Lokuðu ólöglegum síðum [email protected] skrifar 2. júlí 2010 02:00 Toy story er vinsæl meðal niðurhalara.
Níu bandarískum vefsíðum sem buðu upp á ólöglegt niðurhal á kvikmyndum var lokað í gær. Síðurnar höfðu sumar boðið upp á niðurhal á glænýjum myndum eins og Toy Story 3 og Iron Man 2 innan sólarhrings frá því að þær voru frumsýndar. Lokun síðnanna er stærsta aðgerð sinnar tegundar og liður í stórum aðgerðum bandarískra stjórnvalda til að stemma stigu við ólöglegu niðurhali á sjónvarpsefni, kvikmyndum og tónlist. Samanlagt heimsóttu 6,7 milljónir manna heimasíðurnar níu í hverjum mánuði. Auk þess sem síðunum var lokað voru eignir á fimmtán banka- og fjárfestingareikningum gerðar upptækar og húsleitir gerðar í Norður-Karólínu, New York, New Jersey og Washington. Rannsókn lögreglunnar fór fram í ellefu ríkjum og einnig í Hollandi. Rúmlega 100 manns unnu að rannsókninni. Aðgerðin í gær er sú fyrsta sinnar tegundar, en hingað til hefur sjónum mest verið beint að ólöglegum DVD-diskum. Nú var í fyrsta sinn ráðist af fullum krafti á heimasíður sem bjóða ólöglegt niðurhal og græða ýmist á sölu auglýsinga eða frjálsum framlögum. Nú stendur aðeins á síðunum níu að þeim hafi verið lokað af yfirvöldum. John Morton, yfirmaður innflytjenda- og tollastofnunarinnar ICE, sagði málið upphafið að löngu ferli þar sem reynt verði að ráða niðurlögum ólöglegra niðurhalssíðna. Hann sagði jafnframt að hann vissi vel að það hefði ekki tekist með þessari einu aðgerð. „En ef einhver síða kemur upp aftur, þá komum við aftur." Stjórnvöld hafa sagst ætla að grípa til frekari aðgerða, mögulega með lögsóknum og fangelsisdómum.
Erlent Mest lesið „Þetta er orðið pínu þreytt, tveir bílar á sex dögum“ Innlent „Stórtækir íbúðareigendur“ eiga 20 prósent íbúða í borginni Innlent Bandaríkin íhugi að draga sig úr friðarviðræðum Rússlands og Úkraínu Erlent „Ágæt ábending“ um bótaþega en tekur ekki undir allar athugasemdir fjármálaráðs Innlent Háholt sett aftur á sölu Innlent Úkraína og Bandaríkin nálgast samkomulag Erlent Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Innlent Handtekinn grunaður um vasaþjófnað í miðborginni Innlent Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Innlent Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Innlent Fleiri fréttir Bresk systkini létust í kláfferjuslysinu Hamas hafnar tillögu Ísrael um vopnahlé Skoða hugsanlega breytingu á samstarfssamningi Norðurlanda Bandaríkin íhugi að draga sig úr friðarviðræðum Rússlands og Úkraínu Úkraína og Bandaríkin nálgast samkomulag Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Sterkar vísbendingar um líf á annarri plánetu Hótar að banna erlenda nemendur í Harvard „Þetta er pólitískt val og meðvituð árás á getu fólks til að lifa af“ Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Dómur um trans konur: „Aðeins konur, engir karlar“ Furðureikistjarna sem gengur hornrétt um tvístirni Telja ákvæði jafnréttislaga ekki ná yfir trans konur Fyrrverandi forseti Perú í fimmtán ára fangelsi fyrir peningaþvætti Hafa nú lýst yfir stofnun ríkisstjórnar í landinu Flóttafólki fækkar verulega við landamæri Evrópu Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Líkir viðurkenningu á Palestínu við „sigur fyrir hryðjuverk“ Kyrrsetja þyrlufyrirtækið eftir banaslysið í New York Kveikti í ríkisstjórasetrinu og ætlaði að berja ríkisstjórann með hamri Frysta milljarða fjárveitingar til að refsa Harvard-háskóla Segir Selenskí ábyrgan fyrir stríðsástandinu Tveir skotnir til bana í Gautaborg Sæðisgjafar hafi feðrað tugi barna í trássi við lög Harvard háskólinn neitar að fylgja skilyrðum Trumps Arkitekt guðs skrefi nær dýrðlingatölu Sjá meira