„Noregur úr NATO og NATO úr þessum heimi“ 27. apríl 2007 12:46
Þetta voru slagorð mótmælenda gegn NATO og stríðinu í Afghanistan á götum Óslóborgar í gærkvöldi. Óeirðalögreglan beitti á endanum táragasi á hópinn, og þurftu fréttamaður okkar og utanríkisráðherra að forða sér undan gasinu sem lagði um nágrenni ráðhússins. Norge ut af NATO, NATO ut af verden, hrópuðu mótmælendurnir. Það myndi útleggjast sem Noreg úr NATO og NATO út úr þessum heimi! Hundruð grímuklæddra mótmælenda fylktu liði í grennd við ráðhús borgarinnar, þar sem utanríkisráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins héldu til snæðings. Óeirðalögreglan norska sló skjaldborg um húsið og reyndi að hemja hópinn, en þegar nokkrir mótmælendanna gerðu tilraun til þess að rjúfa öryggisgirðingu greip lögreglan til táragass til að tvístra hópnum. Að sögn Bryndísar Hólm, fréttamanns okkar í Osló, þurftu þær Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, að forða sér undan táragasskýinu til að geta rætt saman ógrátandi. Norska lögreglan réðist að endingu til inngöngu í húsnæði samtaka sem nefna sig Blitz, en margir mótmælendanna tilheyra þeim félagsskap. Þar gerði hún upptækar fjölmargar smásprengjur og grjót, sem augljóslega stóð til að nota við frekari mótmæli.
Erlent Mest lesið „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Innlent Neitar að hafa orðið föður sínum að bana Innlent Tíufréttir heyra sögunni til Innlent Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Innlent Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Innlent Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Erlent Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Innlent Óljóst hvað Gad Saad er sakaður um í mótmælapóstum Innlent Línan umdeilda fær enn eitt græna ljósið Innlent Fleiri fréttir Sænskur blaðamaður gæti farið í fangelsi fyrir að móðga Erdogan Vilja ræða frið en ekki uppgjöf Rýna í innyfli deyjandi reikistjörnu Vill enn stærra vopnabúr fyrir næstu stríð Umfangsmesta fölnun kóralrifja sem sögur fara af Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Frjálslyndir með forskot á lokaspretti kosningabaráttunni Úkraínufundinum í London frestað Lík páfans flutt í Péturskirkju í dag Mikil reiði eftir árásina í Kasmír Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Á þriðja tug látnir eftir árás á ferðamenn í Kasmír Meirihluti eftirlifenda helfararinnar hverfur næsta áratuginn Harvard stefnir Bandaríkjastjórn vegna þvingunaraðgerða hennar Leyniþjónustustjóri ber Netanjahú þungum sökum Drottningin lögð inn vegna veikinda Eldur í öðrum hreyfli vélar Delta í Flórída Útför páfans á laugardag Greint frá dánarorsök páfans Dánarorsök páfans talin vera heilablóðfall Trump styður Hegseth: Neitar að um trúnaðarbrest hafi verið að ræða Breskir þingmenn leggjast gegn því að Trump ávarpi þingið Skýrslan sé „full af lygum“ Leiðtogar minnast páfans Hvernig er nýr páfi valinn? Loftvarnarsírenur óma á ný eftir skammvinnt „vopnahlé“ Sjá meira