
Íslensk vefgátt að norðurslóðum
Í tillögu til þingsályktunar um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða, sem ég hef lagt nýlega fram á Alþingi, er sérstaklega hvatt til þess að íslensk stjórnvöld styrki stöðu landsins sem miðstöðvar fyrir alþjóðlegt norðurslóðastarf. Starfsemi Norðurslóðagáttarinnar sem teygir anga sína um allt norðurskautssvæðið og langt út fyrir það er frábært dæmi um slíka viðleitni.
Fyrirtæki og stofnanir á norðurslóðum hafa verið leiðandi í að þróa og nýta veftækni á sviði heilsugæslu, umhverfisvöktunar, varðveislu og miðlun menningararfs og síðast en ekki síst við fjarkennslu. Þátttaka í slíkum verkefnum felur í sér áhugaverð sóknarfæri fyrir íslenska tækni og þekkingu eins og starfsmenn Norðurslóðagáttarinnar á Akureyri hafa sannað. Þeir eiga heiður skilinn fyrir það. Akureyringar geta sannarlega glaðst yfir að sjá svo blómstrandi fífil spretta upp í túnjaðri sínum.
Ísland og hreindýrafólkið
Heiðursmennirnir tveir vísuðu þar til Norðurslóðagáttarinnar, www.arcticportal.com, sem á síðustu árum hefur byggst upp með undraverðum hætti norður á Akureyri. Það kom mér nokkuð á óvart, þegar þeir sögðu mér að helstu tengsl og samskipti hreindýrahirðingja og bænda í sjö löndum norðursins væru um íslensku vefgáttina.
Þeir sögðu að nú væru á annað hundrað þúsund manns á norðurhvelinu sem eiga líf sitt og afkomu undir hreindýrunum. Þeir dreifast um fámennustu og harðbýlustu svæði hins byggða heims. Langa hríð voru samskipti milli þeirra stopul og erfið. Nú hafa nýjungar í fjarskiptatækni og nettenging afskekktra byggðarlaga á norðurslóðum gjörbreytt möguleikum þeirra til innbyrðis samskipta og koma sjónarmiðum sínum á framfæri á alþjóðavettvangi. Það kom mér hins vegar á óvart, en gladdi mig mjög, að Ísland hefði lagt þar sitt pund á vogarskálarnar.
Hreindýrakarlarnir lýstu því fyrir mér hversu mikilvæg íslenska norðurslóðagáttin, Arctic Portal, hefði verið við að byggja upp tengsl milli dreifðra samfélaga innan þessarar ævafornu atvinnugreinar. Hreindýrafólkið er þó síður en svo einu frumbyggjarnir sem njóta góðs af hinu íslenska frumkvæði. Starfsmenn hennar styðja dyggilega við bakið á ýmsum frumbyggjasamtökum með faglegri og tæknilegri aðstoð. Þetta hlutverk Norðurslóðagáttarinnar, sem þó er aðeins eitt af fjölmörgum, er vitaskuld frábært framlag gagnvart þessum nyrstu íbúum norðurhvelsins. Um leið er það afar mikilvægur stuðningur við eitt af lykilstefjunum í nýrri norðurslóðastefnu Íslands, en í henni er mælt sérstaklega fyrir kröftugu liðsinni Íslands við réttindabaráttu frumbyggja norðurhjarans.
Öflugasta norðurslóðagáttin
Norðurslóðagáttin er vistuð hjá Háskólanum á Akureyri og afsprengi hans í merg og bein enda fyrrverandi rektor, Þorsteinn Gunnarsson, frumkvöðull að íslensku háskólastarfi um norðurslóðir. Hún er í dag rekin af metnaðarfullum hópi ungra sérfræðinga undir öflugri forystu Halldórs Jóhannssonar arkitekts. Það var gaman að koma þangað í heimsókn á dögunum, og komast að því að flestir sem þar starfa, bráðum 14 talsins, brutu skurnina í útungunarvél Háskólans á Akureyri.
Margir lögðu í árdaga frumkvæði Norðlendinga lið, þar á meðal utanríkisráðuneytið. Það endurspeglar hins vegar rækilega það álit og virðingu sem Norðurslóðagáttin hefur áunnið sér í hinu alþjóðlega rannsóknasamfélagi að á síðasta ári var hún rekin næstum að öllu leyti fyrir erlent sjálfsaflafé. Má þar síðast nefna verkefni upp á 800 þúsund evrur sem tengist stóru alþjóðlegu verkefni um sífrerann á norðurslóðum.
Upplýsing og kennsla
Gáttin veitir aðgang að margvíslegum upplýsingum um norðurslóðir, s.s. yfirlit um norðursiglingar, orkumál, fiskveiðar og loftslagsbreytingar. Fjöldi norðurslóðasamtaka vítt um norðurhvelið hefur jafnframt sett þar upp vefsetur og vinnusvæði sín. Meðal þeirra má nefna tvo starfshópa Norðurskautsráðsins, Alþjóðlegu vísindanefndina um norðurslóðir, Alþjóðasamtök félagsvísindamanna á norðurslóðum og Rannsóknarþing norðursins.
Norðurslóðagáttin vinnur nú ásamt Háskóla norðurslóða að spennandi verkefni, sem felst í gerð heildstæðs námsgagna- og kennslukerfis til gagnvirkrar fjarkennslu í námskeiðum skólans. Háskólinn er samvinnunet fjölmargra háskóla á norðurslóðum og nemendur hans hafa aðgang að námskeiðum annarra skóla sem tengdir eru netinu sem skiptinemar eða í gegnum fjarnám og flestar íslenskar háskólastofnanir eru þátttakendur í þessu samstarfsneti.
Skoðun

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar