Pelosi til viðræðna við Sýrlendinga Jónas Haraldsson skrifar 4. apríl 2007 07:52 Pelosi á ferð um Damascus í morgun. MYND/AFP
Leiðtogi demókrata í fulltrúadeild bandaríska þingsins, Nancy Pelosi, kom í nótt til Sýrlands til viðræðna við þarlenda ráðamenn ræða um stöðuna í Írak og Líbanon. Ráðamenn í Hvíta húsinu hafa gagnrýnt Pelosi harkalega og segja hana grafa undan utanríkisstefnu Bandaríkjastjórnar. Pelosi hefur skellt skollaeyrum við allri gagnrýni og segir að nauðsynlegt sé að ræða við Sýrlendinga. Bandaríkin hafa ekki átt í formlegum pólitískum samskiptum við Sýrland í tvö ár. Pelosi er hæst setti bandaríski stjórnmálamaðurinn sem heimsækir Sýrland síðan á árinu 2003. Hún fór víða í Damascus og heimsótti meðal annars markaði og talaði við heimamenn. Aðstoðarutanríkisráðherra Sýrlands, Fayssal Mekdad, bjóst þó ekki við því að viðræður hans og Pelosi myndu skila miklum árangri þar sem þetta væri aðeins fyrsta heimsókn hennar. Bandaríkin og Evrópusambandið hafa gagnrýnt stefnu Sýrlendinga í Mið-Austurlöndum og þá sérstaklega stuðning þeirra við Hisbollah og Hamas. Sýrlendingar segja hins vegar að utanríkisstefna Bandaríkjanna sé það sem búi til þessa hópa.
Erlent Mest lesið Hafa vísað hundrað leigubílstjórum á brott frá flugstöðinni vegna brota á reglum Innlent „Það er leitt að sjá á eftir góðu baráttufólki“ Innlent Rannsóknaraðgerð lokið en málið enn til rannsóknar Innlent Þrír menn til rannsóknar vegna tveggja hópnauðgana Innlent „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Eva Georgs ráðin dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV Innlent Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi Innlent Tíufréttir heyra sögunni til Innlent Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Innlent Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Erlent Fleiri fréttir Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Sjá meira