Guðrún Gróa byrjaði lokaúrslitin á persónulegu stigameti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. mars 2009 18:00 Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir (til hægri) er að spila vel með KR-liðinu. Mynd/Vilhelm
Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir átti mjög góðan leik með KR í fyrsta leik lokaúrslita Iceland Express deildar kvenna á Ásvöllum. Gróa var stigahæst í KR-liðinu með 19 stig í 61-52 sigri á Haukum. Annar leikur einvígsins milli Hauka og KR er í DHL-Höllinni klukkan 19.15 í kvöld. Guðrún Gróa hefur verið rómuð fyrir frábæran varnarleik í allan vetur en eftir áramót hefur hún vaxið nánast í hverjum leik í sókninni. Gróa var með 8,0 stig í deildinni fyrir áramót, skoraði 10,0 stig að meðaltali í deildinni eftir áramót og er síðan búin að skora 12,8 stig að meðaltali í síðustu fjórum leikjum KR í úrslitakeppninni. Guðrún Gróa setti með þessu persónulegt stigamet en hún hafði mest áður skorað 17 stig í leik á Íslandsmóti en því náði hún í á móti Hamar 29. nóvember 2008. Gróa hitti úr 8 af 10 skotum sínum í leiknum, tók 10 fráköst og skilaði alls 27 framlagsstigum til KR-liðsins en hún hitti meðal annars úr öllum fjórum skotum sínum fyrir utan teig. Guðrún Gróa átti einnig mikinn þátt í að halda aftur af Slavicu Dimovsku sem var aðeins með 3 stig og 1 stoðsendingu í fyrstu þremur leikhlutunum. KR-liðið var þá komið fimmtán stigum yfir, 43-28. Slavica skoraði 16 stig í lokaleikhlutanum sem Haukar unnu 24-18.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt Fótbolti Fleiri fréttir „Langaði að bæta nálgun mína á körfubolta“ Doncic og James byrjuðu á tapi á heimavelli Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 95-80 | Yfirburðir í fráköstum og Njarðvíkingar leiða „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Martröðin fullkomnuð fyrir Mavericks Veðbankar vestanhafs halda með mótherjum Lakers KR einum sigri frá því að komast upp í Bónus-deildina Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Haiden Palmer kemur aftur til Íslands en nú sem þjálfari Garðabæjargrýla Grindvíkinga hefur stækkað og stækkað í 86 mánuði Lagði egóið til hliðar fyrir liðið „Ég er alltaf stressuð“ Dallas og Miami enn á lífi í umspili NBA „Skitum á okkur í þriðja leikhluta“ „Fáránlega erfið sería“ Háspenna í umspili um sæti í Bónus deildinni Uppgjörið: Haukar - Grindavík 79-64 | Haukar númeri of stórar Svona eru undanúrslitin: Ballið hefst á tvíhöfða annan í páskum Versta úrslitakeppnin í sögu Reykjanesbæjarliðanna Butler og Curry í stuði þegar Golden State komst í úrslitakeppnina Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug „Holan var of djúp“ „Vissum alveg að við værum í góðum málum“ „Við erum að byggja upp ákveðinn kúltúr“ Uppgjörið: Álftanes - Njarðvík 104-89 | Álftnesingar í undanúrslit í fyrsta sinn Uppgjörið: ÍR - Stjarnan 74-80 | Garðbæingar í undanúrslit Sjá meira