
Ó, borg mín borg!
Ég hef labbað yfirbugaður af ástarsorg frá Lækjartorgi uppí Breiðholt. Ég hef grátið í strætó. Mér fannst ég ekkert vita eða geta fyrstu vaktina mína hjá Bæjarleiðum. Það var erfitt að viðurkenna að ég rataði ekki á Óðinsgötu. En ég fékk hjálp frá "Stöðinni" og smátt og smátt lærði ég að bjarga mér.
Síðustu ár hefur það verið atvinna mín að gleðja fólk með gamanleik en þrátt fyrir það hefur líf mitt ekki verið tómur fíflagangur. Ég hef alið upp fimm börn í þessari borg og þar af er eitt á leikskólaaldri í dag. Ég hef verið með langveikt barn. Ég hef verið atvinnulaus. Ég hef fylgt öldruðum foreldrum mínum í gegnum heilbrigðiskerfið og öldrunarþjónustuna. Ég hef jarðað föður minn og trillað mömmu minni um borgina í hjólastól. En þrátt fyrir erfiðleika hefur þessi borg alltaf séð vel um mig þegar ég hef sýnt áhuga og frumkvæði. Þá hef ég bjargað mér með útsjónarsemi og dugnaði.
Borgin okkar er alltaf að stækka og breytast. Sem krakki fór ég með pabba mínum að tína svartbaksegg uppí Grafarvogi. Seinna bjó ég þar. Ég hef fylgst með nýjum hverfum verða að grónum hverfum. Ég elska þessa borg og vil endurgjalda henni allt það sem hún hefur gefið mér. Undanfarin ár finnst mér rangur hugsunarháttur hafa ráðið hér ríkjum. Mér hefur sárnað að horfa uppá það og afleiðingarnar. Mér finnst að ljótir og virðingarlausir hlutir hafi verið gerðir. Hagsmunir borgaranna hafa vikið fyrir hagsmunum einhverra annarra. Tækifæri hafa verið vannýtt. Þess vegna stofnaði ég Besta flokkinn og fékk til liðs við mig fólk sem ég þekki, virði og treysti. Það er fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins.
Reykjavík getur orðið fallegri og skemmtilegri borg sem hefur alltaf eitthvað nýtt og óvænt að bjóða uppá. Gott gengi Besta flokksins í borgarstjórnarkosningunum getur markað nýtt upphaf í sögu borgarinnar.
Skoðun

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar