Arabaríkin lögðu fram fyrir fimm árum. Ísraelar höfnuðu henni þá. Ísraelar gera athugasemdir við nokkra meginþætti tillögunnar. Þar á meðal eru landamærin og Austur-Jerúsalem. Bandaríkjamenn hafa fagnað þessu framtaki Arabaríkjanna og talsmaður ísraelskra stjórnvalda segir að þeir séu að skoða tillögurnar til að sjá hvort eitthvað nýtt sé í þeim. Einn mikilvægur punktur er að Arabar tala um réttláta lausn á málum þeirra sem flýðu heimili sín. Ekki að allir flóttamenn fái að snúa þangað aftur. Þessir flóttamenn og þeirra afkomendur telja nú margar milljónir og Ísraelar segja að lýðfræðilega myndi það ganga af ríki þeirra dauðu, þar sem Arabar yrðu í meirihluta.
Erlent Mest lesið Hafa vísað hundrað leigubílstjórum á brott frá flugstöðinni vegna brota á reglum Innlent „Það er leitt að sjá á eftir góðu baráttufólki“ Innlent Rannsóknaraðgerð lokið en málið enn til rannsóknar Innlent Þrír menn til rannsóknar vegna tveggja hópnauðgana Innlent „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Eva Georgs ráðin dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV Innlent Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi Innlent Tíufréttir heyra sögunni til Innlent Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Innlent Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Erlent Fleiri fréttir Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Sjá meira