Slóvakar tóku upp evru í dag og varð landið þar með sextánda aðildarríki myntbandalags Evrópusambandsins.
Allt að hundrað þúsund manns komu saman á aðaltorginu í Bratislava, höfuðborg Slóvakíu í gærkvöldi í tilefni bæði áramótanna og myntbreytingarinnar. Þá var Robert Fico, forsætisráðherra landsins, einn fyrstur landsmanna til að taka sér seðlinn í hendur þegar hann tók út hundrað evrur úr hraðbanka þinghússins.
Kórúnan, gjaldmiðill Slóvaka fram til þessa, verður í umferð til 16. þessa mánaðar, að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC.
Ríkisútvarpið segir Slóvaka telja evruupptökuna af hinu góða og hafa varið landið frá þeim óstöðugleika í gengismálum sem hrjáð hafi nágrannaríkin.
Kórúnan var fasttengd evru í júlí á síðasta ári.
Á sama tíma hefur gjaldmiðill Pólverja fallið um 24 prósent gagnvart evru en tékkneska kórúnan um ellefu prósent. Gjaldmiðlar annarra nágrannaríkja hafa fallið í kringum tíu prósent á sama tíma, samkvæmt upplýsingum Bloomberg-fréttaveitunnar.