Segjast vera finnskir 8. nóvember 2008 03:45 Ætla að segjast finnskir Noise blanda saman poppi og metal á næstu plötu.
Rokkhljómsveitin Noise ætlar að stinga hausnum í kjaft breska ljónsins og spila þar á fimm tónleikum. Túrinn hefst í kvöld í Donchester. „Við erum nú bara að pæla í að kynna okkur sem band frá Finnlandi," segir Stefán Vilberg, bassaleikari Noise. „Þetta eru víst svaðalegar skítabúllur, til dæmis sú í Grimsby. Maður tekur engar óþarfa áhættur." Hljómsveitin spilaði blöndu gruggs og sígilds rokks á fyrstu plötu sinni sem kom út árið 2006. Sveitin er nú langt komin með nýja plötu og ætlar að gefa hana út á næsta ári. „Þar verður nútímalegra rokk myndi ég segja," segir Stefán, „eins konar bland af metal og poppi." Stefán á ekki von á miklu lúxuslífi á túrnum. „Það er spurning hvernig gengur að redda sér gjaldeyri, en það verður eldað fyrir okkur á öllum stöðunum sem við spilum á. Súpa eða eitthvað. Við ættum alla vega ekki að svelta."- drg
Mest lesið Kraftaverkasaga: „Mun ég aldrei sjá þau aftur?“ Áskorun „Ég vildi fela mig fyrir heiminum“ Lífið „Leyfi lífinu bara að leiða mig“ Lífið Hafði mikla þörf fyrir að láta aðra sjá að hún væri spes týpa Lífið „Stal tannburstanum hans snemma í sambandinu“ Makamál Mælir með því að tala við gervigreind sem sálfræðing Lífið „Eina sem maður getur gert er að reyna vera betri maður í dag en þá“ Lífið Gengur yfir Sprengisand með hundrað kíló í eftirdragi Lífið Annarri tilraun að Fyre-hátíðinni frestað um ókomna tíð Lífið Breytti nafninu sínu svo það yrði ekki brotist inn Lífið Fleiri fréttir Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Í skýjunum með að vera fyrstir Önnur platan komin út: Kyrrstæður heimur Kára Egils Varð að fara gubbandi í Herjólf Aldrei fór ég suður í endurbættri útgáfu Lærði að byggja sig upp og elska úr fjarlægð Íslensku tónlistarverðlaunin: Damon Albarn lét óvænt sjá sig Útskrifaðist úr verkfræði og gerðist tónlistarmaður Samstarfsverkefni Loreen og Ólafs Arnalds lítur dagsins ljós Dusta rykið af danssokkunum Daniil og Birnir í eina sæng Angie Stone lést í bílslysi Sjá meira