Framúrskarandi íslenskir hönnuðir verðlaunaðir 23. mars 2011 14:25 MYNDIR/[email protected]
Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði rúmlega 11,5 milljón króna til verkefna á sviði grafískrar hönnunar, fatahönnunar, matarhönnunar, vöruhönnunar og arkitektúrs. Hönnunarsjóðurinn styrkir í fyrsta skipti Anton Kaldal, Gunnar Vilhjálmsson og Steinar Farestveit með rannsóknarverkefni sem kafar djúpt í uppruna, sögu, og þróun bókstafsins „ð", sem er þýðingarmikill hluti af þjóðararfi Íslendinga. Rannsóknin verður tekin saman með útgáfu bókar. Arkitektastofan KRADS með verkefni sitt PLAYTIME, sem er farandvinnustofa ætluð nemum í arkitektúr, þróuð í samvinnu við danska leikfangaframleiðandann LEGO. Sruli Recht fatahönnuður með nýja herrafatalínu sína og Auður Ösp Guðmundsdóttir, Embla Vigfúsdóttir, Katarina Lötzsch og Robert Peterssen með matarhönnunarverkefnið „Pantið áhrifin" en það verkefni fékk Nýsköpunarverðlaun Forseta Íslands á dögunum. Þrír aðilar fengu framhaldsstyrki til frekari eflingar verkefna sinna. Það voru þeir Bóas Kristjánsson með fatamerki sitt 8045, Hafsteinn Júlíusson með vörumerki sitt HAF og Charlie Strand með bókina Icelandic Fashion Design sem kemur út í sumar. Öll eiga þessi verkefni sameiginlegt að ötullega hefur verið unnið í þeim frá fyrri styrkveitingum. Auk þessa styrkir Hönnunarsjóðurinn HönnunarMars sem byrjar í dag og tveir grafískir hönnuðir hlutu styrk til starfsnáms erlendis.Viðtöl við nokkra af verðlaunahöfunum má sjá hér (myndskeið).MYNDIR/[email protected]
HönnunarMars Skroll-Lífið Mest lesið Hætti í fússi eftir linnulausar svívirðingar nettrölla Lífið Segir óheilbrigt að pör djammi mikið hvort í sínu lagi Lífið Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Bíó og sjónvarp Rísandi stórstjarna og alvöru hjartaknúsari Bíó og sjónvarp Íslandsmet? Eiga sex barnabörn í leikskólanum á Vopnafirði Lífið Katrín Halldóra fyllir í stóra skó Lífið Eyddu undir hundrað þúsund krónum í matarinnkaup í desember Lífið Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Lífið Svona var fjögurra rétta matseðillinn Lífið Gærurnar verða að hátísku Tíska og hönnun Fleiri fréttir Bíó Paradís valið eitt af 21 svölustu kvikmyndahúsum heims Margrét selur hönnunarperlu í Skerjafirði Íslandsmet? Eiga sex barnabörn í leikskólanum á Vopnafirði Hætti í fússi eftir linnulausar svívirðingar nettrölla Draumur breska þríeykisins rætist á Húsavík Pitsurnar til styrktar minningarsjóðnum rjúka út Eyddu undir hundrað þúsund krónum í matarinnkaup í desember Heillandi sumarhús úr smiðju Leifs Welding: Jensen rúm fylgir með kaupunum Katrín Halldóra fyllir í stóra skó Segir óheilbrigt að pör djammi mikið hvort í sínu lagi Innlit í rúmlega 270 milljóna króna þakíbúð á Orkureitnum Svona var fjögurra rétta matseðillinn Líkaminn þarf ekki að vera fullfrískur til að upplifa unað Guðni Th. orðinn afi Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Þakkar aðal sykurpabbanum fyrir allt Gellurnar fjölmenntu á gugguvaktina Greindist með skyrbjúg eftir notkun megrunarlyfs Slæm hárgreiðsla Steinda varð enn verri Herra Hnetusmjör og Sara selja lúxusíbúð innan við ári eftir kaupin „Prinsessur eru líka sterkar og fyndnar“ Madonna og Elton John grafa stríðsöxina 80 syngjandi karlar syngja hér heima og í Gimli í Kanada „Fólkið hefur gleymst og þetta er ekki manneskjulegt“ Kveðju kastað á Megas í tilefni dagsins Bleik og ævintýraleg miðbæjarperla Með skottið fullt af próteini Trommari Blondie er fallinn frá Stjörnulífið: Skvísuafmæli, Hönnunarmars og hækkandi sól Sjá meira