

Almenn almælt tíðindi eða grundvöllur vanhæfis?
Í stuttu máli þykir okkur vandséð hvernig nokkur fræðimaður á sviði bankamála sem hefur tjáð sig um bankakreppur almennt geti starfað í rannsóknarnefnd Alþingis ef túlkun á hæfnisreglu stjórnsýslulaga er svo þröng að umrædd ummæli geri Sigríði vanhæfa.
Við erum ekki sérfræðingar í hæfnisreglum íslenskra stjórnsýslulaga. Á hinn bóginn erum við báðir starfandi hagfræðingar í Bandaríkjunum og sérfræðingar í peningahagfræði og bankamálum, líkt og Sigríður, og teljum okkar því í aðstöðu til að leggja faglegt mat á hvort umrædd ummæli séu til þess fallin að draga óhlutdrægni hennar í efa. Við teljum afdráttarlaust að þessi ummæli gefi ekki tilefni til þess.
Tvö skilyrðiTil þess að falla undir þetta ákvæði sýnist okkur ummæli Sigríðar þurfa að uppfylla að minnsta kosti tvö skilyrði. (i) Að þau beinist gegn ákveðnum stofnunum og/eða einstaklingum sem nefndin á að leiða í ljós hvort hafi gerst sek um mistök. (ii) Að ummælin bendi til einhverrar ákveðinnar niðurstöðu sem rannsóknin á að leiða í ljós en túlki ekki almennt viðhorf meðal fræðimanna á sviði bankamála. Að okkar mati uppfylla ummæli Sigríðar hvorugt þessara skilyrða.
Ummæli Sigríðar benda ekki á neinn sérstakan aðila sem ábyrgan og því vandséð hvernig hægt er að túlka þau sem svo að niðurstaða nefndarinnar sé fyrirfram gefin. (i) Ummælin geta átt við umgjörð fjármálakerfisins í heiminum almennt og áhrif alþjóðlegra reglna á bankastarfsemi á Ísland, t.d. starfsemi Alþjóðagreiðslubankans eða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. (ii) Þau geta vísað til umgjarðar EES-samningsins en hann er afar ófullkominn þegar kemur að lögum um starfsemi fjármálastofnana. (Það átti þátt í því að orsaka deilu okkar við Breta sem aftur olli beitingu hryðjuverkalaga gegn Landsbankanum sem sumir vilja meina að hafi valdið falli Kaupþings). (iii) Þau geta vísað til umgjarðar eftirlits- og fjármálastarfsemi á Íslandi burtséð frá umheiminum. (iv) Þau geta vísað til laga sem samþykkt hafa verið á Alþingi. (v) Þau geta vísað til þess hvernig Fjármálaeftirlitið, fjármálaráðuneytið, viðskiptaráðuneytið og Seðlabanki Íslands framfylgdu settum lögum. (vi) Þau geta vísað til starfsemi Evrópska Seðlabankans þar sem íslenskir viðskiptabankar áttu í miklum veðlánaviðskiptum, til sænska seðlabankans er veitti Kaupþingi þrautarvaralán, eða jafnvel til bandaríska seðlabankans sem hafnaði beiðni Seðlabanka Íslands um svökölluð „swap"-lán (á sama tíma og hann veitti öðrum seðlabönkum á Norðurlöndum slík lán) og dró þannig að sumra mati úr trúverðugleika íslensks efnahagslífs. Það þarf vart að taka fram að þessi listi er ekki tæmandi, okkur sýnist ummælin svo almenns eðlis að þau geta átt við ótal aðila eða stofnanir.
Þar að auki lýsa ummæli Sigríðar eingöngu almennu viðhorfi sem flestir hagfræðingar um allan heim deila ekki aðeins hvað varðar íslensku fjármálakreppuna, heldur bankakreppur í heiminum almennt (bæði nú og þær sem á undan hafa gengið). Okkur sýnist það blasa við að ef allir bankar tiltekins lands verða gjaldþrota á sama tíma bendi það til óvenju mikillar áhættusækni (græðgi). Það blasir einnig við að ef gjaldþrotið veldur öngþveiti og efnahagslegu hruni hefur umgjörð fjármála ekki verið nægjanlega góð.
Fjórða stærsta gjaldþrot í hagsögu heimsinsÍslenska efnahagshrunið er af sumum talið fjórða stærsta gjaldþrot í hagsögu heimsins, á eftir gjaldþroti Lehman Brothers, ENRON og WorldCom. Okkur sýnist eina skoðunin sem Sigríður lýsir með þessum ummælum vera sú að hrun fjármálakerfis heillar þjóðar bendi til þess að umgjörð fjármála hafi ekki verið nægjanlega góð. Sú skoðun verður að teljast almenn skoðun sérfræðinga á sviði bankamála og almælt tíðindi, fremur en sérstök ályktun eða gildisdómur sem dragi hlutleysi Sigríðar í efa.
Sigríður Benediktsdóttir er einstaklega vel til þess fallin að rannsaka hrun fjármálakerfisins. Hún er kennari við eina virtustu hagfræðideild heims og fyrrverandi starfsmaður Seðlabanka Bandaríkjanna. Hún er einn fremsti hagfræðingur okkar Íslendinga og hefur sérþekkingu á nákvæmlega þeim atriðum sem starf nefndarinnar snýr að mestu að. Hún er eini nefndarmaðurinn sem nýtur alþjóðlegar viðurkenningar sem fræðimaður á sviði bankamála. Aðrir nefndarmenn eru íslenskir lögfræðingar sem þiggja laun sín frá hinu opinbera og hafa ekki sérþekkingu á efnahagsmálum.
Hæfileikarík konaVið Íslendingar erum fámenn þjóð. Það verður að teljast óvenjulegur happafengur að hafa fundið jafn hæfileikaríka konu í þetta starf. Ef Sigríði væri þrýst út úr nefndinni myndi það skaða starf nefndarinnar verulega. Það er einnig áleitin spurning hvaða áhrif það hefði á starfsmenn rannsóknarnefndarinnar og trúverðugleika hennar almennt ef einstakir yfirmenn væru reknir af jafn litlu tilefni eftir umkvartanir þeirra sem verið er að rannsaka.
Höfundar eru hagfræðingar.
Skoðun

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar

Námsfærni nemenda í íslenskum skólum: Eigum við að lækka rána?
Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Þegar mannshjörtun mætast
Jóna Hrönn Bolladóttir,Bjarni Karlsson skrifar

Horft til einkunna og annarra þátta við innritun í framhaldsskóla
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Kristján á Sprengisandi lendir í ágjöf
Björn Ólafsson skrifar

Unglingar eiga skilið heildstætt mat frá framhaldsskólum
Sigurður Kári Harðarson skrifar

Stöðvum glæpagengi á Íslandi
Hjalti Vigfússon skrifar

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“
Gunnar Ármannsson skrifar

Gervigreind í skólum: Tækifæri sem fáir eru að ræða?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Enginn matur og næring án sérfræðiþekkingar
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

Öll endurhæfing er í eðli sínu starfsendurhæfing
Sveindís Anna Jóhannsdóttir skrifar

„Bíddu, varst þú ekki að biðja um þessa greiðslu?“
Heiðrún Jónsdóttir skrifar

Rétta leiðin til endurreisnar menntakerfisins?
Birgir Finnsson skrifar

Tvær dætur á Gaza - páskahugvekja
Viðar Hreinsson skrifar

Ef það líkist þjóðarmorði – þá er það þjóðarmorð!
Ólafur Ingólfsson skrifar

Vinnustaðir fatlaðs fólks
Atli Már Haraldsson skrifar

Þjónustustefna sveitarfélaga: Formsatriði eða mikilvægt stjórntæki?
Jón Hrói Finnsson skrifar

Blóð, sviti og tár
Jökull Jörgensen skrifar

Ertu knúin/n fram af verðugleika eða óverðugleika?
Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar

Er hægt að stjórna bæjarfélagi með óskhyggju?
Sigurþóra Bergsdóttir skrifar

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar