Skoðun

Gervigrasvöllur í Vestur­bæinn

Stórátak hefur verið gert í endurbótum á skólalóðum og leikskólalóðum Reykjavíkurborgar á kjörtímabilinu. Hluti af þessu átaki hefur falist í lagningu nýrra sparkvalla, gjarnan með gervigrasi, sem njóta mikilla vinsælda yngstu kynslóðarinnar.

Í dag, laugardag, kl. 12 verður því fagnað á Stýró-vellinum við Öldugötu að löng bið barna og ungmenna í Gamla Vesturbænum eftir „mjúkum" sparkvelli er nú loks á enda þar sem hann hefur nú verið lagður gervigrasi. Öllum er velkomið að vera viðstaddir vígslu vallarins, sem verður í tengslum við hátíðarhöld KR-dagsins og munu ungir KR-ingar sjá um hana ásamt borgarfulltrúum.

Um árabil hafa íbúar í Gamla Vesturbænum kvartað yfir lélegri aðstöðu til íþrótta og leikja í hverfinu. Sparkvöllum hafði fækkað mjög í hverfinu og einungis tveir malbikaðir vellir eftir, annar á lóð Vesturbæjarskóla, hinn við Öldugötu. Gamli Vesturbærinn var um árabil eina hverfi borgarinnar, þar sem ungviðið hafði ekki aðgang að sparkvelli með mjúku yfirborði, þ.e. með grasi eða gervigrasi. Sýnt hefur verið fram á að þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi er mun minni meðal barna og ungmenna norðan Hringbrautar en sunnan hennar. Skýringin er auðvitað sú að íþróttasvæði KR er við Frostaskjól, í töluverðri fjarlægð frá Gamla Vesturbænum, og þá er hin umferðarþunga Hringbraut farartálmi fyrir yngstu börnin. Vegna þessa er sérstaklega mikilvægt að leggja áherslu á að bæta leikja- og íþróttaaðstöðu í hverfinu.

Á síðasta kjörtímabili lagði undirritaður fram nokkrar tillögur í nefndum og ráðum borgarinnar um að lagning „mjúks" sparkvallar í Vesturbænum yrði sett í forgang. Voru þær tillögur ýmist felldar af fulltrúum R-listans eða vísað til frekari skoðunar sem aldrei bar árangur. Á sl. ári var málið tekið upp að nýju með samþykkt íþrótta- og tómstundaráðs og það hefur nú borið þennan ánægjulega árangur. Í vetur hófust endurbætur á skólalóð Vesturbæjarskóla og er nú unnið að undirbúningi þess að koma þar fyrir svokölluðum battavelli fyrir knattspyrnu og bæta körfuboltaaðstöðu. Þá hafa umferðarsérfræðingar borgarinnar það til skoðunar hvernig bæta megi göngutengsl yfir Hringbraut í því skyni að stuðla að greiðari aðgangi að KR-svæðinu við Frostaskjól.

Ég óska Vesturbæingum til hamingju með endurbættan sparkvöll og hvet þá til að taka þátt í hátíðarhöldum KR-dagsins.

Höfundur er borgarfulltrúi.




Skoðun

Sjá meira


×