Ólafur: Þetta var fullkomið Henry Birgir Gunnarsson skrifar 5. maí 2011 07:00 Kristján Arason gerði FH að meisturum árið 1992 og aftur nú, nítján árum síðar. Fréttablaðið/HAG
Stórskyttan unga í liði FH, Ólafur Guðmundsson, fór mikinn í liði FH í gær og ljóst var að hann vildi klára dæmið á heimavelli. Ólafur var að leika sinn síðasta leik fyrir FH í bili en hann spilaði sem lánsmaður frá danska liðinu AGK, sem keypti hann síðasta sumar. „Það kom ekki til greina að fara aftur til Akureyrar. Við vildum vinna þetta í Krikanum enda helmingi sætara þannig. Þetta kvöld var fullkomið. Ég hefði ekki getað ímyndað mér þetta betra," sagði Ólafur og brosti breitt. „Baráttan og liðsheildin var meiri hjá okkur. Við vildum þetta meira en Akureyringarnir. Við lögðum ansi mikið á okkur til þess að klára dæmið. Löngunin var gríðarleg hjá okkur og við uppskárum eftir því. Ég er búinn að skila öllu sem ég get til félagsins og það er frábært að skilja á þennan hátt." Logi Geirsson kom heim fyrir tímabilið og átti að vera lykillinn að meistaraliði FH. Þrálát meiðsli hafa haldið Loga mikið utan vallar en hann hefur gefið það sem hann getur til liðsins og honum fannst ljúft að uppskera í gær. „Ég sagði fyrir tímabilið að við yrðum Íslandsmeistarar. Ég stóð við það en þetta var erfitt. Ég skipti mér inn á í dag því mér fannst ég geta hjálpað liðinu. Það gekk og þessir strákar eru frábærir. Þetta er mikill gleðidagur."
Olís-deild karla Mest lesið Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna Fótbolti Enni ungs sonar Man. Utd leikmanns í tvennt Enski boltinn „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Eygló ætlar að vinna Ólympíugull: „Ég hlýði bara Vésteini“ Sport „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn Fram einum sigri frá úrslitum Handbolti Biður stuðningsfólk afsökunar á skítnum Enski boltinn Enduðu fimmtán leikja taphrinu í úrslitakeppni NBA Körfubolti Selfoss jafnaði metin Handbolti „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” Íslenski boltinn Fleiri fréttir Selfoss jafnaði metin Fram einum sigri frá úrslitum Höfðu betur eftir framlengdan leik Aldís Ásta og stöllur einum sigri frá úrslitunum Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni Sjá meira