Gripin með 26 kíló af smygluðu glingri [email protected] skrifar 3. júlí 2010 05:00 Vel hafði verið búið um glingrið, eins og myndin sýnir, áður en það var kirfilega falið í frambrettum bílsins.
Fjórir Rúmenar, tveir karlar og tvær konur, voru látin greiða rúmlega 50 þúsund krónur í sekt eftir að þau höfðu verið gripin með um 26 kíló af smygluðum skartgripum í fyrradag. Tollgæslan á Seyðisfirði hafði afskipti af fjórmenningunum sem komu með Norrænu til landsins frá Danmörku. Góssið hafði verið vandlega falið í frambrettum tíu ára gamallar Benz-bifreiðar, að sögn Árna Elíssonar, yfirmanns tollgæslunnar á Seyðisfirði. Hann sagði að þar hefði einkum verið að finna hringa og hálsmen, sem virtust vera óekta glingur. Smyglvarningurinn var gerður upptækur. „Fólkið hefur líklega ætlað að koma þessu í verð hér,“ sagði Árni. „Þegar lyktir málsins urðu þessar hafði það hins vegar enga löngun til að dvelja hér lengur og keypti sér farmiða með Norrænu úr landi með það sama. Það verður þó að bíða hér í viku áður en það kemst burt með næstu ferð.“ Árni sagði að vissulega væri sektin sem fólkið hefði fengið ekki há. En höfuðrefsingin hefði í raun verið að missa vöruna. „Það er í raun og veru það sem kippir fótunum undan fólki,“ sagði hann.“ Svo endar þetta náttúrulega á uppboði og ríkið fær væntanlega einhverja peninga að auki þar. Síðast en ekki síst fer þetta ekki á almennan markað þar sem menn eru í lögmætum viðskiptum. Venjan hjá þessu fólki er að reyna að telja viðskiptavinum trú um að þetta séu verðmætir skartgripir og reyna að selja þá á sem hæstu verði.“
Innlent Mest lesið Segjast hafa uppgötvað nýjan lit sem ekki hefur sést áður Erlent Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Innlent Engin tengsl milli þolenda og gerenda Innlent Mótmæla brottvísun Oscars Innlent „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Innlent Saka hvor aðra um að berjast áfram þrátt fyrir vopnahlé Erlent Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Innlent Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Innlent Koma strandaglópunum heim í kvöld Innlent Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Innlent Fleiri fréttir Mótmæla brottvísun Oscars Gagnrýnir brattar hækkanir: „Þetta er bara dapurlegt“ Eitthvað búi að baki „meira en þrá hans eftir friði“ Engin tengsl milli þolenda og gerenda Tortryggni í garð Rússa og ungmennaráð sem fékk ekkert að segja Móðirin hafi þurft að sárbæna hann til að hitta barnið á spítala Handtekinn á Húsavík með tölvert magn fíkniefna Bora tilraunaholu til að framleiða heitt vatn á höfuðborgarsvæðinu „Það er eitthvað við það að vera hérna“ Koma strandaglópunum heim í kvöld Áhyggjuefni að brotaþolar treysti ekki dómstólum Unglingur stakk óboðinn gest í bakið til að verja fjölskyldumeðlim Fólskuleg líkamsárás og strandaglópar í suðri „Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Tveir handteknir vegna líkamsárásar Við Íslendingar fórum bara á vertíð og drifum þetta af Náðist á upptöku þegar skipulagðir þjófar tóku sjóðsvél „Rosalega erfitt“ að keppa við innflutt grænmeti Stígvél og tækniframfarir Hótanir gegn háskólum og krossfestingar Gamall ráðherra vildi nýtt hús, en nýr ráðherra gæti fengið gamalt hús „Þetta er orðið pínu þreytt, tveir bílar á sex dögum“ „Ágæt ábending“ um bótaþega en tekur ekki undir allar athugasemdir fjármálaráðs Háholt sett aftur á sölu Skjólstæðingur heilbrigðisstofnunar veittist að starfsfólki Ráðherra bregst við athugasemdum, leikur ársins og ódýrt grænmeti „Stórtækir íbúðareigendur“ eiga 20 prósent íbúða í borginni Handtekinn grunaður um vasaþjófnað í miðborginni Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Sjá meira