

Nýjar áherslur í utanríkisstefnu Íslands
Áhersla á samkynhneigðaSíðustu tvö ár hefur utanríkisráðuneytið sérstaklega tekið upp réttindi samkynhneigðra sem áhersluþátt um mannréttindi. Ég tók þau, einn utanríkisráðherra, upp með skýrum hætti í ræðu minni á síðasta Allsherjarþingi SÞ. Sú áhersla hefur síðan birst skýrt í starfi ráðuneytisins. Ísland tók þátt í hörðum mótmælum við stjórnvöld landa sem beitt hafa harðræði við samkynhneigða, s.s. Malaví og Úganda, krafðist náðunar þar sem dæmt var á grunni kynhneigðar, beitti sér gegn handtöku forvígismanns samkynhneigðra í einu Evrópulandanna, og gegn opinberum tálmum á Gay Pride-göngu í öðru. Ég er stoltur af því að í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis var í fyrsta skipti kafli: „Réttindi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender-einstaklinga."
Ný stefna um norðurslóðirNorðurslóðir eru nú skilgreindur forgangsþáttur í utanríkisstefnunni. Hörðum höndum er nú unnið að framkvæmd ítarlegrar stefnu sem Alþingi samþykkti einróma á grundvelli tillögu minnar. Varnir gegn olíuslysum, strandríkisréttur Íslands, alþjóðleg björgunarmiðstöð, lausn deilumála gegnum Hafréttarsáttmálann, traustar reglur um hafskipatúrisma í norðurhöfum, íslensk þjónusta við norðursiglingar, og sjálfbær nýting lifandi auðlinda eru þar í forgangi. Eitt af markmiðum stefnunnar er að efla þá fræðakjarna sem vinna við rannsóknir um norðrið. Þau verða markvisst styrkt með tvíhliða samningum sem ég hef þegar rætt við utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Noregs og eru á dagskrá fundar sem utanríkisráðherra Rússa hefur boðið til, og sömuleiðis í viðræðum við kanadíska ráðherra í þessari viku og í kjölfarið fyrirhugaðri heimsókn til Kanada. Ég tel að Íslendingar verði að eignast Norðurskautsstofnun, og tvíhliða samningar við þjóðir norðurhvelsins leggja í það púkk.
Langtímastefna um þróunaraðstoðÍ fyrsta sinn var í vetur lagt fram af utanríkisráðherra Íslands þingmál um þróunarsamvinnu með tímasettum áföngum um að ná árið 2020 markmiði Sameinuðu þjóðanna um að veita 0,7% af vergri þjóðarframleiðslu til þróunaraðstoðar. Við erum meðal ríkustu þjóða heims og höfum skyldur til að taka þátt í að draga úr hungri og barnadauða og hjálpa hinum fátækustu til að hjálpa sér sjálfir. Það gildir ekki síst á sviðum þar sem Ísland hefur einstaka reynslu og þekkingu að bjóða, s.s. í sjávarútvegi og endurnýjanlegri orku.
Fyrsta þjóðaröryggisstefnanÍ framhaldi af niðurlagningu Varnarmálastofnunar er fyrsta þjóðaröryggisstefna Íslands nú í undirbúningi. Ég hef lagt fyrir Alþingi tillögu um þverpólitíska mótun hennar með aðkomu allra flokka. Hún tekur mið af gjörbreyttum aðstæðum í okkar heimshluta, herleysi Íslands, og að öryggi Íslendinga verði tryggt á grunni borgaralegra gilda og borgaralegra stofnana í virkri samvinnu við önnur ríki. Hernaðarógn fyrri tíma er ekki lengur til staðar og það gefur okkur færi á að brjóta endanlega af okkur klakabönd kalda stríðsins. Ég efast ekki um að Alþingi getur náð breiðri sátt um grundvallaráherslur nýrrar þjóðaröryggisstefnu.
Sögulegir EvrópusamningarSögulegasta nýmælið sem ég hef flutt á 20 ára ferli er þó tillagan sem Alþingi samþykkti um að gjörbreyta utanríkisstefnunni með því að sækja um aðild að Evrópusambandinu og leggja niðurstöður samninganna undir dóm þjóðarinnar. Það snýst um að bæta lífskjör og tryggja fullveldi og öryggi þjóðarinnar. Þetta er stærsta verkefni utanríkisráðuneytisins fyrr og síðar. Alþingi lagði niður rauðu strikin, og við, þjónar almennings í ráðuneytinu, höfum í hvívetna gætt þess að vinna málið í fullu samræmi við ítarlegan vegvísi Alþingis, og þar með hagsmuni Íslendinga. Virk og breið þátttaka fjölmargra hagsmunasamtaka hefur tryggt aðkomu ólíkra sjónarmiða. Ég hef gætt þess að hafa ferlið eins gagnsætt og unnt er. Hvert skref hefur verið kynnt og útskýrt fyrir utanríkismálanefnd, eða starfshópi hennar um Evrópumál. Óskum fagnefnda þingsins og þingflokka um yfirferðir um tiltekna málaflokka er jafnóðum sinnt. Öll gögn eru lögð út á Netið um leið og íslenskir hagsmunir leyfa.
Nú er að ljúka svokallaðri rýnivinnu þar sem skilgreindir eru þeir þættir sem um þarf að semja. Samningarnir sjálfir hefjast síðar í þessum mánuði. Þá verða söguleg kaflaskipti í umsóknarferlinu. Athyglisvert er hversu sterkur meirihluti þjóðarinnar hefur ítrekað lýst í könnunum að hún vill ljúka samningunum og fá sjálf að taka endanlega afstöðu í þjóðaratkvæði. Sá réttur verður ekki frá þjóðinni tekinn, enda núorðið fáir sem fyrir því mæla ef undan eru skildir nokkrir af glæstustu fulltrúum gamla Íslands.
PalestínuverkefniðÉg hef lýst skýrum stuðningi við sjálfstæði Palestínu miðað við landamærin frá 1967, andstöðu við ofbeldi, og nauðsyn á samkomulagi sem byggir á tveggja ríkja lausninni. Kaflaskipti urðu í síðasta mánuði þegar Palestína reif sig úr læstri stöðu og Hamas og Fatah ákváðu að styðja sameiginlega embættismannastjórn. Ég hef sjálfur átt í viðræðum við utanríkisráðherra Palestínu, Riad Al-Malki, um hvernig Ísland geti best stutt við sjálfstæðisbaráttu Palestínumanna. Ýmsir möguleikar eru á því. Við höfum frá upphafi þessarar stjórnar unnið þétt að Palestínumálinu. Til að mynda sendi ég mína fulltrúa í síðustu viku til Ramallah sem ræddu við utanríkisráðherrann þar, leiðtoga samningateymisins, aðra fulltrúa palestínsku heimastjórnarinnar og alþjóðaliðið um mögulegan framgang. Engar ákvarðanir verða teknar fyrr en eftir lögbundið samráð við utanríkismálanefnd Alþingis sem hefur sýnt málinu verðskuldaðan áhuga. Hitt er ljóst, að íslensku ríkisstjórnina þarf ekki að lemja til ásta í því máli.
Skoðun

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar