Matur

Kalkúna fylling

150gr smjör

2 stk meðalstórir rauðlaukar

2 stk epli

200gr skinka

½ stk sellerí stöngull

50gr hakkaðar möndlur

½ stk formbrauð (án skorpu)

4 msk steinselja

1 msk timjan

2msk oregano

1 stk appelsína, börkur og safi

Salt og pipar

2 stk egg

5msk rauðvín

Smjörið er brætt á pönnu g smátt saxaður laukurinn er látinn saman við og steikjast í c.a 10 mín, eða þar til meyr. Eplin eru skorin niður í litla bita, skinkan er skorinn smátt ásamt sellerí. Brauðið er skorið í litla teninga, þá eru kryddjurtirnar saxaðar smátt niður og börkurinn af appelsínunni er rifinn mjög smátt. Þegar laukurinn er tilbúinn er þessu öllu blandað saman. Þá er vökvinn settur saman við, appelsínusafinn, rauðvínið og eggin og allt unnið vel saman.

Setjið fyllinguna inní kalkúninn, en passið að fylla hann ekki alveg þar sem fyllinginn þennst aðeins út. Setjið svo álpappír í opið og þrístið vel á.

Smjör krydd

150gr smjör

1msk Oregano

1msk Timjan

1msk Rósmarin

1 tsk pipar

½ tsk salt

Smjörið er látið bráðna við vægan hita og kryddjurtunum er blandað saman við. Hrærið saman og smyrjið yfir fuglinn áður en hann fer í ofninn og svo á c.a 20 mín fresti.

Fuglinn er settur inní 170° heitann ofninn og steiktur í 40 mín fyrir hvert kíló,( fjögur kíló eru þá c.a 2 tíma og 45 mín) síðustu 20 mínútur er hitinn hækkaður í 220° til að fá fallega húð á kjötið.

Látið fuglinn svo standa undir álpappír í c.a 10-15 mín áður en hann er skorinn.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.