Rósa Guðbjarts eldar hér og gefur uppskriftir að heitu chillísúkkulaði, brauðkollum með fyllingu og dýrindis smákökum. Úr Íslandi í dag á Stöð 2.
Heitt chillísúkkulaði
f. fjóra
1 rautt chillí-aldin eða ½ tsk. chillí-flögur eða-duft
6 – 8 dl mjólk
300 g suðusúkkulaði, saxað
Fræhreinsið chillí-aldinið og saxið það mjög smátt. Hitið mjólkina, bætið chillí-aldininu út í og því næst súkkulaðinu. Berið fram gjarnan með þeyttum rjóma.
Brauðkollur með fyllingu
10-12 brauðsneiðar
3 dl eldað kjúklina- eða kalkúnakjöt (tilvalið að nota afganga)
180 ml sýrður rjómi eða grísk jógúrt
3 msk. mangó chutney
½ - 1 tsk. karrí
1 dl sellerí, smátt skorið
1 dl blaðlaukur eða vorlaukur, smátt skorinn
salt og pipar
rósapipar og ferskt kóríander til skrauts
Skerið skorpuna af brauðsneiðunum og þrýstið sneiðunum ofarm í smurð múffuform í álbakka. Bakið við 200 gráður í um 10 mínútur eða þar til brauðkollurnar hafa tekið á sig gylltan blæ. Blandið öðru hráefni saman í skál. Látið brauðkollurnar kólna og fyllið síðan með kjúklinga-/kalkúnablöndunni. Skreytið með rósapipar og kóríander, ef vill.
Besta smákakan
Dásamleg fyllingin í kaffisúkkulaðinu gerir þessar smákökur himneskar.
3 eggjahvítur
150 g flórsykur
4 - 5 stk. kaffisúkkulaði, (frá Góu-Lindu) söxuð (60 g hvert)
Hitið ofninn í 130 - 140 gráður. Byrjið á því stífþeyta eggjahvíturnar eins og best er að gera í marengsgerð, því uppistaðan í kökunum er einmitt marengs. Bætið flórsykrinum saman við í nokkrum skömmtum undir lok þeytingarinnar. Blandið síðan súkkulaðinu varlega saman við með sleif. Búið til litla toppa með tveimur teskeiðum og setjið á ofnplötu sem þakin hefur verið bökunarpappír. Bakið kökurnar í 25 - 30 mínútur. Fylgist með kökunum en ef fyllingin byrjar að leka úr þeim eru kökurnar orðnar ofbakaðar. Ef marengs topparnir eru bakaðir við svo lágan hita verða þeir stökkir og þannig vil ég helst hafa þá.
Best er að leyfa þeim að standa í ofninum eftir að slökkt hefur verið á honum til að leyfa marengsinum að þorna vel. Ef þið viljið hafa toppana mjúka þá er best að baka þá við 180 gráður í 10-12 mínútur. Hægt er að nota venjulegan sykur eða púðursykur í stað flórsykursins. En þessi útgáfa finnst mér best. Njótið vel með góðu kaffi og við kertaljós – það eru jú bara jólin einu sinni á ári.