
Erlendar nýfjárfestingar
Strax og nýtt óvissuástand skapaðist með framgang efnahagsáætlunar Íslands þegar forseti beitti synjunarvaldi var brugðist við af hálfu iðnaðarráðuneytis og Fjárfestingarstofu í samráði við utanríkisráðuneytið. Fjárfestingarstofa er í samskiptum við þá erlendu aðila sem eru að þreifa fyrir sér með verkefni á Íslandi. Viðbrögð þeirra við nýju óvissuástandi kölluðu á aðgerðir og virk samskipti til að halda verkefnum gangandi. Því hefur Fjárfestingarstofa sinnt með lofsamlegum hætti.
Í grein í Fréttablaðinu 13. janúar sl. gerir Jón Gunnarsson þingmaður mér upp þau orð að flótti væri brostin í lið erlendra fjárfesta. Vonandi tekst að afstýra því þótt dýrkeyptar tafir geti orðið. Þingmaðurinn telur það „grunnhyggni" af minni hálfu að benda á að óvissa um framgang endurreisnar efnahagslífsins, lækkun lánshæfismats ríkisins niður í ruslflokk, ráðleggingar matsfyrirtækja og greinenda gegn fjárfestingum á Íslandi og hækkun skuldatryggingarálags hafi áhrif á alþjóðlega fjármálamarkaði og ákvarðanir fjárfesta. Meðan menn hafa asklok fyrir himinn er ekki líklegt að samhengi hlutanna verði þeim sýnilegt.
Nú er unnið að undirbúningi rammalöggjafar um ívilnanir vegna erlendra fjárfestinga til að gera ferlið skilvirkara og auðvelda kynningu á Íslandi sem fjárfestingarkosti. Alþingi er með til afgreiðslu fjárfestingarsamning sem hefur það markmið að auðvelda aðkomu nýs erlends kjölfestufjárfestis í uppbyggingu gagnvers á Reykjanesi. Sérstök verkefnisstjórn vinnur markvisst ásamt Fjárfestingarstofu að því að finna erlendan samstarfsaðila til uppbyggingar og orkunýtingar í Þingeyjarsýslum.
En margt fleira er gert. Ferðaþjónustan er enn að eflast og undirbýr stofnun klasa um heilsu- og lífsstílstengda ferðamennsku. Stuðningur við nýsköpun, rannsóknir og þróun er efldur. Ný frumkvöðlasetur skapa störf og verðmæti. Þetta eru aðeins dæmi um það starf sem unnið er í samráði við atvinnulífið um uppbyggingu. Skýr stefna og vilji er til staðar. Verkefnið er að sameinast um að skapa sem fyrst hagstæð skilyrði, stöðugleika og forsendur hagvaxtar.
Höfundur er iðnaðarráðherra.
Skoðun

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi?
Sævar Þór Jónsson skrifar

Horfumst í augu
Kristín Thoroddsen skrifar

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar