Körfubolti

Butler og Curry í stuði þegar Golden State komst í úr­slita­keppnina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jimmy Butler er þekktur fyrir að spila vel í úrslitakeppninni og hann byrjaði vel í fyrsta leiknum þar með Golden State Warriors
Jimmy Butler er þekktur fyrir að spila vel í úrslitakeppninni og hann byrjaði vel í fyrsta leiknum þar með Golden State Warriors Getty/Ezra Shaw

Golden State Warriors og Orlando Magic verða með í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta en liðin tryggði sig inn með sigri í umspilinu í nótt.

Stórstjörnurnar fóru fyrir Golden State í 121-116 sigri á Memphis Grizzlies. Jimmy Butler var með 38 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar en Stephen Curry skoraði 37 stig. Curry var með sex þrista í leiknum.

Desmond Bane skoraði 30 stig fyrir Memphis og Ja Morant var með 22 stig.

Þetta var leikur á milli liðsins í sjöunda og áttunda sæti. Golden State er komið í úrslitakeppnina en Memphis Grizzlies fær annað tækifæri í leik á móti annað hvort Sacramento Kings eða Dallas Mavericks.

Orlando Magic tryggði sér á sama hátt sæti i úrslitakeppninni í Austurdeildinni með 120-95 stórsigri á Atlanta Hawks. Atlanta Hawks spilar um hitt sætið við annað hvort Chicago Bulls eða Miami Heat.

Cole Anthony kom með 26 stig inn af bekknum hjá Orlando , Wendell Carter Jr. var með 19 stig og stjarnan Paolo Banchero var með 17 stig, 9 fráköst og 7 stoðsendingar. Trae Young skoraði 28 stig fyrir Atlanta.

Golden State mætir Houston Rockets í fyrstu umferð úrslitakeppninnar og fyrsti leikurinn er í Houston á laugardaginn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×