
Kvikmyndagerð á krossgötum?
Kvikmyndaskólinn er í umræðunni vegna fjárhagsvanda. Fyrir mér er kvikmyndaskólinn álíka mikilvægur og bændaskólar landbúnaðinum og viðskiptaskólar fjármagnsgeiranum. Ef við menntum ekki bændur þá leggst landbúnaðurinn af og gjaldeyrir fyrir tugi milljarða fer úr landi til að flytja inn mat. Ef við menntum ekki kvikmyndagerðarmenn þá er hætta á að greinin dragist saman og við verðum af mikilvægum gjaldeyri. Kvikmyndagerð er iðnaður, list, inn- og útflutningsgrein. Við getum ekki verið svo blönk og skammsýn að láta kvikmyndagerðina svelta og drabbast niður.
Það má vel vera að rekstur kvikmyndaskólans hafi verið erfiður og þar þurfi að laga til. Það réttlætir hins vegar ekki að námið sé látið reka á reiðanum. Auðvitað á ríkisstjórnin að grípa inn í og sjá til þess að skólastarfið haldi áfram meðan framtíðarlausn er fundin.
Það var haustið 2006 sem þáverandi ráðherrar menntamála og fjármála og fulltrúar kvikmyndagerðarmanna undirrituðu samkomulag um stuðning við innlenda kvikmyndagerð. Átti samkomulagið að ná til fjögurra ára, 2007–2010. Samkomulagið markaði tímamót í sögu íslenskrar kvikmyndagerðar þar sem búið var að tryggja fjármagn fram í tímann. Samkvæmt samkomulaginu var gert ráð fyrir að fjárframlag ríkisins yrði 700 millj. kr. árið 2010 en í fjárlögum ársins var framlagið skorið niður í 450 millj. kr., eða um 35%. Á fjárlögum ársins 2011 er fjárframlag ríkisins einnig 450 millj. kr. Fljótlega munu fjárlög ársins 2012 líta dagsins ljós og þá verður forvitnilegt að sjá hvort ríkisstjórnin hefur breytt um stefnu gagnvart kvikmyndagerðinni. Ég vona að kvikmyndagerðarmenn verði kallaðir til fundar og samkomulagið frá 2006 endurnýjað.
Skoðun

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar

Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt?
Davíð Bergmann skrifar

Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Og hvað svo?
Eyrún Birna Davíðsdóttir skrifar

Óboðlegt svar um ótæka stjórnsýslu
Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Sannleikurinn í tengdamömmumálinu
Ólöf Björnsdóttir skrifar

Hann breytti öllu – og gerði það með háði
Jónas Sen skrifar

Ekki fylla höfnina af grjóti
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Lengri útivistartími barna
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Við stöndum saman með íþróttafólkinu – en hvað með fólkið á bak við það?
Ingibjörg Isaksen skrifar

Að því að rjúfa vítahring kynslóðabundinna afbrota
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Flugan í ídýfunni
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir skrifar

Að mennta til lífs, ekki prófa
Sandra Sigurðardóttir skrifar

Það er kominn tími til...
Birgir Rúnar Davíðsson skrifar

Er EES samningurinn gagnlaus fyrir Ísland?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

Er píptest rót alls ills?
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vertu bandamaður kæri bróðir!
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Frá frammistöðuvæðingu til farsældar
Helga Þórey Júlíudóttir skrifar

Ísland á að verja með íslenskum lögum
Arnar Þór Jónsson skrifar

Fyrsta skrefið í átt að betri Menntasjóði
Logi Einarsson skrifar